1710
ár
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1710 (MDCCX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
breyta- Pétur Bjarnason í Tjaldanesi í Saurbæ dæmdur í sekt fyrir að hafa grafið í leiði í kirkjugarði til að ná í tönn til að leggja við tönn konu sinnar, sem þjáðist af óþolandi tannpínu.
- Þorleifur Arason varð skólameistari í Skálholti.
Fædd
- 3. október - Snorri Björnsson, prestur á Húsafelli (d. 1803).
Dáin
- 13. júní - Björn Þorleifsson biskup á Hólum (f. 1663).
Erlendis
breyta- 17. febrúar - Hollendingar yfirgáfu Máritíus en þeir stofnuðu þar nýlendu árið 1638.
- 28. febrúar - Her Svía undir stjórn Magnus Stenbock vinnur vann sigur á innrásarher Dana, undir Jørgen Rantzau, í orrustunni við Helsingjaborg. Kringum 14.000 hermenn voru í báðum herjum.
- 10. apríl - Fyrstu höfundarréttarlögin, kennd við Önnu drottningu, gengu í gildi í Bretlandi.
- 12. maí - Síkar unnu sigur á Mógúlum þar sem nú er Púnjab á Indlandi.
- 20. ágúst - Spænska erfðastríðið: Orrustan um Saragossa. Spænsk-Burbónski herinn beið ósigur fyrir her Habsborgara.
- 26. september - Norðurlandaófriðurinn mikli: Svíar gáfust upp í Lettlandi. Rússar náðu yfirráðum þar.
- 10. október - Norðurlandaófriðurinn mikli: Svíar gáfust upp í Eistlandi. Rússar náðu yfirráðum þar.
- 13. október - Bretar náðu yfirráðum yfir Nýja-Skotlandi eftir 9 daga umsátur.
Fædd
- 15. febrúar - Loðvík 15. Frakkakonungur (d. 1774).
- 26. apríl - Thomas Reid, skoskur heimspekingur (d. 1796).
- 14. maí - Adólf Friðrik Svíakonungur (d. 1771).
- 20. september - Thomas Simpson, breskur stærðfræðingur (d. 1761).
- 10. nóvember - Adam Gottlob Moltke, danskur stjórnmálamaður (d. 1792).
Dáin
- 7. júní - Louise de La Vallière, hjákona Loðvíks 14. (f. 1644).
- 19. september - Ole Rømer, danskur stjörnufræðingur (f. 1644).