Eyrarbakki
Eyrarbakki er lítið sjávarþorp á suðurströnd Íslands. Það tilheyrir sveitarfélaginu Árborg og íbúafjöldi var þar 540 manns árið 2019.
Á Eyrarbakka var mikil verslun og sóttu bændur á Suðurlandi til Eyrarbakka á meðan á einokun danska kóngsins stóð. Eyrarbakki varð einn stærsti bær á Íslandi og var á þeim tíma mun stærri en t.d. Reykjavík og leit lengi út fyrir að Eyrarbakki yrði höfuðborgin. Á Eyrarbakka hefur verið mönnuð veðurathugunarstöð síðan 1922. (Veður var þó athugað og skráð mun lengur á Eyrarbakka eða frá árinu 1880, en þá var P. Nielsen faktor með veðurathuganir fyrir dönsku veðurstofuna).
9. janúar 1990 gekk mikill sjór inn á suðurströndina í kjölfar ofsaveðurs sem þá gekk yfir landið og urðu þorpin Eyrarbakki og Stokkseyri verst úti í þessum hamförum veðurofsans þegar ein dýpsta lægð sem mælst hefur á síðustu áratugum rann upp að suðurströndinni. Þjórsárhraunið mikla myndar ströndina við Eyrarbakka og skerin þar úti fyrir og nær mörg hundruð metra út.
Í byrjun síðustu aldar hófst tímabil útgerðar og fiskvinnslu á Eyrarbakka og störfuðu þar þrjú fiskvinnslufyrirtæki fram undir síðustu aldamót. Hafnleysi stóð útgerð þó alltaf fyrir þrifum og með tilkomu brúar yfir Ölfusárósa lagðist útgerð smám saman af. Eyrarbakki er nú vaxandi ferðamannastaður og gömlu húsin gjarnan nýtt sem sumarbústaðir.
Árið 985 sigldi Bjarni Herjólfsson, frá Eyrum, sem nú heita Eyrarbakki, áleiðis til Grænlands en villtist í þoku og norrænu þar til hann sá land sem við nú köllum Norður-Ameríku. Hann tók ekki land en snéri til Grænlands og seldi Leifi Eiríkssyni skip sitt.
Elsta hús í bænum er Húsið frá 1765, sem er elsta varðveitta timburhús á Íslandi. Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri var stofnaður 1852 og mun vera sá elsti í landinu. Kirkjan á Eyrarbakka var reist 1890. Altaristöflu kirkjunnar málaði Louisa Danadrottning, eiginkona Kristjáns 9. konungs. Louisa var langalangamma og Kristján 9. langalangafi Margrétar 2. Danadrottningar, Elísabetar 2. Bretadrotningar og Haraldar 5. Noregskonungs. Þau voru jafnframt langamma og langafi Filippusar prins og hertoga af Edinborg.
Myndasafn
breyta-
Eyrarbakki: Eyrargata
-
Rauða húsið (veitingahús), Assistentahúsið og kirkjan
-
Eyrarbakkakirkja
-
Kirkjan og húsið
-
Húsið á Eyrarbakka, reist 1765
-
Sjóminjasafnið
-
Gamla Læknishúsið á Eyrarbakka, reist 1916
-
Rauð hús á Eyrarbakka.
-
Kirkjugarðurinn..
-
Fangelsið á Litla-Hrauni
Þekktir Eyrbekkingar
breyta- Sigurjón Ólafsson myndhöggvari
- Valgeir Guðjónsson Stuðmaður
Heimildir og ítarefni
breyta- Brim:Stormflóðið 1990 Geymt 11 mars 2007 í Wayback Machine
- Vefsíða:Eyrarbakki.is
- Henný Árnadóttir. „Eyrarbakki“. is.m.wikibooks.org. Sótt 8. mars 2020.
Tenglar
breyta- 60 m3 af grjóti á íbúa; frétt í Morgunblaðinu 1971
- Í Eyrarbakkaverzlun fyrir 60-70 árum; grein í Frjáls verslun 1939