Árnessýsla
Árnessýsla var ein af sýslum Íslands. Sýslur eru ekki lengur stjórnsýslueiningar á Íslandi, en nafnið er enn notað til að vísa til svæðisins.
Kjördæmi | Suðurkjördæmi |
Sveitarfélög | Skeiða- og Gnúpverjahreppur · Hrunamannahreppur · Bláskógabyggð · Grímsnes- og Grafningshreppur · Sveitarfélagið Ölfus · Sveitarfélagið Árborg · Flóahreppur |
Þéttbýli | Selfoss (8.776 íb.) · Hveragerði (2.200 íb.) · Þorlákshöfn (1.474 íb.) · Flúðir (786 íb.) · Eyrarbakki (581 íb.) · Stokkseyri (510 íb.) · Laugarvatn (183 íb.) |
Póstnúmer | 800, 801, 802, 803, 804, 805, 806, 810, 815, 820, 825, 840, 845 |
Flatarmál | 8.991 km² |
- Sæti | ?? (9 %) |
Mannfjöldi (1. des. 2006) | |
- Alls |
12,294 ?? (4 %) 1,37/km² |
Árnessýsla er staðsett á Suðurlandi milli Þjórsár í austri og Hellisheiðar í vestri en náði þó vestur yfir Svínahraun, niður undir Gunnarshólma. Svæðið einkennist af landbúnaði og ferðaþjónustu, sem eru meginatvinnuvegirnir.
Í neðanverðri sýslunni er Flóinn svonefndi, mýrarsvæði milli Þjórsár, Hvítár (neðar Ölfusár) og strandarinnar. Ofar er þurrlendara og fjallendi inn til landsins. Þingvallavatn, stærsta vatn landsins, er í sýslunni, sem og þekktir ferðamannastaðir eins og Gullfoss, Geysir, Þingvellir og Þjórsárdalur.
Sýslan dregur nafn sitt af eyjunni Árnesi í Þjórsá þar sem þing voru haldin til forna.
Sveitarfélög
breytaÁ svæðinu eru eftirfarandi sveitarfélög (fyrrverandi innan sviga):