Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu
Kvennalandslið Íslands í knattspyrnu er fulltrúi Íslands á alþjóðlegum mótum kvenna í knattspyrnu. Liðið hefur þrisvar sinnum tekið þátt í Evrópumeistarakeppni kvenna: EM 2009, EM 2013 og EM 2017. Það hefur einnig tryggt sér sæti á EM 2022. Besti árangur er 8 liða úrslit árið 2013. Kvennalandslið Íslands hefur aldrei tryggt sér sæti á HM.
Gælunafn | Stelpurnar okkar | ||
---|---|---|---|
Íþróttasamband | Knattspyrnusamband Íslands | ||
Álfusamband | UEFA | ||
Þjálfari | Þorsteinn Halldórsson | ||
Aðstoðarþjálfari | Ian Jeffs | ||
FIFA sæti Hæst Lægst | 13 (ágúst 2024) 13 (ágúst 2024) 22 (september 2018) | ||
| |||
Fyrsti landsleikur | |||
Skotland 3-2 Ísland (Kilmarnock, Skotlandi; 20. september, 1981) | |||
Stærsti sigur | |||
Ísland 12-0 Eistland (Reykjavík, Íslandi; 17. september, 2009) | |||
Mesta tap | |||
Þýskaland 8-0 Ísland (Mannheim, Þýskalandi; 28. júní, 1996) Bandaríkin 8-0 Ísland (Charlotte, Bandaríkjunum; 5. apríl, 2000) | |||
Evrópumeistarakeppni kvenna | |||
Keppnir | 4 (fyrst árið 1995) |
Frá árinu 2009 hefur liðið tekið þátt í æfingamótinu Algarve Cup í Portúgal.
Saga kvennalandsliðsins
breytaÍslenska kvennalandsliðið var stofnað árið 1981. Fyrsti leikur liðsins var á sama ári, gegn Skotum, þar sem Skotarnir unnu naumlega 3-2.[1] Kvennalandsliðið tók síðan þátt í fyrsta skipti í Evrópukeppni ári síðar.[2]
Árið 1984 hætti kvennalandsliðið í evrópukeppninni. Ákvörðunin var tekin af Knattspyrnusambandi Íslands og mikil óánægja var á meðal landsliðskvenna sem söfnuðu 2.129 undirskriftum gegn ákvörðun KSÍ. Fyrir ákvörðun KSÍ hafði liðið spilað 6 leiki í evrópukeppninni frá stofnun kvennalandsliðsins. Ákvörðunin þýddi jafnframt að liðið gæti ekki keppt í evrópukeppninni fyrr en 1987.[3] Á árinu 1987 tók við að kvennalandsliðið var lagt niður, og var ekki endurvakið fyrr en 1993.[4]
Einu ári eftir endurvakningu kvennaliðsins komst liðið i umpsil tilsvarandi 8 liða úrslit í undankeppninni fyrir EM 1995 eftir að hafa unnið sinn riðil. Bara 4 lið fengu að taka þátt á lokakeppni EM, og komust þær ekki þangað eftir tvöfalt tap á móti Englandi. Munaði þá líka litlu að liðið fengi að leika í úrslitakeppni Heimsmeistarakeppninnar. Ásta B. Gunnlaugsdóttir, knattspyrnukona var jafnframt valin knattspyrnumaður ársins.[5] Liðið tapaði í 1996 umspili á móti Þýskalandi um sæti á EM 1997.
Á árinu 2001 urðu tvær landsliðskonur atvinnumenn í Bandaríkjunum, þær Rakel Ögmundsdóttir og Margrét Ólafsdóttir. Sama ár komst KR í fyrsta skipti í evrópukeppni. Kvennalandsliðið sjálft komst jafnframt í undankeppni heimsmeistarakeppninnar.[4] Þremur árum síðar spilaði kvennalandsliðið í fyrsta skipti innanhús.[6]
Á árinu 2008 urðu straumhvörf hjá kvennalandsliðinu. Tíu landsliðskonur urðu atvinnumenn, þær Guðbjörg Gunnarsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir, Guðný B. Óðinsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir, Rakel Hönnudóttir, Edda Garðarsdóttir, Ólína Viðarsdóttir, Ásta Árnadóttir, Þóra Helgadóttir og Guðrún Sóley Gunnarsdóttir.[7] Kvennalandsliðið var á sama tímabili það fyrsta A-liða Íslands sem komst í lokakeppni stórmóts.
Frá árinu 2009 hefur liðið komist á hverja einustu evrópukeppni. í 2009 komst það ekki úr riðlinum en í 2013 komst það í fjórðungsúrslit. Í undankeppni fyrir EM 2017 vann liðið Þýskaland 3-2 en það telst eitt sterkasta landslið heims. Harpa Þorsteinsdóttir var ein af þremur markahæstu leikmönnum í þeirri undankeppni með 10 mörk. Liðið komst samt ekki úr riðlinum það ár. Haustið 2018 var sett áhorfendamet þegar Laugardalsvöllur fylltist er Ísland mætti Þýskalandi.
Vegna COVID-19 var EM 2021 frestað um ár og fer keppnin fram í Englandi í júlí 2022. Þann 1. desember 2020 tryggði liðið sér sæti á mótið.
