Viðar Örn Kjartansson

Íslenskur knattspyrnumaður

Viðar Örn Kjartansson er íslenskur atvinnumaður í knattspyrnu sem spilar sem framherji hjá Vålerenga Fotball í Noregi.

Viðar Örn Kjartansson
Viðar Örn Kjartansson.jpg
Upplýsingar
Fullt nafn Viðar Örn Kjartansson
Fæðingardagur 11. mars 1990
Fæðingarstaður    Selfoss, Ísland
Hæð 1.87cm
Leikstaða Framherji
Núverandi lið
Núverandi lið Fáni Noregs Vålerenga Fotball
Númer 24
Yngriflokkaferill
Selfoss
Meistaraflokksferill1
Ár Lið Leikir (mörk)
2006-2008 Fáni Íslands Selfoss 45 (12)
2009 Fáni Íslands ÍBV 17 (2)
2010-12 Fáni Íslands Selfoss 55 (26)
2013 Fáni Íslands Fylkir 22 (13)
2014 Fáni Noregs Vålerenga 29 (25)
2015 Fáni Kína Jiangsu Guoxin-Sainty 28 (9)
2016 Fáni Svíþjóðar Malmö FF 20 (14)
2016-2018 Fáni Ísraels Maccabi Tel Aviv 63 (32)
2018-2019 Fáni Rússlands FC Rostov 8 (0)
2019 Lán→Fáni SvíþjóðarHammarby 14 (7)
2019 Lán→Fáni Rússlands Rubin Kazan 16 (1)
2020 Lán→Fáni TyrklandsYeni Malatyaspor 15 (2)
2020- Fáni NoregsVålerenga 6 (7)
Landsliðsferill2
2006-2007
2008
2014-2018, 2019-
Ísland U17
Ísland U19
Ísland
8 (4)
2 (0)
28 (4)

1 Leikir með meistaraflokkum og mörk
talið í aðaldeild liðsins og
síðast uppfært nóv. 2020.
2 Landsliðsleikir og mörk uppfærð
nóv. 2020.

Viðar Örn er fæddur á Selfossi og spilaði með með félaginu upp alla yngri flokkana ásamt því að spila fyrir meistarflokk liðsins. Viðar hefur einnig spilað fyrir ÍBV, Fylki, norska liðið Vålerenga, ísraelska liðið Maccabi Tel Aviv og kínverska liðið Jiangsu Guoxin-Sainty.

KnattspyrnuferillBreyta

2006-08: SelfossBreyta

Viðar Örn hóf knattspyrnuferilinn hjá uppeldisfélagi sínu Selfoss árið 2006. Hann spilaði sinn fyrsta opinbera meistaraflokks leik gegn Dalvík/Reynir í deildarbikarnum 18. mars 2006, þá nýorðin 16. ára, þegar að hann kom inná sem varamaður á 61. mínútu.[1] Viðar skoraði sín fyrstu mörk fyrir félagið í leik gegn KFS í deildarbikarnum 8. apríl. Hann skoraði tvö mörk í seinni hálfleik eftir að hafa komið inná sem varamaður á 46. mínútu.[2] Viðar spilaði sinn fyrsta leik í íslandsmóti 21. maí 2006 þegar að hann kom inná sem varamaður í leik gegn Völsungi.[3] Viðar spilaði í heildina 12 leiki þetta sumar, flesta sem varamaður, og skoraði 4 mörk. Á lokahófi liðsins í september 2006 var Viðar Örn valinn efnilegasti leikmaður liðsins.[4]

Í febrúar 2007 fór Viðar Örn á reynslu til Leicester City. Ekkert varð úr því að liðið semdi við selfyssinginn þrátt fyrir að menn innan félagsins hafi litist vel á hann.[5] Sumarið 2007 var Viðar Örn farinn að vinna sér inn sæti í byrjunarliðinu hann var þó að mestu varamaður í deildinni en var í byrjunarliðiðinu í öllum bikarleikjum liðsins. Selfoss liðið endaði tímabilið í 2. sæti deildarinnar og vann sér inn sæti í 1. deild.[6] Viðar spilaði 24 leiki og skoraði 4 mörk.

