Greni
Greni (Picea) er ættkvísl trjáa af Þallarætt (Pinaceae). Í kringum 35 tegundir finnast. Grenitré eru stór tré; verða fullvaxin um 20-60 metrar og hæst yfir 90 metra. Stórvaxnast verður sitkagreni. Grenitegundir vaxa aðallega í norðanverðu tempraða beltinu og barrskógabeltinu.
Rauðgreni (Picea abies)
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Species | ||||||||||||||
Um 35; sjá texta. |
Greni greinast á þann hátt að greinarnar eru í hvirfingu og að könglarnir eru keilulaga. Barrnálarnar (laufin) eru fest stök í spíral á greinarnar, hver nál fest á litlum nabbi á greininni. Barrið fellur af eftir 4 til 10 ár, og eru greinarnar hrjúfar af eftirstandandi nöbbunum, sem gerir það auðgreinanlegt frá skyldum ættkvíslum sem eru með tiltölulega sléttar greinar.
Greni er fóðurjurt lirfa sumra tegunda af Lepidoptera. Þau eru einnig fæða lirfna af (Adelges tegundum).
Í fjöllum Svíþjóðar hafa vísindamenn fundið rauðgrenitré, nefnd Old Tjikko[1] og Old Rasmus[2], sem með rótskeytingu greina hefur náð 9550 ára aldri og hefur verið lýst heimsins elsta þekkta núlifandi tré.[3]
Orðsifjar
breytaOrðið "spruce" á ensku kom úr pólsku Prusy, eftir landinu Prússlandi (svæði sem er nú hluti af Póllandi og Kaliningrad Oblast). Það breyttist í z Prus ("frá Prússlandi") og hljómaði sem "spruce" hjá enskumælandi fólki og var almennt heiti yfir vörur til Englands fluttar af Hansakaupmönnum og vegna þess að tréð var talið hafa komið frá ríkinu Prússlandi.[4][5]
Á Íslandi
breytaGrenitré sem aðallega ræktuð hafa verið á Íslandi eru meðal annars sitkagreni, sitkabastarður, blágreni, rauðgreni og hvítgreni. Sitkagreni og sitkabastarður hafa þó verið mest notuð.[6]. Aðrar tegundir hafa verið reyndar eins og broddgreni, svartgreni, skrápgreni, asíugreni, kínagreni og kákasusgreni.
Tegundir
breytaÞrjátíu og fimm tegundir eru viðurkenndar í heiminum. The Plant List hefur 59 viðurkenndar tegundir.[7]
Grunntegundir:
- Picea breweriana – Klamath-fjöll, norðvestur-Norður Ameríku; staðbundið
- Picea sitchensis – Sitkagreni, Kyrrahafsströnd Norður-Ameríku; stærsta tegundin (að 95 metra há); mikilvæg í skógrækt
- Clade I (Norður og vestur Norður-Ameríka, í barrskógabelti eða hátt í fjöllum)
- Picea engelmannii – Blágreni, mikilvæg í skógrækt
- Picea glauca – Hvítgreni, mikilvæg í skógrækt
- Clade II (um Asíu, fáir einangraðir hópar (populations) í fjallasvæðum Mexíkó, mestmegnis á fjallasvæðum)
- Picea brachytyla – suðvestur-Kína
- Picea chihuahuana – norðvestur-Mexíkó (sjaldgæf)
- Picea farreri – norðaustur-Búrma, suðvestur-Kína (fjöll)
- Picea likiangensis – suðvestur-Kína
- Picea martinezii – norðaustur-Mexíkó (sjaldgæft, í hættu)
- Picea maximowiczii – Japan (sjaldgæf, fjöllum)
- Picea morrisonicola – Taívangreni, Taívan háfjöllum
- Picea neoveitchii – norðvestur-Kína (sjaldgæft, í hættu)
- Picea orientalis – Kákasusgreni , Kákasus, norðaustur-Tyrkland
- Picea purpurea – Purpuragreni, vestur-Kína
- Picea schrenkiana – Asíugreni, fjöll Mið-Asíu
- Picea smithiana – Himalajagreni, vestur-Himalaja, austur-Afghanistan, norður- og norðvestur-Indland
- Picea spinulosa – norðaustur-Indland (Sikkim), austur-Himalaja
- Picea torano – Japan
- Picea wilsonii – Wilsongreni, vestur-Kína
- Clade III (Evrópa, Asía, og Norður-Ameríka, mestmegnis í barrskógum og fjalllendi.
- Picea abies – Rauðgreni, Evrópa; mikilvægt í skógrækt.
- Picea alcoquiana – (P. bicolor) Keilugreni, mið Japan
- Picea alpestris – Alparauðgreni; sjaldgæft, oft talið sem afbrigði af P. abies (og blandast oft við það), en er með einkennandi köngla
- Picea asperata – Skrápgreni, vestur-Kína; nokkur afbrigði
- Picea crassifolia – Munkagreni, Kína
- Picea glehnii – Glitgreni, norður-Japan, Sakhalin
- Picea jezoensis – Japansgreni, norðaustur-Asía, Kamsjatka suður til Japan
- Picea koraiensis – Kóreugreni, Kórea, norðaustur-Kína
- Picea koyamae – Burstagreni, Japan (fjöllum)
- Picea mariana – Svartgreni, norður-Norður-Ameríka
- Picea meyeri – norður-Kína (frá Mongólíu til Gansu)
- Picea obovata – Síberíugreni, norður-Skandinavía, Síbería; oft talið sem afbrigði af P. abies (og blandast oft við það), en er með einkennandi köngla
- Picea omorika – Serbíugreni, Serbía og Bosnía; staðbundið; mikilvægt í ræktun
- Picea pungens – Broddgreni, Klettafjöll, Norður-Ameríka; mikilvægt í ræktun
- Picea retroflexa – Kína
- Picea rubens – Brúngreni, norðaustur Norður-Ameríka; mikilvægt í skógrækt, þekkt sem "Adirondack" í hljóðfæragerð
Tenglar
breyta
Tilvísanir
breyta- ↑ World’s oldest living tree discovered in Sweden[óvirkur tengill]
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 15. ágúst 2010. Sótt 30. janúar 2017.
- ↑ „Swedish Spruce Is World's Oldest Tree: Scientific American Podcast“. 27. maí 2008. Sótt 21. ágúst 2016.
- ↑ Harper, Douglas. „spruce“. Online Etymology Dictionary. Sótt 21. ágúst 2016.
- ↑ Norman Davies, God’s Playground: A History of Poland. Vol. 1: The Origins to 1795 (New York: Columbia University Press: 1984), 29.
- ↑ Grenitegundir Geymt 20 júní 2015 í Wayback Machine Skógrækt ríkisins. Skoðað 31. jan, 2017.
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 7. febrúar 2019. Sótt 30. janúar 2017.