1796
ár
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1796 (MDCCXCVI í rómverskum tölum)
Á Íslandi
breyta- 6. nóvember - Dómkirkjan í Reykjavík var vígð.
- 5. desember - Skólapiltar í Hólavallarskóla settu á svið leikritið Hrólf eða Slaður og trúgirni eftir Sigurð Pétursson og er það yfirleitt talin fyrsta íslenska leiksýningin.
- Magnús Stephensen hóf að gefa út fréttatímaritið Minnisverð tíðindi.
- Nýtt hús var reist fyrir holdsveikraspítalann á Hallbjarnareyri.
Fædd
- 29. september - Hjálmar Jónsson (Bólu-Hjálmar), íslenskt skáld (d. 1875).
Dáin
- 4. ágúst - Hannes Finnsson, biskup í Skálholti (f. 1739)
- 19. nóvember - Þorkell Fjeldsted, íslenskur lögmaður í Færeyjum og síðar amtmaður og stiftamtmaður í Noregi (f. 1740)
- Margrét Finnsdóttir, biskupsfrú á Hólum, kona Jóns Teitssonar (f. 1734).
Erlendis
breyta- 16. febrúar - Bretar tóku við stjórn Ceylon (Sri Lanka) af Hollendingum.
- 9. mars - Napóleon Bónaparte giftist fyrri konu sinni, Josephine de Beauharnis, síðar Jósefínu keisaraynju.
- 14. maí - Edward Jenner bólusetti átta ára dreng, James Phipps, við kúabólu og var það fyrsta bólusetningin.
- 15. maí - Her Napóleons Bónaparte náði Mílanó á sitt vald. Hertogadæmið Mílanó leið undir lok.
- 1. júní - Tennessee varð 16. fylki Bandaríkjanna.
- 6.-7. júní - Ragundavatn, 25 kílómetra langt stöðuvatn í Jamtalandi í Svíþjóð, tæmdist á fjórum klukkutímum þegar tilraun til að gera rennu til að fleyta timbri framhjá 35 metra háum fossi sem féll út vatninu mistókst. Flóðbylgja sem talin hafa verið um 300 milljónir rúmmetra af vatni olli mikilli eyðileggingu en þó fórst enginn.
- 4.- 5. ágúst - Frönsku byltingarstríðin: Franski herinn sigraði Austurríkismenn við orrustuna við Lonato. Degi síðar sigraði hann 25.000 manna her Habsborgara við Castiglione.
- Október - Jane Austen skrifaði fyrsta uppkastið að skáldsögu sinni Hroka og hleypidómum. Hún kom þó ekki út fyrr en 1813.
- 3. nóvember - Forsetakosningar í Bandaríkjunum. John Adams sigraði Thomas Jefferson.
- 6. nóvember (gamli stíll, 17. nóvember samkvæmt gregorísku tímatali) - Katrín mikla Rússakeisaraynja dó og Páll 1. sonur hennar varð keisari.
- 12. nóvember - Napóleon beið sinn fyrsta ósigur í orrustu fyrir Austurríkismönnum í Caldiero, Ítalíu. Herinn hörfaði til Verona.
- Spánn leyfði hlutlausum ríkjum að versla við nýlendur sínar.
- Borgin Cleveland í Ohio var stofnuð.
Fædd
- 28. júní - Karólína Amalía af Augustenborg, drottning Danmerkur, kona Kristjáns 8. (d. 1881).
- 6. júlí - Nikulás 1. Rússakeisari (d. 1855).
- 16. júlí - Camille Corot, franskur listmálari (d. 1875).
Dáin
- 21. júlí - Robert Burns, skoskt skáld (f. 1759).
- 7. október - Thomas Reid, skoskur heimspekingur (f. 1710).
- 10. október - Júlíana María, dönsk ekkjudrottning, kona Friðriks 5. (f.
- 6. nóvember/17. nóvember - Katrín mikla, keisaraynja Rússlands (f. 1729).