Viðar Örn braut sér leið inní byrjunarlið Selfoss árið 2008. Hann tók þátt í öllum 29 leikjum liðsins, 28 í byrjunarliðinu, í deild, bikar og deildabikar og skoraði í þeim 11 mörk. Selfoss liðið endaði tímabilið í 3. sæti einu stigi á eftir Stjörnunni og rétt missti af sæti í Úrvalsdeildinni.[7] Þrátt fyrir vonbrigðin að komast ekki í Úrvalsdeildina hafði Viðar Örn ástæðu til að fagna en hann var kjörin efnilegasti leikmaður 1. deildar karla af þjálfurum og fyrirliðum liðanna í 1. deildinni.[8]

2009: ÍBVBreyta

Haustið 2008 samdi Viðar Örn við nýliða ÍBV í Úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir fyrirspurnir frá öðrum liðum var ÍBV númer eitt hjá Viðari.[9] Fyrsti keppnisleikur Viðars fyrir ÍBV var gegn Þrótti R. 21. febrúar 2009 í Lengjubikarnum. Viðar var í byrjunarliðinu og skoraði sitt fyrsta mark þegar að hann kom liðinu í 1-0.[10] Viðar Örn hóf íslandsmótið sem byrjunarliðsmaður en eftir erfiða byrjun eyjamanna, 4 töp í fyrstu 4 leikjunum, mátti Viðar þola bekkjarsetu megnið af sumrinu. Í leik gegn FH í 20. umferð íslandsmótsins sleit Viðar krossband eftir samstuð við Gunnar Sigurðsson leikmann FH. Viðar þurfti að undirgangast aðgerð og missti af seinustu tveimur leikjum ÍBV í deildinni.[11] Viðar endaði sumarið sem einn markahæsti leikmaður eyjamanna í öllum keppnum með 6 mörk, þrjú þeirra í Lengjubikarnum.

2010-12: SelfossBreyta

Viðar Örn samdi að nýju við uppeldisfélag sitt Selfoss í maí 2010.[12] Selfyssingar voru þá nýliðar í Úrvalsdeildinni eftir að hafa unnið 1. deildina 2009. Vegna krossbandsslita sumarið áður lék Viðar Örn ekki með selfyssingum fyrr en í 7. umferð íslandsmótsins í útileik gegn Val.[13] Sumarið fór að mestu í það að ná sér að fullu af meiðslunum og spilaði Viðar að mestu sem varamaður. Honum tókst þó að enda sumarið með 12 leiki og 3 mörk en Selfoss endaði sumarið í neðsta sæti deildarinnar og urðu að sætta sig við fall.[14]

Eftir að hafa náð sér að fullu af meiðslunum kom Viðar Örn sterkur inní tímabilið 2011. Hann byrjaði alla leiki liðsins í deild og bikarkeppnum og átti stóran þátt í því að liðið tryggði sér annað sætið í deildinni og sæti í Úrvalsdeildinni 2012.[15] Viðar skoraði 21 mark í 31 leik þar af 16 í deildinni sem að tryggði honum silfurskóinn, þremur mörkum á eftir Sveinbirni Jónassyni leikmanni Þróttar R. en einu marki betur en Hjörtur Hjartarson leikmaður ÍA.[16]

Sumarið 2012 hélt Viðar Örn áfram að skora mörk fyrir Selfoss liðið. Liðið var fallbaráttu allt sumarið og þrátt fyrir góða baráttu endaði liðið í næst neðsta sæti og féll niður í 1. deildina.[17] Vegna smávægilegra hnémeiðsla missti Viðar Örn af nokkrum leikjum í Lengjubikarnum og byrjaði tímabilið á bekknum. Viðar var þó á sínum stað í byrjunarliðinu í 4. umferð gegn Fram og skoraði sitt fyrsta deildarmark það sumar.[18] Hann endaði sumarið með 7 deilarmörk.[19]

