Efsta deild karla í knattspyrnu 1933
(Endurbeint frá Úrvalsdeild 1933)
Árið 1933 var Íslandsmótið í knattspyrnu haldið í 22. skipti. Valur vann sinn 2. titil. Fjögur lið tóku þátt; KR, Fram, Víkingur og Valur.
Sæti | Félag | L | U | J | T | Sk | Fe | Mm | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Valur | 3 | 3 | 0 | 0 | 17 | 3 | +14 | 6 | |
2 | KR | 3 | 2 | 0 | 1 | 11 | 7 | +4 | 4 | |
3 | Fram | 3 | 1 | 0 | 2 | 6 | 8 | -2 | 2 | |
4 | Víkingur | 3 | 0 | 0 | 3 | 0 | 16 | -16 | 0 |
Útskýringar: L = Leikir spilaðir, U = Leikir sigraðir, J = Leikir sem lauk með jafntefli, T = Tapaðir leikir, Sk = Mörk skorðuð, Fe = Mörk fengin á sig, Mm = Markamunur
Töfluyfirlit
breytaAllir leikirnir voru leiknir á Melavellinum
Úrslit (▼Heim., ►Úti) | ||||
Fram | 1-5 | 0-3 | 5-0 | |
KR | 3-6 | 3-0 | ||
Valur | 8-0 | |||
Víkingur |
Fróðleikur
breyta- Í úrslitaleik KR og Vals, 13. júní,[1] slasaðist markvörður Vals, Jón Karel Kristbjörnsson alvarlega eftir samstuð við andstæðing og var borinn af velli í stöðunni 2-2. Inná fyrir hann kom Hermann Hermannsson sem að átti eftir að vera aðalmarkvörður Valsara næstu árin. Valur vann leikinn 6-3 og varð Íslandsmeistari. Jón Karel lést af völdum meiðslanna 4 dögum eftir leikinn, á 22. aldursári.[2][3][4]
- Skoruð voru 34 mörk, eða 5,667 mörk að meðaltali í leik.
Sigurvegari úrvalsdeildar 1933 |
---|
Valur 2. Titill |
Fyrir: Úrvalsdeild 1932 |
Úrvalsdeild | Eftir: Úrvalsdeild 1934 |
Heimild
breyta- ↑ „Slys“. Vísir. 14. júní 1933. bls. 3. Sótt 23. júlí 2022 – gegnum Tímarit.is.
- ↑ „Látinn maður með á liðsmynd“. Morgunblaðið. 28. nóvember 2010. bls. 20. Sótt 23. júlí 2022 – gegnum Tímarit.is.
- ↑ Þorsteinn Ólafsson (1. maí 2015). „Valsmenn heiðra minningu Jóns Karel Kristbjörnssonar“. Valsblaðið. bls. 27. Sótt 23. júlí 2022 – gegnum Tímarit.is.
- ↑ Helgi Hrafn Guðmundsson (4. maí 2013). „Valur-KR upp á líf og dauða“. Lemúrinn. Sótt 23. júlí 2022.
Ytri tenglar
breyta- Stöðutafla á rsssf.com