1644
ár
Árið 1644 (MDCXLIV í rómverskum tölum) var 44. ár 17. aldar og hlaupár sem hófst á föstudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en mánudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Árþúsund: | 2. árþúsundið |
---|---|
Aldir: | |
Áratugir: | |
Ár: |
Atburðir
breyta- 26. janúar - Þingherinn sigraði konungssinna í orrustunni við Nantwich.
- 14. mars - Roger Williams fékk konungsleyfi fyrir Rhode Island-nýlendunni.
- 25. apríl - Uppreisn Li Zicheng rændi Beijing sem leiddi til sjálfsmorðs síðasta Mingkeisarains Chongzhen.
- 3. júní - Li Zicheng lýsti sjálfan sig keisara Kína.
- 6. júní - Mansjútímabilið hófst í Kína þegar Mansjúríumenn hertóku Peking.
- 2. júlí - Stærsta orrusta ensku borgarastyrjaldarinnar, orrustan við Marston Moor, átti sér stað.
- 15. september - Innósentíus 10. tók við sem páfi eftir lát Úrbanusar 8..
- Nóvember - Svíar unnu sigur á keisarahernum í orrustunni við Jüterbog.
- 9. desember - Kristín Svíadrottning varð lögráða.
Ódagsettir atburðir
breyta- Heimspekiritið Lögmál heimspekinnar eftir René Descartes kom út.
- Hallgrímur Pétursson varð prestur á Hvalsnesi.
- Þorláksbiblía var prentuð á Hólum.
- Mislingar bárust til landsins með komu danska kaupskipins til Eyrarbakka og urðu mannskæð sótt.
Fædd
breyta- 28. september - Ole Rømer, danskur stjörnufræðingur (d. 1710).
- 14. október - William Penn, enskur kvekari og stofnandi Pennsylvaníu (d. 1718).
Ódagsett
breyta- Antonio Stradivari, ítalskur fiðlusmiður (d. 1737).
- Matsuo Bashō, japanskt skáld (d. 1694).
Dáin
breyta- 25. apríl - Chongzen, keisari í Kína (f. 1611).
- 29. júlí - Úrbanus 8. páfi (f. 1568).
- 7. september - Guido Bentivoglio, ítalskur stjórnmálamaður (f. 1579).
- 13. október - Pros Mund, danskur sjóliðsforingi og hirðstjóri á Íslandi (f. 1589).