2013: FylkirBreyta

Eftir tímabilið 2012 var ljóst að Viðar Örn myndi róa á önnur mið og var þó nokkur áhugi liða í Úrvalsdeildinni. Fljótt var ljóst að tvö lið voru í samkeppni um að semja við leikmanninn, ÍA og Fylkir, en á endanum, eftir að ÍA hafði dregið sig úr viðræðum við Viðar, samdi hann við Fylki í febrúar 2013.[20] Þetta áttu eftir að verða frábær kaup fyrir fylkismenn. Viðar byrjaði vel fyrir sitt nýja félag og skoraði 5 mörk í fyrstu 3 leikjum sínum fyrir félagið.[21] Í deildinni fór Viðar Örn einnig vel af stað og stimplaði sig strax inní baráttuna um gullskóinn með tveimur mörkum í fyrstu tveimur leikjunum. Viðar Örn var efstur með 12 mörk fyrir seinustu umferðina[22] enn þrátt fyrir mark í seinasta leik gegn ÍA þurfti hann að lúta í lægra haldi fyrir Atla Viðari Björnssyni leikmanni FH og Gary Martin leikmanni KR. Allir höfðu þeir skorað 13 mörk en Viðar Örn hafði spilað meira en báðir leikmennirnir og þurfti því að sætta sig við bronsskóinn.[23] Í lok tímabilsins var Viðar Örn valinn leikmaður ársins hjá Fylki ásamt því að vera valin í úrvalslið íslandsmótsins hjá Fótbolti.net.[24][25]

2014: VålerengaBreyta

Strax eftir tímabilið 2013 fór að bera á áhuga að utan í Viðar Örn. Viðar fór til reynslu hjá bæði Vålerenga í Noregi og stórliði Celtic í Skotlandi.[26] Viðar stóð sig vel hjá báðum liðum, skoraði meðal annars þrennu í æfingaleik með Vålerenga.[27] Svo fór að Vålerenga lagði fram 19 milljóna króna tilboð í Viðar Örn sem að Fylkir samþykkti. Viðar gekk í raðir Vålerenga 19. desember 2013.[28] Viðar fór vel af stað með Vålerenga og vann sér fljótt sæti í byrjunarliðinu. Hann skoraði til að mynda þrennu í æfingaleik gegn Strømsgodset og tvö í æfingaleik gegn Stabæk.[29][30] Eftir gott undirbúningstímabil kom Viðar Örn eins og stormsveipur inní norsku úrvalsdeildina og eftir að mótið var hálfnað var Viðar lang markahæsti leikmaður deildarinnar með 13 mörk í 15 leikjum auk þess að hafa skorað 6 mörk í 4 bikarleikjum.[31] Í umferðum 16-23 skoraði Viðar Örn 11 mörk þar á meðal þrennu gegn bæði Viking og Haugesund.[32][33] Þrátt fyrir að skora einungis 1 mark í seinustu 7 umferðunum þá endaði Viðar tímabilið sem lang markahæsti leikmaður deildarinnar með 25 mörk, 10 mörkum betur en næsti maður. Mörkin 25 voru þar að auki félagsmet hjá Vålerenga en fyrra metið var 23 mörk.[34]Viðar endaði tímabilið með 31 mark í 33 leikjum. Viðar Örn sópaði til sín verðlaunum að tímabili loknu auk gullskósins. Hann var valinn besti sóknarmaður ársins í Noregi, Nettavisen valdi hann besta leikmann ársins og Verdens Gang valdi hann í lið ársins.[35]

Mikill áhugi var á Viðar Erni bæði á meðan að leiktímabilinu stóð og eftir það. Tvö tilboð komu inná borð Vålerenga frá þýskum liðum en var þeim báðum hafnað.[36] Einnig var mikill áhugi frá Englandi (Sheffield United), Hollandi (Heerenveen), Frakklandi (Bordeaux og Monakó), Spáni og Rússlandi. Þrátt fyrir áhugan skrifaði Viðar undir nýjan 4ja ára samning í nóvember 2014.[37]

