Fyrsta konungsættin
Tímabil og konungsættir í Egyptalandi hinu forna | ||
Forsaga Egyptalands | ||
---|---|---|
Fornkonungar Egyptalands | ||
| ||
| ||
| ||
| ||
| ||
| ||
| ||
| ||
|
Fyrsta konungsættin er listi yfir fyrstu konungana sem ríktu yfir sameinuðu Egyptalandi á 31. öld f.Kr. Höfuðborg ríkisins var í Tinis sem ekki er vitað hvar stóð. Upplýsingar um þessa konungsætt er að finna á nokkrum minnismerkjum og hlutum þar sem nöfn konunga eru rituð. Þekktastur þessara hluta er Narmerspjaldið. Engar nákvæmar heimildir eru til um fyrstu tvær konungsættirnar nema listar sem eru á Palermósteininum frá tímum fimmtu konungsættarinnar.
Grafir konunga og aðalsmanna frá þessum tíma er að finna í Abýdos, Nakada og Sakkara. Þær eru að mestu byggðar úr tré og leirhleðslum.
Nafn | Athugasemdir | Ártöl |
---|---|---|
Narmer | - | um 3100–3050 f.Kr. |
Hor-Aha | Menes í eldri listum | um 3050 f.Kr. |
Djer | - | 41 ár (Palermósteinninn) |
Merneið | Ríkisstjóri fyrir Den. | - |
Djet | - | - |
Den | - | 14 til 50 ár |
Anedjib | - | 10 ár (Palermósteinninn) |
Semerket | - | 9 ár (Palermósteinninn) |
Káa | - | 2916?–2890 f.Kr. |