Forsetakosningar í Bandaríkjunum

Forsetakosningar Í Bandaríkjunum eru óbeinar kosningar. Í því felst að í hverju ríki fyrir sig kjósa kjósendur kjörmenn í kjörmannaráð. Kjörmenn kjósa svo forsetann og varaforsetann í beinum kosningum. Þessar kosningar eru á fjögurra ára fresti. Alltaf er kosið á tímabilinu 2.-8. nóvember á þriðjudegi.

Ríkisinnsigli Bandaríkjanna

Kosningaferlinu er stýrt af bæði sambands- og ríkjalögum. Hverju ríki er úthlutað ákveðnum fjölda kjörmanna í jöfnu hlutfalli við þingmannafjölda öldungadeildar og fulltrúadeildar. Þar að auki er Washington D.C. úthlutað kjörmönnum í jöfnu hlutfalli við minnsta ríkið.

Samkvæmt stjórnarskrá Bandaríkjanna hefur löggjafarvald hvers ríkis fyrir sig rétt á því að tilnefna kjörmenn að eigin vali. Þar af leiðandi er almenn atkvæðagreiðsla í höndum hvers ríkis fyrir sig en ekki alríkisins (e. federal government). Bandaríkjaþing hefur síðan lokaorðið hvað varðar niðurstöðu kosninga kjörmanna.

Saga kosninganna

breyta

Hinir fyrstu leiðtogar Bandaríkjanna (e. founding fathers) stofnuðu það lýðræði sem hefur með tímanum þróast í það sem þekkist í dag. Þetta þótti algjör nýjung þar sem einveldi var það eina sem þekktist í flestum öðrum löndum. Með nýfengið frelsi undan breska heimsveldinu var hin óreynda þjóð ekki með neinn konung. Þess í stað kom forseti Bandaríkjanna sem fékk stöðu sína með kosningu. Þessari stöðu fylgdi sú ábyrgð að leiða ríkisstjórnina, framfylgja lögum og reglum landsins og sinna stöðu yfirhershöfðingja herafla þjóðarinnar. Þrátt fyrir að forsetinn sé orðinn táknmynd þess lífs sem Bandaríkin boða hefði þetta þó getað farið á allt annan veg. Áður en George Washington tók við embætti forsetans þann 30. apríl 1789 höfðu margir Bandaríkjamenn séð fyrir sér einveldi og kórónu fyrir þennan vinsæla plantekrubónda frá Virginíu. Hann harðneitaði þó að slíkt gæti orðið og feður stjórnarskrárinnar stóðu með honum í þeirri ákvörðun hans. Í meira en 200 ár hafa forsetar Bandaríkjanna og fjölskyldur þeirra búið á 1600 Pennsylvania Avenue í Washington D.C. í sandsteins höfðingjasetri sem þekkt er undir nafninu Hvíta húsið. Í því eru 132 herbergi, 412 hurðir, 28 arnar og ekki eitt einasta hásæti.[1]

George Washington var einn af stofnendum (e.founding father) og einn af aðal leiðtogum bandarísku byltingarinnar. Hann var kjörinn fyrsti forseti Bandaríkjanna og er sá eini sem hefur nokkurn tímann unnið slíka kosningu með einhljóða kjöri kjörmannaráðs (e.electoral college). Hann sat tvö tímabil áður en hann dró sig í hlé.[2]

Önnur grein í stjórnarskrá Bandaríkjanna kom upprunalega af stað þeirri aðferð sem notuð er í dag í forsetakosningunum ásamt því sem þekkist í kjörmannaráði. Var það árangur málamiðlunar stofnenda stjórnarskrárinnar sem vildu að þingið kysi forsetann og þeirra sem vildi að forsetinn yrði kosinn með þjóðaratkvæðagreiðslu.

Prófkjör

breyta

Prófkjör eru undanfari forsetakosninganna sjálfra þar sem kosið er um hvaða frambjóðendur munu verða í forsvari fyrir flokkinn og keppast um embætti forseta. Prófkjörið byrjar á því að kosið er innan ríkjanna í óbeinni kosningu sem þýðir að atkvæði kjósenda fer ekki beint til tiltekins frambjóðanda heldur til fulltrúa hans sem er svo skyldugur til þess að kjósa þann frambjóðanda á Landsfundi þess flokk sem frambjóðandinn tilheyrir.

Misjafnt er eftir ríkjum hvernig prófkjörið fer fram. Sum ríki notast við hlutfallskosningu þar sem fjöldi fulltrúa fer eftir hlutfalli atkvæða hvers frambjóðanda. Í öðrum ríkjum er það einn frambjóðandi sem fær alla fulltrúa þess flokk í tilteknu ríki ef hann fær flest atkvæði. Prófkjörið skiptist einnig milli þess þar sem notast er við venjulega kosningu sem er rekið af stjórn ríkisins eða opin kosning (e. caucus) sem þýðir að minni leynd hvíli yfir atkvæðum kjósenda og er haldið utan þá kosningu um af flokknum sjálfum[3].