2015: Jiangsu Guoxin-SaintyBreyta

Þrátt fyrir að hafa skrifað undir nýjan samning í nóvember 2014 þá gekk Viðar Örn í raðir kínverska liðsins Jiangsu Guoxin-Sainty í janúar 2015.[38] Kaupverðið var talið vera um 3.5 milljónir evra og var samningurinn til þriggja ára. Viðar fór ágætlega af stað með Jiangsu Guoxin-Sainty og skoraði sitt fyrsta mark 7. mars.[39] Viðar spilaði að mestu í byrjunarliðinu en liðið sigldi lygnan sjó um miðja deild allt tímabilið og endaði í 9. sæti deildarinnar. Liðinu gekk þó mun betur í bikarkeppninni og fór alla leið í úrslita einvígið gegn Shanghai Greenland Shenhua. Eftir 0-0 jafntefli í fyrri leiknum tókst Jiangsu Guoxin-Sainty að tryggja sér sigur í framlengingu í seinni leiknum sem einnig hafði endað með 0-0 jafntefli. Viðar var á sínum stað í byrjunarliðinu í báðum leikjunum, hann hafði skoraði 4 mörk á leið Jiangsu Guoxin-Sainty í úrslita einvígið.[40] Viðar Örn endaði tímabilið með 13 mörk í deild og bikar.

Líkt og veturna á undan var áhugi fyrir Viðar Erni mikill og vegna reglna í Kína um útlendinga höfðu eigendur Jiangsu Guoxin-Sainty hug á að selja Viðar til að losa um fyrir aðra erlenda leikmenn.[41]

2016 : Malmö FFBreyta

Eftir að hafa verið orðaður við nokkur lið, þar á meðal Trabzonspor í Tyrklandi, Wolves á Englandi og AGF í Danmörku,[42] þá gekk Viðar Örn til liðs við Malmö FF 27. janúar 2016.[43] Viðar spilaði sinn fyrsta keppnisleik fyrir liðið í sigri gegn IK Sirius í sænska bikarnum 20. febrúar.[44] Hann skoraði svo sitt fyrsta mark fyrir félagið 28. febrúar í bikarsigri gegn Ängelholms FF.[45]

Maccabi Tel AvivBreyta

Í ágúst 2016 fór Viðar til Maccabi Tel Aviv í Ísrael.

LandsliðsferillBreyta

U-17Breyta

Viðar Örn á að baki 8 leiki með U-17 ára liði Íslands. Hann var í hópnum sem að endaði í 3. sæti í A riðli á Norðurlandamótinu 2006.[46] Viðar var markahæstur íslendingana með 3 mörk í 3 leikjum.[47] Viðar Örn var að auki valin í U-17 hópinn sem að tók þátt í undankeppninni og milliriðlunum fyrir evrópumót U-17 árið 2007.[48] Viðar skoraði 1 mark í undankeppninni gegn Litháen. Liðið toppaði riðilinn sinn í milliriðlunum og komst á lokakeppnina.

U-19Breyta

Viðar Örn var valin í U-19 landsliðið sem spilaði tvo æfingaleiki gegn Norður-Írlandi í september 2008. Báðir leikirnir töpuðust 2-0 og kom Viðar inná sem varamaður í báðum leikjunum.[49][50]

A LandsliðBreyta

Viðar Örn hefur spilað 8 leiki fyrir A-landslið Íslands og skorað 1 mark. Hann var fyrst valin í hópinn fyrir æfingaleiki gegn Austurríki og Eistlandi maí og júní 2014 og spilaði sinn fyrsta leik þegar að hann var í byrjunarliðinu gegn Austurríki 30. maí.[51] Viðar Örn spilaði þrjá leiki í undankeppninni fyrir EM 2016 gegn Tyrklandi heima og úti og Kasakstan heima.[52] Fyrsta landsliðsmark Viðars kom í æfingaleik gegn Sameinuðu arabísku furstadæmunum 16. janúar 2016.

Viðar ákvað að hætta með landsliðinu árið 2018 en sneri svo aftur 2019. Hann skoraði fyrsta mark Íslands á Parken árið 2020 síðan 1967 þegar Hermann Gunnarson skoraði í 14-2 tap.

