CSI: NY
CSI: NY (Crime Scene Investigation: New York) er bandarískur sjónvarpsþáttur sem fylgir eftir réttarrannsóknarmönnum New York borgar og rannsóknum þeirra. Þátturinn var þróaður af Anthony E. Zuiker, Carol Mendelsohn og Ann Donahue.
CSI: NY | |
---|---|
Einnig þekkt sem | CSI: NY |
Tegund | Lögreglu réttarrannsóknir, Drama |
Þróun | Anthony E. Zuiker, Carol Mendelsohn, Ann Donahue |
Leikarar | Gary Sinise Sela Ward Carmine Giovinazzo Anna Belknap Robert Joy A.J. Buckley Hill Harper Eddie Cahill Melina Kanakaredes Vanessa Ferlito |
Upprunaland | Bandaríkin Kanada |
Frummál | Enska |
Fjöldi þáttaraða | 9 |
Fjöldi þátta | 195 |
Framleiðsla | |
Staðsetning | New York |
Lengd þáttar | 40-45 mín |
Útsending | |
Upprunaleg sjónvarpsstöð | CBS |
Myndframsetning | 480i (SDTV) 1081i (HDTV) |
Sýnt | 22. september 2004-22. febrúar 2013 – |
Tenglar | |
Vefsíða | |
IMDb tengill |
Framleiddar voru níu þáttaraðir og var fyrsti þátturinn sýndur 9. maí 2002 í þætti af CSI: Miami. CSI: NY er systur þáttaröð CSI: Crime Scene Investigation og CSI: Miami.
Framleiðsla
breytaFramleiðendur
breytaÞátturinn var framleiddur í samvinnu við kanadíska fjölmiðlafyrirtækið Alliance Atlantis og CBS Television Studios, en er núna aðeins framleiddur af CBS Television Studios.
Þann 10. maí 2013, tilkynnti CBS að þátturinn hafi verið aflýst.[1]
Tökustaðir
breytaInnisenur eru teknar upp í CBS Studio Center í Los Angeles, Kaliforníu. Margar útisenur eru teknar upp í miðbæ Los Angeles sem líkjast hverfum New York. Yfirlitstökur og útitökur eru teknar í sjálfri New York borginni þegar á við. [2]
Söguþráður
breytaÞátturinn fylgir eftir New York réttarrannsóknar liði sem notar nýjustu tækni við rannsókn glæpamála. CSI liðið er stýrt af Rannsóknarfulltrúanum Mac Taylor (Gary Sinise) sem lifir fyrir vinnuna sína og er fyrrum sjóliði sem tók þátt í flugskeytaárás á Írak. Telur hann að allt sé tengt og allir hafi sögu að segja. Nýjasti meðlimur liðsins er Rannsóknarfulltrúinn Josephine “Jo‘‘ Danville (Sela Ward) frá Washington DC. Drifkraftur hennar er umhyggja fyrir fórnarlömbum. Auk þeirra eru í liðinu Danny Messer (Carmine Giovinazzo), sem er hress, en á erfiðleika heima fyrir, sem að hann notar mikið í starfi sínu. Messer var handvalinn af Mac í liðið og reynir hann að standast þann heiður og ábyrgð á hverjum degi. Sheldon Hawkes (Hill Harper) er fyrrverandi réttarlæknir liðsins sem færði sig yfir í rannsóknarstofuna. Ásamt þeim er Don Flack (Eddie Cahill), harður en virtur rannsóknarlögreglumaður með góðan húmor og úr fjölskyldu sem hefur mestöll unnið við lögreglustörf. Lindsay Monroe Messer (Anna Belknap), ung og virk CSI rannsóknarkona frá Montana sem er tilbúin að taka hvaða starf að sér en er hlédræg þegar kemur að upplýsa um leyndarmál sitt sem fékk hana til að taka að sér starfið. Lindsay og Danny eru gift og eina dóttur, Lucy. Aðstoðarmenn liðsins eru rannsóknarstofurottan Adam Ross (A.J. Buckley) og hinn sérvitri réttarlæknir Dr. Sid Hammerback (Robert Joy).
