Jerry Bruckheimer
Þessi grein þarfnast hreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Aðalvandamál þessarar greinar: málfar |
Jerome Leon „Jerry“ Bruckheimer (fæddur 21. september 1945) er bandarískur kvikmyndaframleiðandi og sjónvarpsframleiðandi. Þekktustu sjónvarpsseríur hans eru CSI: Crime Scene Investigation, CSI: Miami og CSI: NY. Frægustu kvikmyndir hans eru Beverly Hills Cop myndirnar, Top Gun, The Rock, Con Air, Crimson Tide, Armageddon, Pirates of the Caribbean myndirnar og National Treasure myndirnar.
Jerry Bruckheimer | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Jerome Leon „Jerry“ Bruckheimer 21. september 1945 |
Ár virkur | 1972 - |
Einkalíf
breytaBruckheimer fæddist í Detroit í Michigan og er sonur þýskra innflytjanda sem eru gyðingatrúar.[1] Bruckheimer var aktívur meðlimur í frímerkjaklúbbi og sundhandknattleik. Útskrifaðist með B.A. gráðu í sálfræði frá Arizonaháskóla með algebru sem aukafag og var meðlimur í Zeta Beta Tau bræðralaginu. Bruckheimer hefur verið áhugasamur um kvikmyndir frá unga aldri ásamt áhuga á ljósmyndun og tók oft tækifærismyndir þegar hann hafði tíma. Eftir nám þá fluttist Bruckheimer til Chicago þar sem hann vann í póstdeild hjá auglýsingafyrirtæki. Á endanum, þá dróst Bruckheimer inn í auglýsingaframleiðslu þegar hann fékk tækifæri til þess að framleiða kvikmynd. Því næst þá flutti hann til Los Angeles.
Bruckheimer hefur verið giftur tvisvar sinnum: Bonnie Bruckheimer og saman eiga þau einn son. Býr hann í Burbank með seinni eiginkonu sinni, skáldsagnahöfundinum Linda Bruckheimer. Á hann eina stjúpdóttur, Alexöndru. Eiga þau búgarð í Bloomfield í Kentucky, suðaustur af Louisville í Kentucky, heimabæ Lindu Bruckheimers, sem og annan í Ojai, suður af Santa Barbara.[2]
Kvikmyndafyrirtæki hans, Jerry Bruckheimer Films, er staðsett við 1631 10th Street í Santa Monica í Kaliforníu.
Trú
breytaÞegar hann er spurður um andlega viðleitni hefur Bruckheimer sagt að Guð sé honum mikilvægur og er sá „sem sér um þau gæði sem við þurfum öll á og horfum upp til“. Einnig hefur hann sagt að eiginkona hans Linda haldi honum jarðbundnum.[3]
Hjálparstarfssemi
breytaBruckheimer styður bardagann gegn MS-sjúkdómnu gegnum The Nancy Davis Foundation fyrir MS-sjúklinga. Þar að auki þá hefur hann ákveðið að skuldbinda sig til þess að hjálpa mismunandi málstöðum gegnum Jerry Bruckheimer Foundation.[4] Seinast sem Jerry Bruckheimer Foundation gaf framlag var árið 1995, þegar gefið var $9.350 handa Van Nuys prep school.[5]
Bruckheimer hefur hjálpað til við að lagfæra hið sögulega skip Cutty Sark, sem er í líkingu við skipin sem sjást í Pirates of the Caribbean myndunum. Safn af ljósmyndum eftir Bruckheimer var sýnt í nóvember 2007 í London til þess að afla peninga fyrir Cutty Sark verkefnið. Sýningin innihélt yir 30 myndir sem voru teknar við upptökur á Pirates of the Caribbean: At World's End.[6]
Stjórnmál
breytaBruckheimer er einn af fáum Hollywood fólki sem studdi George W. Bush forseta opinberlega. Gaf hann peninga í kosningabaráttu Johns McCain. Árið 2007 var greint frá því að hann hafði gefið allt að 29% af hans $20.700 í framlag til frambjóðenda repúblikana.[7] Bruckheimer hefur gefið allt að $50.000 til baráttu Repúblikanaflokksins og nefnda.[8]
Íþróttaeignir
breytaBruckheimer hefur verið nefndur sem einn af fjárfestum í hinum nýja leikvangi í Las Vegas og er talinn vera í lykilhlutverki hjá National Hockey League í því að eiga íshokkílið sem myndi spila á leikvanginum.[9]
Tónlist
breytaÁ meðan Jerry var við nám í UA, þá byrjaði hann tónlistarferil Manny Freiser, með upptökum af Let's Talk About Girls og Cry A Little Longer sem voru talin vera fyrirrennarar pönks og nýbylgjunnar á níunda áratugnum.