TölfræðiBreyta

Tölfræði uppfærð 26. apríl 2016.[53][54]

Ísland Deild Bikar Deildabikar Evrópa Heild
Tímabil Lið Deild Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk
2006 Selfoss 2. deild 7 2 1 0 4 2 - - 12 4
2007 16 2 2 0 6 2 - - 24 4
2008 1. deild 22 8 2 2 5 1 - - 29 11
2009 ÍBV Úrvalsdeild 17 2 2 1 5 3 - 24 6
2010 Selfoss 12 3 - - - - - - 12 3
2011 1. deild 22 16 2 1 7 4 - 31 21
2012 Úrvalsdeild 21 7 3 1 3 3 - - 27 11
2013 Fylkir 22 13 3 5 6 5 - 31 23
139 53 15 10 36 20 0 0 190 83
Noregur Deild Bikar Deildabikar Evrópa Heild
Tímabil Lið Deild Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk
2014 Vålerenga Tippeligaen 29 25 4 6 - - - - 33 31
29 25 4 6 0 0 0 0 33 31
Kína Deild Bikar Super Cup Asía Heild
Tímabil Lið Deild Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk
2015 Jiangsu Guoxin-Sainty Chinese Super League 28 9 7 4 - - - - 35 13
28 9 7 4 0 0 0 0 35 13
Svíþjóð Deild Bikar Supercupen Evrópa Heild
Tímabil Lið Deild Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk Leikir Mörk
2016 Malmö FF Allsvenskan 4 0 5 3 0 0 0 0 9 3
4 0 5 3 0 0 0 0 9 3
Leikjaferill Heild 200 87 31 23 36 20 0 0 267 130

VerðlaunBreyta

FélagsliðBreyta

Jiangsu Guoxin-Sainty

  • Bikarmeistari: 2015

TilvísanirBreyta

  1. DB karla 2006: Dalvík/Reynir
  2. DB karla 2006: KFS
  3. 2. deild 2006: Völsungur
  4. Lokahóf 2006
  5. Leicester City 2007
  6. 2. deild 2007
  7. 1. deild 2008
  8. Efnilegastur 2008
  9. ÍBV 2008
  10. DB karla 2009: Þróttur R.
  11. Krossbandslit 2009
  12. Selfoss 2010
  13. Úrvalsdeild 2010: Valur
  14. Úrvalsdeild 2010
  15. 1. deild 2011
  16. Markahæstir 2011
  17. Úrvalsdeild 2012
  18. Úrvalsdeild 2012: Fram
  19. Markahæstir 2012
  20. Fylkir 2013
  21. Lengjubikarinn 2013
  22. Úrvalsdeild 2013
  23. Markahæstir 2013
  24. Lokahóf 2013
  25. Úrvalslið 2013
  26. Vålerenga og Celtic
  27. Þrenna fyrir Vålerenga
  28. Samið við Vålerenga
  29. Æfingaleikur 2014: Strømsgodset
  30. Æfingaleikur 2014: Stabæk
  31. Markaskorun 2014
  32. Þrenna gegn Viking
  33. Þrenna gegn Haugesund
  34. Gullskórinn 2014
  35. Verðlaun 2014
  36. Tilboð frá Þýskalandi
  37. Nýr samningur 2014
  38. Semur við Jiangsu Guoxin-Sainty
  39. Fyrsta markið fyrir Jiangsu
  40. Bikarmeistar í Kína
  41. Áhugi frá Evrópu
  42. Áhugi frá Evrópu 2
  43. Semur við Malmö FF
  44. Fyrsti leikur fyrir Malmö
  45. Fyrsta markið fyrir Malmö
  46. NM 2006
  47. NM 2006: Mörk
  48. EM 2007 hópurinn
  49. Vináttuleikur N-Írland
  50. Vináttuleikur N-Írland 2
  51. Fyrsti landsleikurinn
  52. EM 2016: Undankeppni
  53. Tölfræði Ísland
  54. Tölfræði Útlönd

HeimildaskráBreyta

2006-08: SelfossBreyta

2009: ÍBVBreyta

2010-12: SelfossBreyta

2013: FylkirBreyta

2014: VålerengaBreyta

2015: Jiangsu Guoxin-SaintyBreyta

2016: Malmö FFBreyta

U-17Breyta

U-19Breyta

A LandsliðBreyta

TölfræðiBreyta