Söguþráðs skipti
breytaCSI: NY var gerður út frá þætti í annarri þáttaröð af CSI: Miami titlaður MIA/NYC Nonstop sem var frumsýndur 17. maí 2004. Í þeim þætti fer Horatio til NY í leit sinni að morðingja sem drap foreldra ungrar stúlku.
CSI: NY hafði önnur söguþráðs skipti í seríu tvö í þættinum, Manhattan Manhunt þegar Henry Darius flýr til New York og Horatio fylgir Mac til þess að klára rannsóknina. Áður hafði Mac Taylor komið til til Miami til að aðstoða Horatio í að elta uppi Henry Darius í CSI: Miami þættinum Felony Flight.
Í þriðju seríunni í þættinum Cold Reveal hafði CSI: NY söguþráðs skipti við Cold Case þegar rannsóknarfulltrúinn Scotty Valens ferðast til NY til að rannsaka gamalt morðmál tengt Stellu. Þetta er fyrsti þátturinn sem persónur úr öðrum þáttum en CSI veldinu hafa söguþráðs skipti í CSI-þætti.
Í seríu sex, hefur CSI: NY þriggja hluta söguþráðs skipti við CSI: Crime Scene Investigation og CSI: Miami með Laurence Fishburne sem Raymond Langston í aðalhlutverki.[3]
Í seríu níu, hefur CSI: NY söguþráðs skipti við CSI: Crime Scene Investigation. Í CSI þættinum In Vino Veritas ferðaast Mac til Las Vegas til að hitta Christine kærustu sína, nema hann kemst að því að hún er týnd. Í CSI: NY þættinum Seth and Apep þá ferðast Mac og D.B. Russell til New York í leit sinni að Christine.
Leikaraskipti
breytaLeikkonan Vanessa Ferlito yfirgaf þáttinn eftir aðra þáttaröðina og í staðinn kom leikkonan Anna Belknap í byrjun þriðju þáttaraðar. Í lok sjöttu þáttaraðarinnar þá yfirgefur leikkonan Melina Kanakaredes þáttinn og í staðinn kom leikkonan Sela Ward.
Persónur
breytaLeikari | Persóna | Starf | Sería | ||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | |||
Gary Sinise | Mac Taylor | CSI Stig 3 / Yfirmaður CSI deildarinnar | Aðal | ||||||||
Sela Ward | Josephine "Jo" Danville | CSI Stig3 /Aðstoðaryfirmaður deildarinnar | Aðal | ||||||||
Carmine Giovinazzo | Danny Messer | CSI Stig 3 | Aðal | ||||||||
Anna Belknap | Lindsay Messer | CSI Stig 3 | Aðal | ||||||||
Robert Joy | Dr. Sid Hammerback | Yfir réttarlæknir | Auka | Aðal | |||||||
A.J. Buckley | Adam Ross | Sérfræðingur á rannsóknarstofuni | Auka | Aðal | |||||||
Hill Harper | Dr. Sheldon Hawkes | CSI Stig 2 | Aðal | ||||||||
Eddie Cahill | Donald "Don" Flack | NYPD Rannsóknarfulltrúi | Aðal | ||||||||
Vanessa Ferlito | Aiden Burn | CSI Stig 2 | Aðal | ||||||||
Melina Kanakaredes | Stella Bonasera | CSI Stig 3/Aðstoðaryfirmaður deildarinnar | Aðal |
Aðalpersónur
breyta- CSI yfirmaður: Rannsóknarfulltrúinn Mac Taylor er yfirmaður New York rannsóknarstofunnar. Fæddur og uppalinn í Chicago þar sem hann hugðist ganga til liðs við lögregluna þar en ákvað frekar að ganga til liðs við NYPD lögregluna. Missti eiginkonu sína Claire Conrad Taylor í árásunum 11.september, 2001, sem hefur enn áhrif á hann. Veldur það oft svefnleysi hjá honum, vitað er að hann geymir blöðru/bolta inn í skáp hjá sér sem inniheldur andardrátt konu sinnar. Var Majór í bandaríska sjóhernum og er mjög stoltur af því að hafa sinnt þjónustu sinni fyrir landið sitt.