Kvikmyndaframleiðsla
breytaÁrið 2010 hafði Bruckheimer framleitt yfir 40 kvikmyndir og er talinn vera einn sá farsælasti kvikmyndaframleiðandi allra tíma í bransanum.
Sjöundi áratugurinn
breytaBruckheimer byrjaði að framleiða kvikmyndir á sjöunda áratugnum, eftir að hafa yfirgefið auglýsingavinnu sína með leikstjóranum Dick Richards. Framleiddu þeir kvikmyndir á borð við The Culpepper Cattle Company, Farewell, My Lovely og +March or Die. Bruckheimer vann síðan með Paul Schrader að tveimur myndum, American Gigolo og Cat People, sem kom honum á kortið í Hollywood.
Níundi-Tíundi áratugurinn
breytaMilli níunda og tíunda áratugarins var Jerry meðframleiðandi með Don Simpson að nokkrum að vinsælustu myndum Hollywoods fyrir Paramount Pictures. Kynntist hann Don við sýningu á myndinni The Harder They Come frá 1973. Gerðu þeir saman Flashdance fyrstu vinsælustu kvikmynd Bruckheimers frá 1983.[10]. Eftir hana þá fylgdu myndir á borð við Beverly Hills Cop myndirnar, Top Gun og Days of Thunder.
Á meðan hann vann með Simpson þá varð Bruckheimer þekktur sem „Mr. Outside“ vegna reynslu hans í kvikmyndagerð en Simpson var þekktur sem „Mr. Inside“ vegna tengsla sinna í kvikmyndaiðnaðinum. The Rock var seinasta mynd þeirra sem þeir framleiddu saman vegna dauða Simpsons. Bruckheimer tilheyrði The Rock minningu Simpson (sem sjá má í enda myndarinnar).
Þrátt fyrir lát Simpsons árið 1996, hélt Bruckheimer áfram að framleiða stórar spennumyndir, oft með leikstjóranum Michael Bay meðal þeirra eru Armageddon. Aðrar vinsælar myndir sem hann gerði eru Remember the Titans, Black Hawk Down og Pirates of the Caribbean myndirnar.
Eitt helsta aðalvörumerki hans í kvikmyndum er þegar „bíl er snúið við í spennusenu“.
Hefur hann fengið rétt til þess að framleiða kvikmynd byggða á hinum vinsæla leik eftir Palladium Books, Rifts.
