Ingvar E. Sigurðsson
Ingvar Eggert Sigurðsson (f. 22. nóvember 1963), oft nefndur Ingvar E. Sigurðsson, er íslenskur leikari og edduverðlaunahafi. Hann hefur leikið í leikhúsi, útvarpi, sjónvarpi og kvikmyndum. Hann hefur einnig starfað sem handritshöfundur og kvikmyndaframleiðandi.
Ingvar Eggert Sigurðsson | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Ingvar Eggert Sigurðsson 22. nóvember 1963 Reykjavík, Ísland |
Ár virkur | 1990 - nú |
Maki | Edda Arnljótsdóttir |
Börn | Snæfríður Ingvarsdóttir Áslákur Ingvarsson Sigurður Ingvarsson Hringur Ingvarsson |
Helstu hlutverk | |
Grjóni í Djöflaeyjan (1996) Óli í Sporlaust (1998) Páll í Englar alheimsins (2000) Grímur eldri í Kaldaljós (2004) Erlendur í Mýrin (2006) | |
Edduverðlaun | |
Leikari/leikkona ársins í aðalhlutverki 2006 Mýrin 2004 Kaldaljós Leikari ársins í aðalhlutverki 2000 Englar alheimsins Leikari ársins 1998 Slurpinn & Co. |
Ævi
breytaIngvar fæddist 22. nóvember 1963 í Reykjavík. Árið 1990 útskrifaðist hann úr Leiklistarskóla Íslands. Ári síðar var hann ráðinn til Þjóðleikhússins þar sem hann hefur farið með fjölda hlutverka.[1]
Ferill
breytaFerill í leikritum
breytaHlutverk sem Ingvar hefur leikið í Þjóðleikhúsinu eru: Pétur Gaut í Pétur Gautur, Vitju í Kæra Jelena, Tíbalt í Rómeó og Júlíu, Ingimund í Elínu Helgu Guðríði, Scullery í Stræti, Svenna í Kjaftagangi, drenginn í Stund gaupunnar, Leonardó í Blóðbrullaupi, Ormur Óðinsson í Gauragangi, Fernando Krapp í Sönnum karlmanni, Don Carlos í Don Juan, Ketil í Tröllakirkju, Prófstein í Sem yður þóknast, Sergé í Listaverkinu, Túzenbach barón í Þremur systrum og Kládíus konungur í Hamlet.
Ferill í kvikmyndum og þáttum
breytaÁr | Kvikmynd/Þáttur | Hlutverk | Athugasemdir og verðlaun |
---|---|---|---|
1990 | Sérsveitin laugarnesvegi 25 | ||
1992 | Ingaló | Skúli | |
1994 | Skýjahöllin | Pabbi Alla | |
1995 | Í draumi sérhvers manns | ||
1996 | Djöflaeyjan | Grjóni | |
Sigla Himinfley | Einar | ||
1997 | A Legend to Ride | Gunnar | |
Perlur og svín | Viktor | ||
Stikkfrí | Hilmar | ||
1998 | Slurpinn & Co. | Leikari ársins | |
Incest | |||
Sporlaust | Óli | ||
Áramótaskaupið 1998 | |||
1999 | Áramótaskaupið 1999 | ||
2000 | Englar alheimsins | Páll | Leikari ársins |
2001 | Villiljós | Sölvi | |
Skrímsli | Dr. Svendsen | ||
Áramótaskaupið 2001 | |||
2002 | Fálkar | Lögregla | |
K-19: The Widowmaker | Gorelov | ||
2003 | Second Nature | Franz | |
Stormviðri | Gunnar | ||
Njálssaga | Njáll | ||
2004 | Kaldaljós | Grímur eldri | Leikari ársins |
2005 | Bjólfskviða | Grendel | |
2006 | Mýrin | Erlendur | Leikari ársins |
Áramótaskaupið 2006 | |||
2007 | Foreldrar | Óskar Sveinn | Leikari ársins |
2008 | Stóra planið | Magnús | |
Skrapp út | Siggi | ||
Sveitabrúðkaup | Brynjólfur prestur | ||
Reykjavík - Rotterdam | Steingrímur | ||
8 | Faðir | ||
2009 | Fangavaktin | Viggó | |
2010 | Kóngavegur | BB | |
Woyzeck 2010 | Woyzeck | ||
Brim | Anton | ||
Courier | |||
2011 | Kurteist fólk | Þorsteinn | |
Borgríki | Gunnar | ||
2012 | I Against I | Issac Revchenko | |
2013 | Þetta reddast! | ||
Hross í oss | Kolbeinn | ||
Málmhaus | Karl | ||
Playtime | The Artist | ||
2014 | Ævar vísindamaður | Tímaferðalangurinn | |
Harry og Heimir: Morð eru til alls fyrst | Símon | ||
One Night in Istanbul | Altan | ||
Borgríki 2 | Gunnar | ||
2015 | Dirk Ohm - Sjónhverfingamaðurinn sem hvarf | Lensmann | |
Everest | Anatoli Boukreev | ||
Þrestir | Gunnar | ||
Ófærð | Ásgeir | ||
2016 | Fyrir framan annað fólk | Doktor | |
Sundáhrifin (L'effet aquatique) | Siggi | ||
Eiðurinn | Halldór | ||
2017 | Svanurinn | Karl | |
Justice League | Mayor | ||
2018 | Vargur | ||
Undir halastjörnu | Skúli | ||
Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald | Grimmson | ||
2019 | Hvítur, hvítur dagur | Ingimundur | |
Succession | Magnússon | ||
Þorsti | Lögga | ||
2021 | Zack Snyder's Justice League | Mayor | |
Katla | Þór | ||
Dýrið | Maður í sjónvarpi | ||
Verbúðin | Nautið | ||
2022 | Killing Eve | Lars | |
The Northman | He-Witch | ||
Volaða land | Ragnar | ||
2023 | Afturelding | Skarphéðinn Karlsson |
Verðlaun og tilnefningar
breytaIngvar hefur hlotið Edduverðlaunin alls fimm sinnum. Fyrst sem leikari ársins árið 1998 fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Slurpurinn & Co. Árið 2000 hlaut hann aftur verðlaun sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt sem Pál í kvikmyndinni Englar alheimsins. Þá hlaut hann verðlaun árið 2004 sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt sem Grímur eldri í Kaldaljós. Hann hlaut sömu verðlaun fyrir hlutverk sitt sem Erlendur í kvikmyndinni Mýrin árið 2006. Árið 2007 hlaut hann verðlaunin fyrir leik sinn í myndinni Foreldrar.
Ingvar hefur hlotið Íslensku leiklistarverðlaunin (Grímuna) tvisvar sinnum. Árið 2006 hlaut hann verðlaunin sem leikari ársins í aukahlutverki fyrir leik sinn í leikritinu Pétur Gautur. Og árið 2011 sem leikari ársins í aðalhlutverki fyrir leik sinn í Íslandsklukkunni
Bodil-verðlaunin
breytaÁrið 2023 hlaut Ingvar verðlaun fyrir besta aukahlutverkið í kvikmynd fyrir myndina Volaða land [2]
Tilvísanir
breyta- ↑ Ingvar E. Sigurðsson, Leikfélag.is, skoðað 13. júlí 2007
- ↑ Ingvar E hreppti ein elstu kvikmyndaverðlaun Evrópu Vísir, sótt 25/3 2023
Tengill
breyta
Verðlaun | ||
---|---|---|
Fyrirrennari: Ný verðlaun |
Edduverðlaunin fyrir leikara ársins í aðalhlutverki 1999-2000 |
Eftirfari: Jón Gnarr |