Indóevrópsk tungumál
Indóevrópsk tungumál eru ætt 443 tungumála og mállýskna sem um þrír milljarðar manna tala. Þessari málaætt tilheyra flest tungumál Evrópu og Vestur-Asíu, sem tilheyra sömu ættkvísl. Nútímamál sem tilheyra þessari ætt eru t.d. bengalska, enska, franska, þýska, hindí, persneska, portúgalska, rússneska og spænska (hvert með fleiri en 100 milljón málhafa). Íslenska er einnig indóevrópskt tungumál.
Ættkvíslir
breyta- Anatólísk tungumál (elsta greinin, þekkt dæmi frá 18. öld f.Kr., þekktast er tungumál Hittíta, hittitíska).
- Indóírönsk tungumál (komin af sameiginlegri rót, frumindóírönsku).
- Indóarísk tungumál (þar á meðal sanskrít, dæmi til frá 2. árþúsundi f.Kr.).
- Írönsk tungumál (dæmi frá 1000 f.Kr., hér á meðal avestanska og persneska).
- Gríska (brotakenndar heimildir á mýkensku frá 14. öld f.Kr.; Hómerskviður eru frá 8. öld f.Kr.).
- Ítalísk tungumál (þar á meðal latína og afkomendur hennar: rómönsku málin, frá 1. árþúsundi f.Kr.).
- Keltnesk tungumál (til eru gaulverskar áletranir frá 6. öld f.Kr.; fornírskir textar eru frá 6. öld e.Kr.).
- Germönsk tungumál (þar á meðal íslenska; elstu rúnaristur frá því á 2. öld, en fyrstu heilu textarnir á gotnesku frá 4. öld).
- Armenska (elstu dæmi frá 5. öld).
- Tokkarísk tungumál (útdauð mál Tokkara, elstu dæmi frá því snemma á 6. öld).
- Baltóslavnesk tungumál (þar sem margir telja þau komin af sameiginlegri rót, en aðrir telja þau jafn-óskyld og aðrar ættkvíslir indó-evrópskra mála).
- Slavnesk tungumál (elstu dæmi um fornkirkjuslavnesku frá 9. öld).
- Baltnesk tungumál (elstu dæmi frá 14. öld, en varðveita furðulega marga þætti úr frumindóevrópsku).
- Albanska (dæmi frá 16. öld; stungið hefur verið upp á tengslum við illyrísku, þrakversku og dakísku).
Auk þessara hefðbundnu tíu greina sem hér eru taldar eru nokkur útdauð tungumál sem lítið er vitað um.
Satem-mál og Kentum-mál
breytaIndó-evrópskum tungumálum er oft skipt í satem-mál og kentum-mál eftir því hvernig uppgómmælt lokhljóð þróuðust. Hægt er að sjá muninn á því hvort fyrsta hljóðið í orðinu yfir „hundrað“ er með lokhljóði (t.d. latína: centum) eða önghljóði (t.d. hindí: satám). Almennt séð eru „austrænu“ málin (slavnesku og indó-írönsku málin) satem-mál, en „vestrænu“ málin (germönsku, ítölsku og keltnesku málin) eru kentum-mál. Satem-kentum mállýskumörkin skilja að annars náskyld mál eins og grísku (kentum) og armensku (satem).
Ættar dreifing
breyta