Sjónvarpsframleiðsla
breytaSnemma á ferli sínum þá framleiddi Bruckheimer sjónvarpsauglýingar, þar á meðal eina fyrir Pepsi. Frá árinu 1997 þá hefur hann fært út kvíarnar í sjónvarpi, með því að framleiða lögregludrama á borð við CSI: Crime Scene Investigation sem er vinsælasti þáttur hans til þessa. Hefur hann einnig framleitt raunveruleikaþáttinn The Amazing Race. Í maí 2008 tilkynnti CBS að þeir höfðu tekið upp nýjustu seríu Bruckheimers, Eleventh Hour', fyrir tímabilið 2008–2009. Er þetta vísindasögu drama sem fylgir eftir ríkisfulltrúa og prófessor sem rannsaka vísindaleg og lækna starfssemi. Aðein ein þáttaröð var gerð áður en hætt var við framleiðslu.[11] Á einum tímapunkti þá var Bruckheimer með sex sjónvarpsseríur í framleiðslu: CSI: Crime Scene Investigation, CSI: Miami, CSI: NY, Cold Case, The Amazing Race, Dark Blue og The Forgotten. Einnig voru þrír sjónvarpsþættir sem hann framleiddi á top 10 lista yfir mesta áhorf – sem er mjög einstakt í sjónvarpi.[12] Þann 10. september 2009 tilkynnti NBC að þeir hefðu tekið upp spennuþátt frá Jerry Bruckheimer að nafni Chase. Aðeins ein þáttaröð var framleidd af þættinum. [13]
Fjárhagsleg velgengni
breytaEinn af farsælustu framleiðundum allra tíma, Bruckheimer er oft nefndur „Mr. Blockbuster“, vegna þess hversu góða velgengni myndir hans hafa verið markaðslega séð. Þegar á heildina er litið þá hafa myndir hans tekið inn í kringum $13 milljarða til Hollywood[14], og hefur komið mörgum leikurunm og leikstjórum á kortið í Hollywood. Árið 2007 þá var hann skráður í 39. sæti á lista Forbes yfir Forbes Celebrity 100 og færðist upp frá 42. sæti síðan 2006. Með ársinnkomu í kringum $120 milljónir[15],
Tekjuhæstu kvikmyndir
breytaÍ júlí 2003 þá var Bruckheimer heiðraður af tímaritinu Variety sem fyrsti framleiðandinn í sögu Hollywood til þess að hafa tvær tekjuhæstu myndir sömu helgina, lögreglu-grínmyndina Bad Boys II og Disney-sjóræningja myndina , Pirates of the Caribbean: The Curse of the Black Pearl. Pirates of the Caribbean myndirnar, framleiddar gegnum Walt Disney Pictures voru mjög tekjuháar og sýnir það hæfileika Bruckheimers í að finna góð verkefni. Pirates of the Caribbean: The Curse of the Black Pearl, var fyrsta myndin og varð mjög vinsæl meðal áhorfenda og fékk góða umfjöllun gagnrýnenda sem og almennings. Eftir velgegni fyrstu myndarinnar, þá tilkynnti Walt Disney Pictures að framhaldsmynd væri í framleiðslu. Pirates of the Caribbean: Dead Man's Chest var frumsýnd 7. júlí 2006. Framhaldsmyndin varð jafn vinsæl og braut met á alþjóðavísu þegar hún var frumsýnd. Í lokin þá halaði hún inn $1.066.179.725 á alþjóðavísu og varð þriðja og fljótasta myndin til þess að ná þessari upphæð. Seinasta myndin í trílogíunni,Pirates of the Caribbean: At World's End var frumsýnd 25. maí 2007. Samanlagt þá hafa myndirnar halað inn um $2,79 milljarða á alþjóðavísu. Í 19 ár þá hafði myndin Beverly Hills Cop (talin hafa tekið inn $234 milljónir) frá 1984 verið tekjuhæsta mynd Bruckheimers þangað til 12. ágúst 2003 en þá var henni ýtt niður í annað sæti af Pirates of the Caribbean: The Curse of the Black Pearl, síðan í þriðja sæti af Pirates of the Caribbean: Dead Man's Chest og að lokum í fjórða sæti af Pirates of the Caribbean: At World's End.
Viðurkenningar og verðlaun
breytaRitsjórar Entertainment Weekly settu Bruckheimer í fyrsta sæti sem áhrifamestu persónu í Hollywood árið 2003. Var hann í tíunda sæti hjá tímaritinu Premiere árið 2006 yfir „Power 50“-lista þeirra og var í tíunda sæti árið 2005. Var hann í nítjánda sæti hjá Premiere árið 2003 í hinum árlega Hollywood Power List og var í 22. sæti árið 2002.
