Anatólísk tungumál
Anatólísk tungumál eru útdauð grein indóevrópskra tungumála sem töluð voru í Anatólíu en af þeim er mest vitað um hittísku, sem var móðurmál Hittíta. Til anatólískra mála heyrðu einnig palaíska, lúvíska og lidíska lísíska. Talið er að öll anatólísk mál hafi verið útdauð fyrir 1. öld f.Kr., þegar Anatólía varð fyrir miklum grískum áhrifum. Ættin var fyrst indóevrópskra málaætta til að deyja út.
Anatólísk tungumál | ||
---|---|---|
Ætt | Indóevrópskt | |
Frummál | Frumanatólíska | |
Undirflokkar | Hittíska Palaíska Lúvíska Lýdíska | |
ISO 639-5 | ine-ana | |
Anatólísk mál um mitt 1. árþúsundið f.Kr. |