1533
ár
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1533 (MDXXXIII í rómverskum tölum)
Á Íslandi
breyta- Fyrsta lútherska kirkjan líklega reist af þýskum kaupmönnum í Hafnarfirði.
- Alexíus Pálsson vígður ábóti í Viðey. Hann varð síðasti ábótinn þar.
- Þórunn Jónsdóttir (Arasonar biskups) giftist Ísleifi Sigurðssyni sýslumanni á Grund.
Fædd
Dáin
- Hannes Eggertsson hirðstjóri (f. um 1485).
Erlendis
breyta- 25. janúar - Hinrik 8. giftist Önnu Boleyn.
- 30. mars - Thomas Cranmer varð erkibiskup af Kantaraborg.
- 23. maí - Cranmer lýsti hjónaband Hinriks konungs og Katrínar af Aragon ógilt en þar sem Klemens VII páfi hafði áður neitað að samþykkja ógildingu leit Katrín svo á að þau væru enn gift, allt til dauðadags.
- 1. júní - Cranmer krýndi Önnu Boleyn drottningu Englands. Í framhaldi af því bannfærði Klemens VII bæði Hinrik 8. og Önnu.
- 3. desember - Ívan grimmi tók við stórfurstadæminu í Moskvu eftir lát föður síns, Vassilíj 3. Hann var þá þriggja ára.
- Danmörk var án konungs í rúmt ár eftir lát Friðriks 1.
- Inkahöfðinginn Atahualpa greiddi Francisco Pizarro gífurlegan fjársjóð í gulli í lausnargjald en Pizarro lét samt taka hann af lífi.
Fædd
- 28. febrúar - Michel de Montaigne, franskur heimspekingur (d. 1592).
- 24. apríl - Vilhjálmur þögli Óraníufursti (d. 1584).
- 7. september - Elísabet 1. Englandsdrottning (d. 1603).
- 13. desember - Eiríkur 14. Svíakonungur (d. 1577).
- 27. desember - Stefán Batory, konungur Póllands (d. 1586).
Dáin
- 10. apríl - Friðrik 1. Danakonungur (f. 1471).
- 25. júní - María Tudor, Frakklandsdrottning (kona Loðvíks 12.) og síðar hertogaynja af Suffolk (f. 1496).
- 8. ágúst - Lucas van Leyden, hollenskur listmálari (f. 1494).
- 28. ágúst - Atahualpa, Inkahöfðingi í Perú, kyrktur að boði Francisco Pizarro.
- 6. júlí - Ludovico Ariosto, ítalskt skáld (f. 1474).
- 3. desember - Vassilíj 3., stórfursti í Moskvu (f. 1479).