Kvikmyndir hans hafa verið verðlaunaðar með 35 Óskartilnefningum (fimm verðlaun), átta Grammy-tilnefningar (fimm verðlaun), 23 Golden Globe-tilnefningar (fjögur verðlaun), 30 Emmy Awards-tilnefningar (sex verðlaun), átta People's Choice Awards-tilnefningar (fjögur verðlaun) og nokkur MTV Movie Awards-verðlaun, þar á meðal besta mynd áratugsins[14].
Bruckheimer fékk ShoWest Producer of the Year Award árið 1998 og árið 2000 Producers Guild of America heiðruðu hann með David O. Selznick Award for Lifetime Achievement.
Í maí 2006 fékk heiðursdoktorsgráðu í listum (DFA) við University of Arizona's College of Fine Arts.
Skoðanir á kvikmyndum
breytaÞegar hann er spurður hverjar eru uppáhaldsmyndir hans eru, þá nefnir hann The Godfather frá 1972, The French Connection frá 1971, Good Will Hunting frá 1997 og The 400 Blows.[12]
- „Við eru í flutningsbransanum. Við flytjum áhorfendur frá einu stað til annars“. — Bruckheimer á skyldu kvikmyndaiðnaðarins til áhorfenda.
- „Ef ég gerði kvikmyndir fyrir gagnrýnendur eða fyrir einhvern annan, þá myndi ég örugglega búa í lítilli stúdíóíbúð í Hollywood“. — Jerry Bruckheimer um af hverju hann býr til kvikmyndir[4]
Framleiðandi
breytaKvikmyndir
breytaSjónvarp
breytaSjónvarpsmyndir
breyta- Fearless (2004) (meðframleiðandi, framleiðslustjóri)
- Swing Vote (1999) (framleiðslustjóri)
- Max Q (1998) (framleiðslustjóri)
Raunveruleikaþættir
breyta- The Amazing Race (2001– til dags) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Take the Money and & Run (2011) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- The Amazing Race - Australia (2011) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
Grín
breyta- Modern Men (2006) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
Drama
breyta- Chase (2010) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- The Whole Truth (2010) sjónvarssería (framleiðslustjóri)
- Miami Medical (2010) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- The Forgotten (2009-2010) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Dark Blue (2009-2010) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Eleventh Hour (2008-2009) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Justice (2006) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- E-Ring (2005–2006) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Close to Home (2005-2007) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Just Legal (2005–2006) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- CSI: NY (2004– til dags) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Skin (2003) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Cold Case (2003–2010) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Profiles from the Front Line (2003) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Without a Trace (2002–2009) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- CSI: Miami (2002–2012) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- CSI: Crime Scene Investigation (2000– til dags) sjónvarpssería (framleiðslustjóri)
- Soldier of Fortune, Inc. (1997–1998) TV Series (framleiðslustjóri)
Kynningarþættir
breyta- The Legacy var tekinn upp fyrir UPNs 2002-2003 tímabilið, skrifað af Simon Kinberg og leikstýrt af Jim Gillespie.[16] The Legacy er vísindasögu drama sem fjallar um ungan aðstoðar saksóknara Sam (Matthew Marsden) sem erfir ofurkraft og verður hagræða það kringum vinnu sína og kærustu sína Jess.
- HBO sjónvarpssería byggð á Cocaine Cowboys er í vinnslu, með Jerry Bruckheimer, Michael Bay, Alfred Spellman og Billy Corben sem framleiðslustjóra. Mun það snúast í kringum fyrstu dagana í kringun kókaínviðskiptin í Miami, og mun vera framleitt af Warner Bros. Television, þar sem Jerry Bruckheimer sjónvarpið er staðsett.
Verðlaun og tilnefningar
breytaAFI-verðlaunin
- 2002: Tilnefndur fyrir bestu mynd ársins fyrir Black Hawk Down ásamt Ridley Scott.
Emmy-verðlaunin
- 2012: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2011: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2010: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2009: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2008: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2007: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2006: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2005: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2004: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2004: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta dramaþátt fyrir CSI: Crime Scene Investigation.