- CSI Stig 3 aðstoðar yfirmaður: Rannsóknarfulltrúinn Josephine (Jo) Danville kemur frá Virginíu sem vann áður hjá Bandarísku Alríkislögreglunni (FBI). Starfsreynsla hennar tengist DNA rannsóknum og sjónarmið hennar er að allir eru saklausir þangað til vísindin segja annað. Hefur bakrunn í atferlisfræði. Á ættleidda dóttur og á fyrsta vinnudeginum sínum í NY þá labbaði hún fram á lík af ungri konu.
- CSI Stig 3: Danny Messer aldist upp í NY hjá fjölskyldu sem var alltaf undir smásjánni af lögreglunni. Hefur hann notað hæfileika sína beggja vegna laganna. Átti stuttan tónlistarferil og var einu sinni frábær hafnarboltaleikmaður.
- CSI Stig 3: Lindsay Monroe Messer vann áður sem CSI í Montana og uppfyllti loks draums sinn að vinna við NY rannsóknarstofuna. Var fórnarlamb alvarlegs glæps tíu árum áður en hún flutti til NY sem ýtir henni áfram í starfinu sínu.
- Yfir réttarlæknirinn: Dr. Sid Hammerback er réttarlæknir og er oft sýndur sem ofur-gáfaðu sérvitringur sem ákvað að verða réttarlæknir í stað þess að vera kokkur. Á það til að tala mikið og segja of mikið frá, sem Sheldon Hawkes kallar að verða óhugnarlegur. Þrátt fyrir þessar sérvitranir þá hugsar hann vel um samstarfsmenn sína.
- Sérfræðingur á rannsóknarstofunni: Adam Ross er frá Phoenix, Arizona og sérhæfir sig í snefilefnum. Aðstoðar hann oft CSI liðið á vettvangi við söfnun sönnunargagna eða við endursköpun glæpsins.
- CSI Stig 2: Dr. Sheldon Hawkes er fyrrverandi réttarlæknir hjá NY skrifstofunni. Hann var barn snillingur og útskrifaðist úr háskóla 18 ára gamall og skurðlæknir aðeins 24 ára.
- NYPD Rannsóknarfulltrúinn: Donald (Don) Flack Jr., kemur frá fjölskyldu lögreglumanna. Hann tileinkar sér bæði gamlar og nýjar lögregluaðferðir. Hann hefur mikinn húmor en hefur enga þolinmæði fyrir afbrotamönnum. Aðferðir hans eru taldar vera á mörkum velsæmis, en samt áhrifaríkar. Hann og Danny eru mjög góðir vinir og aðstoða hvorn annan mikið í starfi og í einkalífinu.
Fyrrverandi persónur
breyta- CSI Stig 3 Aðstoðar umsjónarmaður: Stella Bonasera þykir mjög vænt um starf sitt vegna sterks persónuleika og hversu ákveðin hún er í fari sínu. Er hálf-grísk og hálf-ítölsk og ólst upp hjá mismunandi fósturfjölskyldum eftir andlát móður sinnar í bílslysi, einungis tveggja ára að aldri. Vegna þess að leikkonan Melina Kanakaredes skrifaði ekki undir nýjan samning fyrir seríu 7, þá er Stella flutt til New Orleans sem hinn nýji yfirmaður CSI liðsins þar.
