63°51′00″N 21°22′00″V / 63.85000°N 21.36667°V / 63.85000; -21.36667

Þorlákshöfn árið 2024

Þorlákshöfn (áður Elliðahöfn) er bær í Sveitarfélaginu Ölfusi í Árnessýslu. Árið 2015 voru 1460 manns með skráða búsetu í bænum.

Þorlákskirkja

Í apríl 1937 keypti Kaupfélag Árnesinga með aðstoð Egils Thorarensens jörðina sem seinna var nefnd Þorlákshöfn af efnamönnum í Reykjavík. Þaðan voru síðan gerðir út nokkrir bátar til fiskveiða, áhugi komst með tíð og tíma á fyrir því að koma upp hafnaraðstöðu á þessu svæði. Til þess að það mætti gerast þurfti að selja land Þorlákshafnar til hins opinbera. Með rekstur á landinu fór Þorlákshafnarnefnd og komst það fljótlega á dagskrá hjá henni að stofna til útgerðarfélags.

Hagur Þorlákshafnar vænkaðist töluvert eftir að ákveðið var á fundi í Selfossbíói, þann 10. júní 1949 að stofna hlutafélagið Meitillinn h.f. með hlutafé frá sveitungum. Hafist var handa við útgerð á fimm vélbátum snemma næsta ár eftir að gengið hafði verið frá kaupum á þeim og 1951 voru 14 manns með skráða búsetu í Þorlákshöfn [1] Geymt 10 mars 2007 í Wayback Machine.

Í dag er leikskóli, grunnskóli, heilsugæslustöð, apótek, bakarí, matvöruverslun, banki, bensínstöð, bókasafn, vínbúð og fl. í bænum.

Tenglar

breyta
   Þessi Íslandsgrein sem tengist landafræði er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.