- 2003: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2003: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta dramaþátt fyrir CSI: Crime Scene Investigation.
- 2002: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta dramaþátt fyrir CSI: Crime Scene Investigation.
National Board of Review
- 2004: Framleiðanda verðlaunin.
PGA-verðlaunin
- 2013: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2012: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2010: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2009: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2008: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2007: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2007: Lifetime Achievement verðlaunin í sjónvarpi.
- 2006: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2006: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2005: Verðlaun sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2004: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta raunveruleika keppnisþátt fyrir The Amazing Race.
- 2004: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta dramaþátt fyrir CSI: Crime Scene Investigation.
- 2003: Tilnefndur sem framleiðandi fyrir besta dramaþátt fyrir CSI: Crime Scene Investigation.
- 2000: Lifetime Achievement verðlaunin í kvikmyndum.
Razzie-verðlaunin
- 1999: Tilnefndur fyrir verstu kvikmyndina fyrir Armageddon.
Rembrandt-verðlaunin
- 2008: Besta alþjóðlega kvikmyndin fyrir Pirates of the Caribbean: At World´s End.
- 2007: Besta alþjóðlega kvikmyndin fyrir Pirates of the Caribbean: Dead Man´s Chest.
ShoWest Convention
- 2010: Lifetime Achievement verðlaunin.
- 1999: Framleiðandi ársins veriðlaunin.
- 1998: Aþjóðlegu Box Office Achievement verðlaunin.
Tilvísanir
breyta- ↑ http://www.thestar.com/entertainment/article/287485
- ↑ „You Can Go Home Again“. Afrit af upprunalegu geymt þann 15. nóvember 2013. Sótt 13. október 2009.
- ↑ YouTube - Jerry Bruckheimer Talks About Spirituality
- ↑ 4,0 4,1 „AskMen.com - Top 49 Men: Jerry Bruckheimer“. Afrit af upprunalegu geymt þann 23. maí 2009. Sótt 13. október 2009.
- ↑ „The Smoking Gun: Celebrity Charity Review“. Afrit af upprunalegu geymt þann 17. október 2007. Sótt 13. október 2009.
- ↑ „Cutty Sark - Press & Publicity > 23 Nov 07 Cutty Sark's Hollywood photo exhibition“. Afrit af upprunalegu geymt þann 24. júlí 2009. Sótt 13. október 2009.
- ↑ Progressive Values: There's A few Surprise Republican Leaning Celebrity Donors Out There
- ↑ „Geymd eintak“. Afrit af upprunalegu geymt þann 16. janúar 2013. Sótt 13. október 2009.
- ↑ lasvegassun
- ↑ Jerry Bruckheimer - Trailer - Showtimes - Cast - Movies - New York Times
- ↑ Adalian, Josef. „CBS Picks Up 4 New Dramas, 2 Comedies“ Geymt 16 október 2013 í Wayback Machine. TV Week, maí 2008. Skoðað 27. ágúst 2009.
- ↑ 12,0 12,1 Galloway, Stephen. „Jerry Bruckheimer, producer“. The Hollywood Reporter, 17. nóvember 2003. Skoðað 27. ágúst 2009.
- ↑ Natalie Abrams (10. september 2009). „NBC Green-lights Bruckheimer Pilot“. TVGuide.com. Afrit af upprunalegu geymt þann 15. september 2009. Sótt 11. september 2009.
- ↑ 14,0 14,1 Jerry Bruckheimer @ Filmbug
- ↑ #39 Jerry Bruckheimer - Forbes.com
- ↑ „The Legacy“. IMDb.
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „Jerry Bruckheimer“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 13. október 2009.
- Jerry Bruckheimer á IMDb
Tenglar
breyta- Heimasíða Jerry Bruckheimer Films
- Jerry Bruckheimer á IMDb
- Viðtal við Jerry Bruckheimer Geymt 28 júní 2008 í Wayback Machine
- YouTube: Jerry Bruckheimer og Michael Eisner ræða Pirates of the Caribbean.