Núverandi leikmenn
breytaTölfræði uppfærð, júlí 2022. Lið valið fyrir Evrópumótið í knattspyrnu 2022
Markmenn | Fæðingardagur (Aldur) | Leikjafjöldi | Mörk | Lið |
---|---|---|---|---|
Cecilía Rán Rúnarsdóttir | 26. júlí 2003 (19 ára) | 7 | 0 | Bayern München |
Sandra Sigurðardóttir | 2. október 1986 (35 ára) | 42 | 0 | Valur |
Telma Ívarsdóttir | 30. mars 1999 (23 ára) | 1 | 0 | Breiðablik |
Varnarmenn | Fæðingardagur (Aldur) | Leikjafjöldi | Mörk | Lið |
Glódís Perla Viggósdóttir | 27. júní 1995 (27 ára) | 102 | 6 | Bayern München |
Ingibjörg Sigurðardóttir | 7. október 1997 (24 ára) | 45 | 0 | Vålerenga |
Hallbera Guðný Gísladóttir | 14. september 1986 (35 ára) | 123 | 3 | IFK Kalmar |
Guðrún Árnadóttir | 4. ágúst 2000 (21 ára) | 15 | 0 | AC Milan |
Guðrún Arnardóttir | 29. júlí 1995 (26 árs) | 19 | 1 | FC Rosengård |
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir | 2. júní 2001 (21 ára) | 6 | 0 | Breiðablik |
Sif Atladóttir | 15. júlí 1985 (37 ára) | 89 | 0 | UF Selfoss |
Elísa Viðarsdóttir | 26. maí 1991 (31 ára) | 47 | 0 | Valur |
Miðjumenn | Fæðingardagur (Aldur) | Leikjafjöldi | Mörk | Lið |
Sara Björk Gunnarsdóttir | 29. september 1990 (20 ára) | 139 | 22 | Juventus |
Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir | 28. september 1988 (33 ára) | 90 | 14 | Orlando Pride |
Dagný Brynjarsdóttir | 10. ágúst 1991 (30 ára) | 102 | 34 | West Ham United Women |
Agla María Albertsdóttir | 5. ágúst 1999 (22 ára) | 47 | 4 | BK Häcken |
Alexandra Jóhannsdóttir | 12. mars 2000 (22 ára) | 24 | 3 | Eintracht Frankfurt |
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir | 8. ágúst 2001 (20 ára) | 19 | 7 | Bayern München |
Selma Sól Magnúsdóttir | 23. apríl 1998 (24 ára) | 17 | 2 | Rosenborg |
Amanda Andradóttir | 18. desember 2001 (20 ára) | 6 | 0 | Kristianstads DFF |
Sóknarmenn | Fæðingardagur (Aldur) | Leikjafjöldi | Mörk | Lið |
Elín Metta Jensen | 1. mars 1995 (27 ára) | 59 | 16 | Valur |
Berglind Björg Þorvaldsdóttir | 18. janúar 1992 (30 ára) | 63 | 11 | SK Brann |
Sveindís Jane Jónsdóttir | 5. júní 2001 (20 ára) | 19 | 7 | VfL Wolfsburg |
Svava Rós Guðmundsdóttir | 11. nóvember 1995 (27 ára) | 36 | 2 | SK Brann |
-
Liðið 2012.
-
Ísland - Úkraína 2013.
-
Harpa Þorsteinsdóttir.
-
Margrét Lára skorar.
Þjálfarar kvennalandsliðsins
breytaSigurður Hannesson 1981-1984
Sigurbergur Sigsteinsson 1985-1986
Aðalsteinn Örnólfsson 1987
Sigurður Hannesson og Steinn Mar Helgason 1992
Logi Ólafsson 1993-1994
Kristinn Björnsson 1995-1996
Vanda Sigurgeirsdóttir 1997-1999
Þórður Georg Lárusson 1999-2000
Logi Ólafsson 2000
Jörundur Áki Sveinsson 2000-2003
Helena Ólafsdóttir 2003-2004
Jörundur Áki Sveinsson 2004-2006
Sigurður Ragnar Eyjólfsson 2007-2013
Freyr Alexandersson 2013-2018
Jón Þór Hauksson 2018-2020
Þorsteinn Halldórsson 2021-
Tilvísanir
breyta- ↑ „Leikir kvennalandsliðsins frá upphafi“. Knattspyrnusamband Íslands. Sótt 25. september, 2010.
- ↑ „Kvennalandsliöið leikur við Noreg á laugardaginn“. Morgunblaðið. 25. ágúst 1982. bls. 30. Sótt 25. september, 2010.
- ↑ „Eina lausnin að stofna sérsamband“. Morgunblaðið. 1. júlí 1984. bls. 4. Sótt 25. september, 2010.
- ↑ 4,0 4,1 „Kvennaknattspyrnan á uppleið“. Morgunblaðið, B blað. 18. ágúst 2001. bls. 2. Sótt 25. september, 2010.
- ↑ „Íþróttaárið 1994“. Morgunpósturinn, Sport. 29. desember 1994. bls. 34. Sótt 25. september, 2010.
- ↑ „Skrítið að spila innanhúss“. Fréttablaðið. 13. mars 2004. bls. 56. Sótt 25. september, 2010.
- ↑ Sigurður Ragnar Eyjólfsson. „Hugarfar sigurvegarans“ (PDF). bls. 20. Afrit af upprunalegu (pdf) geymt þann 22. mars 2010. Sótt 25. september, 2010.