1520
ár
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1520 (MDXX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
breyta- Jón Arason tók við ráðsmennsku á Hólum eftir lát Gottskálks Nikulássonar biskup.
- Ögmundur Pálsson sigldi utan til að taka biskupsvígslu í Skálholti. Vigfús Erlendsson og Týli Pétursson sigldu með sama skipi og ætluðu báðir að sækjast eftir hirðstjóraembættinu.
Fædd
Dáin
- Jón Sigmundsson lögmaður (f. um 1455).
- 28. desember - Gottskálk Nikulásson Hólabiskup (f. 1469).
- Árni Steinmóðsson, ábóti í Þykkvabæjarklaustri.
Erlendis
breyta- 18. janúar – Kristján 2. sigraði Svía undir stjórn Steins Sture í orrustunni á ísnum á Åsunden.
- Júní - Montesúma 2. keisara Asteka, steypt af stóli þar sem hann var fangi Spánverja, og bróðir hans Cuitláhuac kjörinn keisari.
- 15. júní - Leó X páfi gaf út páfabulluna Exsurge Domine, þar sem hann hótaði Marteini Lúther bannfæringu.
- 1. júlí - La Noche Triste, stórorrusta milli Spánverja og Asteka á brú við borgina Tenochtitlán þar sem 400 Spánverjar og 2.000 innfæddir bandamenn þeirra týndu lífinu. Foringi Spánverja, Hernán Cortés, slapp naumlega.
- Október - Cuitláhuac, keisari Asteka, dó úr bólusótt. Cuauhtémoc tók við.
- 1. nóvember - Kristján 2. var kjörinn konungur Svíþjóðar.
- 8.-10. nóvember - Stokkhólmsvígin: Um 85 sænskir aðalsmenn voru teknir af lífi fyrir að berjast gegn Kristjáni.
- 28. nóvember - Þrjú skip undir stjórn Ferdinands Magellans komu á Kyrrahafið eftir að hafa siglt um sundin í Suður-Ameríku.
- Karl 1. konungur Spánar krýndur keisari hins Heilaga rómverska ríkis sem Karl 5.
Fædd
- (líklega) Poul Huitfeldt eða Páll Hvítfeldur, danskur aðalsmaður sem var höfuðsmaður á Íslandi og síðar ríkisstjóri í Noregi (d. 1592).
Dáin
- 3. febrúar - Steinn Sture yngri, ríkisstjóri Svíþjóðar (f. 1493).
- 6. apríl - Rafael, ítalskur listmálari (f. 1483).
- 6. apríl - Kai von Ahlefeldt, áður hirðstjóri á Íslandi, féll í orrustu við Uppsali.
- Júní - Montesúma II, keisari Asteka (f. 1466).
- Október - Cuitláhuac, keisari Asteka.