Sara Björk Gunnarsdóttir
Sara Björk Gunnarsdóttir (f. 29. september 1990) er íslensk knattspyrnukona. Hún leikur með Juventus á Ítalíu. Á ferli sínum hefur Sara einnig spilað fyrir Hauka, Breiðablik, FC Rosengård, FC Malmö og Lyon. Sara hefur verið í A landsliði kvenna frá 2007 og spilaði með landsliðinu á EM 2007, 2009 og 2013. Sara var valin íþróttamaður ársins árið 2018 og 2020.
Sara Björk Gunnarsdóttir | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Sara Björk Gunnarsdóttir | |
Fæðingardagur | 29. september 1990 | |
Fæðingarstaður | Reykjavík, Ísland | |
Hæð | 175 cm | |
Leikstaða | miðjumaður | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | Juventus | |
Númer | 7 | |
Yngriflokkaferill | ||
1996-2004 | Haukar | |
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2004-2008 | Haukar | 23 (18) |
2008-2010 | Breiðablik | 41 (17) |
2011-2016 | LdB FC Malmö | 110 (34) |
2016-2020 | FC Wolfsburg | 63 (12) |
2020- | Olympique Lyonnais | 4 (2) |
{{{ár6}}} | Juventus | () |
Landsliðsferill | ||
2007 2007-2008 2007-2023 |
Ísland U-17 Ísland U-19 Ísland |
4 (0) 13 (4) 139 (22) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Ferill með félagsliðum
breytaSara hóf knattspyrnuiðkun árið 1996 með Haukum, eftir tólf ár hjá uppeldisfélaginu gekk hún til liðs við Breiðablik árið 2008. Eftir þrjú mögur ár hjá Breiðabliki gekk hún til liðs við FC Malmö fyrir tímabilið 2011. Á sínu fyrsta tímabili í Svíþjóð kom hún að 12 mörkum og hjálpaði Malmö að vinna Damallsvenskuna. Fimm árum og þremur meistaratitlum síðar, árið 2016, tilkynnti Sara að hún hyggðist ekki framlengja samning sinn við Malmö, fljótlega tilkynnti FC Wolfsburg að hún myndi ganga til liðs við liðið fyrir tímabilið 2016-17. Hjá Wolfsburg hefur Sara sankað að sér verðlaunagripum, m.a. fjórum Þýskalandsmeistaratitlum og þremur bikartitlum.
Árið 2020 hélt Sara til Olympique Lyonnais í Frakklandi. Hún skoraði gegn sínu fyrrum félagi, Wolfsburg, í úrslitum Meistaradeildarinnar þegar Lyon vann 3-1.
Landsliðsferill
breytaÍ ágúst 2007 valdi Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þáverandi landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins, Söru í landsliðshóp fyrir leik gegn Slóveníu í undankeppni Evrópumótsins 2009. Sara hafði þá nýlega jafnað sig á krossbandaslitum, hún kom inn á fyrir Katrínu Ómarsdóttur á 87. mínútu í sínum fyrsta landsleik, þá aðeins 16 ára gömul.
Árið 2019 tjáði Sara Björk sig, í tengslum við útgáfu á bókinni Óstöðvandi, í fyrsta sinn um erfiðleika í byrjun landsliðsferils síns, en hún varð fyrir barðinu á svæsnum sögusögnum liðsfélaga sinna.
Sara hætti með landsliðinu í janúar 2023.
Verðlaun
breytaFC Malmö/Rosengård
- Damallsvenskan: Meistari 2011, 2013, 2014, 2015.
- Sænska bikarkeppnin: Meistari 2016
- Sænski ofurbikarinn: Meistari 2011, 2012, 2015, 2016.
VFL Wolfsburg - Bundesliga: Meistari 2016-17, 2017-18, 2018-19, 2019-2020.
- Þýska bikarkeppnin: Meistari 2016-17, 2017-18, 2018-19.
Olympique Lyonnaise
- Meistaradeild Evrópu: Meistari 2020
Einstaklingsverðlaun
- Íþróttamaður ársins: 2018, 2020
- Íþróttamaður Hauka: 2008
Heimildir
breyta- „KSÍ - EM stelpurnar - Sara Björk Gunnarsdóttir“. Sótt 16. ágúst 2009.
- „svenskfotboll.se“. Sótt 12. júní 2011.
- Fyrirmynd síðunnar er greinin ,,Sara Björk Gunnarsdóttir" á ensku wikipediu.