Michel de Montaigne

Michel Eyquem de Montaigne (28. febrúar 153313. september 1592) var franskur heimspekingur og einn af áhrifamestu höfundum Frakklands á 16. öld. Montaigne er brautryðjandi í formi ritgerðarinnar — hann varð þekktur fyrir að tvinna áreynslulaust saman alvörugefinni fræðilegri umfjöllun og óformlegri frásögn með sjálfsævissögulegu ívafi — og í hans merkasta ritgerðasafn (oft nefnt Tilraunir) inniheldur fjölmargar ritgerðir sem höfðu mikil áhrif á aðra höfunda. Montaigne hafði bein áhrif á höfunda allt frá Shakespeare til Emersons, frá Nietzsche til Rousseaus, og síðast en ekki síst á René Descartes.

Michel Eyquem de Montaigne
Michel de Montaigne (1533-1592)
Persónulegar upplýsingar
Fæddur28. febrúar 1533
SvæðiVestræn heimspeki
TímabilHeimspeki 16. aldar
Skóli/hefðEfahyggja
Helstu ritverkMálsvörn Raymond Sebond
Helstu kenningarMálsvörn Raymond Sebond
Helstu viðfangsefniefahyggja, þekkingarfræði, stjórnmál

Á sínum tíma naut Montaigne fyrst og fremst virðingar sem stjórnmálamaður. Tilhneiging hans til þess að segja sögur og persónulegar endurminningar var álitin löstur fremur en nýbreytni og kjörorð hans „Ég er sjálfur umfjöllunarefni bókar minnar“ höfðu samtímamenn hans til marks um sjálfumgleði. Þegar fram liðu stundir öðlaðist Montaigne þó viðurkenningu sem helsti málsvari síns tíma fyrir efasemdir aldarinnar. Önnur kjörorð hans voru „Hvað veit ég?“ („Que sais je?“)

Heimildir og ítarefni

breyta

Tengt efni

breyta

Tengill

breyta