Landsfundir

breyta

Þegar flokkarnir hafa kosið innan ríkisins um hversu marga fulltrúa hver frambjóðandi fær er haldin landsfundur þar sem skorið er úr um hvaða frambjóðandi fái að bjóða sig fram til forseta fyrir sinn flokk. Allir flokkar hafa rétt á því efna til landsfundar en fundir demókrata og repúblikana fá mesta umfjöllun[4]. Á landsfundinum velja fulltrúarnir þann frambjóðanda sem þeir hafa gefið formlegt loforð um að kjósa. Ef kosningin sker ekki úr um hvaða frambjóðandi hljóti kosningu er kosið aftur en þegar kosið er aftur hafa fulltrúar frjálsar hendur og mega því kjósa þann frambjóðanda sem þeir vilja.

Framkvæmd kosninganna á kjördag

breyta

Kosningarnar eru á þann hátt að hvert ríki hefur sínar eigin kosningar um hverjir hljóta tilnefningu kjörmanna. Því eru forsetakosningarnar sambland margra aðskilinna kosninga sem haldnar eru samtímis[5].

Líkt og í öðrum kosningum í Bandaríkjunum er kjörgengi einstaklinga stjórnarskrárbundið og er framkvæmd kosninganna í höndum ríkjanna. Í stjórnarskránni er kveðið á um að ekki megi neita einstaklingum kosningarétti á grundvelli kynþáttar né kyns þeirra borgara sem náð hafa 18 ára aldri. Venjulega greiða kjósendur sín atkvæði á þann hátt að merkt er við einn frambjóðanda til forseta, ásamt varaforsetaefni hans, í kjörseðli sem inniheldur lista allra frambjóðenda viðkomandi ríkis. Atkvæðið sem frambjóðandi hlýtur er óbeint því í raun eru það kjörmenn hans sem hljóta atkvæðið.

Kjörmannaráðið

breyta

Í kjörmannaráði eru 538 kjörmenn og er fjöldi þeirra úr hverju ríki í ágætu samhengi við íbúafjölda þess. Sá frambjóðandi sem ber sigur úr býtum í sérhverju ríki fær alla kjörmenn þess[6]. Að loknum kosningum, nánar tiltekið fyrsta mánudag í kjölfar annars miðvikudags í desember, koma kjörmennirnir saman í kjörmannaráði og velja forsetann og varaforsetann. Þrátt fyrir að tæknilegur möguleiki sé til staðar fyrir kjörmenn kjörmannaráðsins að velja hvaða frambjóðanda sem er hafa 24 ríki lög um refsingu í garð þeirra kjörmanna sem ekki velja þann frambjóðanda sem þeir hafa heitið að velja.[7] Snemma í janúar, þeim næsta í kjölfar forsetakosninganna, eru atkvæði kjörmannaráðs gerð opinber. Er það á þann hátt að sitjandi varaforseti Bandaríkjanna, þá í hlutverki forseta öldungadeildarinnar, sem gerir þeim skil á sameiginlegum þingfundi beggja deilda Bandaríkjaþings.

Ef enginn frambjóðandi nær 270 kjörmönnum þarf Fulltrúadeild Bandaríkjaþings að kjósa forsetann þar sem hvert ríki hefur eitt atkvæði og síðan þarf Öldungadeildin að kjósa varaforsetann þar sem allir Öldungadeildarþingmenn greiða atkvæði. Það hefur tvívegis gerst að þingið kjósi forsetann en árið 1800 þurfti Fulltrúadeildin að kjósa á milli þeirra Thomas Jefferson og Aaron Burr en á þeim tíma greiddu kjörmenn tvö atkvæði og var óskýrt hvort var til forseta og varaforseta. Það fór því svo að Jefferson og Burr voru með jafnmörg atkvæði og því þurfti þingið að kjósa forsetann. Í kjölfarið á þessu var reglum breytt og atkvæði til forseta og varaforseta betur aðskilin. Síðara tilvikið var árið 1828 en þá fékk Andrew Jackson flest atkvæði á landsvísu og flesta kjörmenn en náði ekki meirihluta kjörmanna, John Quincy Adams var því á endanum kjörinn forseti Bandaríkjanna af Fulltrúadeildinni en fjórum árum síðar var Andrew Jackson kjörinn forseti eftir yfirburðasigur á John Quincy Adams.

Kosningar Ártal Frambjóðandi Demókrata Frambjóðandi Repúblika Önnur framboð
1 1788
2 1792
3 1796
4 1800
5 1804
6 1808
7 1812
8 1816
9 1820
10 1824
11 1828
12 1832
13 1836
14 1840
15 1844
16 1848
17 1852
18 1856
19 1860
20 1864
21 1868
22 1872
23 1876
24 1880
25 1884
26 1888
27 1892
28 1896
29 1900
30 1904
31 1908
32 1912
33 1916
34 1920
35 1924
36 1928
37 1932
38 1936
39 1940
40 1944
41 1948
42 1952
43 1956
44 1960
45 1964
46 1968
47 1972
48 1976
49 1980   

Jimmy Carter, forsetaefni

Walter Mondale, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 49

Fylki: 6 + D.C.