- CSI Stig 3: Aiden Burn er frá Brooklyn, NY og er fljótt að koma sér fyrir við nýjar aðstæður. Er rekin í seríu 2 eftir að upp kemst að hún falsaði sönnunargögn í nauðgunarmáli sem hafði haft mikil áhrif á hana. Var síðan myrt og brennd af nauðgaranum DJ. Pratt sem hún hafði lengi verið að fylgjast með.
Þáttaraðir
breytaPilot - CSI NY
breyta- Titill= MIA/NYC Nonstop
- Höfundur= Anthony E. Zuiker, Ann Donahue og Carol Mendelsohn
- Leikstjóri= Danny Cannon
- Dagur= 17. maí 2004
- Þáttur nr= 1
- Framl. nr.= 223
Ung stúlka kemur heim eftir partýstand og finnur foreldra sína myrta, rannsóknin leiðir Horatio til New York í leit sinni að morðingjanum. Í NY hittir Horatio, Mac Taylor yfirmann CSI rannsóknarstofunnar í NY sem er að rannsaka morð á leynilögreglumanni, sem virðist vera aðalsökudólgurinn í máli Horatio í Miami. Rannsókn á morði lögreglumannsins leiðir í ljós að hefur verið látinn í 72 tíma og gat ekki verið í Miami þegar morðin áttu sér stað. Við frekari rannsókn komast Horatio og Taylor að því að hinn raunverulegi morðingi hafi drepið lögreglumanninn og notað nafn hans til þess að fara til Miami og er enn ófundinn.
Fyrsta þáttaröð
breytaÖnnur þáttaröð
breytaÞriðja þáttaröð
breytaFjórða þáttaröð
breytaFimmta þáttaröð
breytaSjötta þáttaröð
breytaSjöunda þáttaröð
breytaÁttunda þáttaröð
breytaNíunda þáttaröð
breytaVerðlaun og tilnefningar
breytaAmerican Society of Cinematographers
- 2005: Tilnfendur fyrir bestu kvikmyndatökuna fyrir A Man A Mile – Chris Manley.
BMI Film & TV verðlaunin
- 2009: Verðlaun fyrir bestu tónlistina – Pete Townshend og Bill Brown.
- 2008: Verðlaun fyrir bestu tónlistina – Peter Townshend og Bill Brown.
- 2005: Verðlaun fyrir bestu tónlistina – Peter Townshend og Bill Brown.
Emmy verðlaunin
- 2011: Tilnefndur fyrir bestu hljóðklippingu Life Sentence – Mark Relyea, David Barbee, James Bailey, Joseph T. Sabella, Kevin McCullough, Edmund J. Lachmann, Ruth Adelman og Joshua Winget.
- 2009: Tilnefndur sem besti gestaleikari í dramaseríu – Edward Asner.
- 2008: Tilnefndur fyrir bestu áhættuleikstjórn fyrir Playing with Matches – Norman Howell.
- 2007: Tilnefndur fyrir bestu áhættuleikstjón fyrir Sleight Out Of Hand – Norman Howell.
- 2006: Tilnefndur fyrir bestu förðunina (ekki-gervi) fyrir Wasted – Perri Sorel, Rela Martine, James MacKinnon og John Goodwin.
Image verðlaunin
- 2011: Tilnefndur sem besti leikari í dramaseríu – Hill Harper.
- 2010: Verðlaun sem besti leikari í dramaseríu – Hill Harper.
- 2009: Verðlaun sem besti leikari í dramaeríu – Hill Harper.
- 2008: Verðlaun sem besti leikari í dramaseríu – Hill Harper.
- 2007: Tilnefndur sem besti leikari í dramaseríu – Hill Harper.
- 2006: Tilnefndur sem besti leikari í dramaseríu – Hill Harper.
- 2005: Tilnefndur sem besti leikari í dramaseríu – Hill Harper.
Motion Picture Sound Editors
- 2010: Tilnefndur fyrir bestu hljóðklippingu í stuttu talformi og ADR fyrir Manhattanhenge.
- 2010: Tilnefndur fyrir bestu hljóðklippingu í stuttu talformi og ADR fyrir Manhattanhenge – Edmund J. Lachmann, Ruth Adelman og Mark Relyea.
- 2010: Tilnefndur fyrir bestu hljóðklippingu í stuttu hljóðbrelluformi og Foley fyrir Cuckoo´s Nest.
- 2010: Tilnefndur fyrir bestu hljóðklippingu í stuttu hljóðbrelluformi og Foley fyrir Cuckoo´s Nest – Mark Relyea, James Bailey, Kevin McCullough, David Barbee og Joseph T. Sabella.
- 2009: Tilnefndur fyrir bestu hljóðklippingu í stuttu talformi og ADR fyrir Hostage – George Haddad, Edmund J. Lachmann og Ruth Adelman.
- 2007: Tilnefndur fyrir bestu hljóðklippingu í stuttu hljóðbrelluformi og Foley fyrir Change of This Post – George Haddad, David Barbee, Joseph T. Sabella og Zane D. Bruce.
- 2006: Tilnefndur fyrir bestu hljóðklippingu í stuttu hljóðbrelluformi og Foley fyrir Jamalot – George Haddad, David Barbee, Lisle Engle, Zane D. Bruce, Shane Bruce, Joseph T. Sabella og Jeff Gunn.
- 2005: Tilnefndur fyrir bestu hljóðklippingu í stuttu talformi og ADR fyrir Outside Man – George Haddad, David Barbee, Edmund J. Lachmann og Tim Kimmel.
- 2005: Tilnefndur fyrir bestu hljóðklippingu í stuttu hljóðbrelluformi og Foley fyrir Officer Blue – George Haddad og David Barbee.
People´s Choice verðlaunin
- 2005: Tilnefndur sem besta nýja dramaserían.
Útgáfa
breytaBækur
breytaTitill | Höfundur | Útgáfudagur |
---|---|---|
Dead of Winter | Stuart M. Kaminsky | Ágúst 2005 |
Blood on the Sun | Stuart M. Kaminsky | Mars 2006 |
Deluge | Stuart M. Kaminsky | Maí 2007 |
Four Walls | Keith R.A. DeCandido | Maí 2008 |
DVD
breytaDVD nafn | Ep # | Útgáfudagur | ||||
---|---|---|---|---|---|---|
Svæði 1 | Svæði 2 | Svæði 4 | ||||
Heil sería | Heil sería | Heil sería | ||||
Sería 1 | 22 | 18. október, 2005 | 1. mars, 2010 | 13. febrúar, 2007 | ||
Sería 2 | 24 | 17. október, 2006 | 1. mars, 2010 | 7. febrúar, 2007 | ||
Sería 3 | 24 | 9. október, 2007 | 1. mars, 2010 | 4. mars, 2009 | ||
Sería 4 | 21 | 23. september, 2008 | 1. mars, 2010 | 19. október, 2009 | ||
Sería 5 | 25 | 29. september, 2009 | 1. mars, 2010 | 11. janúar, 2012 | ||
Sería 6 | 23 | 26. október, 2010 | 20. september, 2010 | 24. október, 2012 | ||
Sería 7 | 22 | 27. september, 2010 | 9. janúar, 2012 | 13. mars, 2013 | ||
Sería 8 | 18 | 25. september, 2012 | 24. júní, 2013 | NA | ||
Sería 9 | 18 | 25. júní, 2013 | NA | NA |
Tilvísanir
breyta- ↑ Goldberg, Lesley (May 10, 2013). "CBS Cancels CSI: NY After Nine Seasons". The Hollywood Reporter. Retrieved May 10, 2013.
- ↑ [1]. IMDB. Skoðað 6. Nóvember 2010.
- ↑ Batallones, Henrik. „Langston Goes Cross-Country: The Whole ‚CSI‘ Franchise Does A Crossover“ Geymt 23 október 2012 í Wayback Machine. BuddyTV, 7. ágúst 2009. Skoðað 7. nóvember 2010.