Prósent: 41.0%

  

Ronald Reagan, forsetaefni

George H. W. Bush, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 489

Fylki: 44

Prósent: 50.7%

Sigurvegarar kosninganna

  

Sjálfstætt framboð

John B. Anderson, forsetaefni

Patrick Lucey, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 0

Fylki: 0

Prósent: 6.6%

50 1984   

Walter Mondale, forsetaefni

Geraldine Ferraro, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 13

Fylki: 1 + D.C.

Prósent: 40.6%

  

Ronald Reagan, forsetaefni

George H. W. Bush, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 525

Fylki: 49

Prósent: 58.8%

Sigurvegarar kosninganna

51 1988   

Micheal Dukakis, forsetaefni

Lloyd Bentsen, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 111

Fylki: 10 + D.C.

Prósent: 45.6%

  

George H. W. Bush, forsetaefni

Dan Quayle, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 426

Fylki: 40

Prósent: 53.4%

Sigurvegarar kosninganna

52 1992   

Bill Clinton, forsetaefni

Al Gore, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 370

Fylki: 32 + D.C.

Prósent: 43.0%

Sigurvegarar kosninganna

  

George H. W. Bush, forsetaefni

Dan Quayle, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 168

Fylki: 18

Prósent: 37.4%

 

Sjálfstætt framboð

Ross Perot, forsetaefni

James Stockdale, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 0

Fylki: 0

Prósent: 18.9%

53 1996   

Bill Clinton, forsetaefni

Al Gore, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 379

Fylki: 31 + D.C.

Prósent: 49.2%

Sigurvegarar kosninganna

  

Bob Dole, forsetaefni

Jack Kemp, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 159

Fylki: 19

Prósent: 40.7%

 

Umbótaflokkurinn

Ross Perot, forsetaefni

Pat Choate, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 0

Fylki: 0

Prósent: 8.4%

54 2000   

Al Gore, forsetaefni

Joe Lieberman, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 365

Fylki: 28 + D.C.

Prósent: 52.9%

  

George W. Bush, forsetaefni

Dick Cheney, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 271

Fylki: 30

Prósent: 47.9%

Sigurvegarar kosninganna

55 2004   

John Kerry, forsetaefni

John Edwards, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 251

Fylki: 19 + D.C.

Prósent: 48.3%

  

George W. Bush, forsetaefni

Dick Cheney, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 286

Fylki: 31

Prósent: 50.7%

Sigurvegarar kosninganna

56 2008   

Barack Obama, forsetaefni

Joe Biden, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 365

Fylki: 28 + D.C.

Prósent: 52.9%

Sigurvegarar kosninganna

  

John McCain, forsetaefni

Sarah Palin, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 173

Fylki: 22

Prósent: 45.7%

57 2012   

Barack Obama, forsetaefni

Joe Biden, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 332

Fylki: 26 + D.C.

Prósent: 51.1%

Sigurvegarar kosninganna

  

Mitt Romney, forsetaefni

Paul Ryan, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 206

Fylki: 24

Prósent: 47.2%

58 2016   

Hillary Clinton, forsetaefni

Tim Kaine, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 227

Fylki: 20 + D.C.

Prósent: 48,2%

  

Donald Trump, forsetaefni

Mike Pence, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 304

Fylki: 30

Prósent: 46.1%

Sigurvegarar kosninganna

59 2020   

Joe Biden, forsetaefni

Kamala Harris, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 306

Fylki: 25 + D.C.

Prósent: 51.3%

Sigurvegarar kosninganna

  

Donald Trump, forsetaefni

Mike Pence, varaforsetaefni

Kjörmannaatkvæði: 232

Fylki: 25

Prósent: 46.8%

60 2024  

Kamala Harris, forsetaefni

  

Donald Trump, forsetaefni

J. D. Vance, varaforsetaefni

 

Sjálfstætt framboð

Robert F. Kennedy Jr., forsetaefni

Nicole Shanahan, varaforsetaefni

Tilvísanir

breyta
  1. History.com (e.d.). The U.S. Presidents. Sótt 14. október 2010.
  2. History.com (e.d.). George Washington. Sótt 14. október 2010.
  3. Essortment.com (e.d.). „How does the election of the US President work?" Geymt 13 apríl 2009 í Wayback Machine. Sótt 14. október 2010.
  4. Essortment.com (e.d.). „How does the election of the US President work?" Geymt 13 apríl 2009 í Wayback Machine. Sótt 14. október 2010.
  5. Katz, R. S. (2007). Political institutions in the United States. Bls 58. New York: Oxford university press.
  6. Vísindavefurinn (12. nóvember 2000). „Hvers vegna þarf sá sem fær flest atkvæði í forsetakosningum í Bandaríkjunum ekki endilega að verða fyrir valinu?“[óvirkur tengill]. Sótt 15. október 2010.
  7. The Electoral College (12. nóvember 2009). „Faithless Electors“ Geymt 24 nóvember 2016 í Wayback Machine. Sótt 15. október 2010.