Sandra Sigurðardóttir
Íslensk knattspyrnukona
Sandra Sigurðardóttir (f. 2. október 1986) er íslensk knattspyrnukona sem spilar í stöðu markvarðar. Hún hefur spilað fyrir Val, Stjörnuna og Þór/KA/KS í efstu deild á Íslandi.
Sandra Sigurðardóttir | ||
Upplýsingar | ||
---|---|---|
Fullt nafn | Sandra Sigurðardóttir | |
Fæðingardagur | 2. október 1986 | |
Fæðingarstaður | Siglufjörður, Ísland | |
Leikstaða | markvörður | |
Núverandi lið | ||
Núverandi lið | Valur | |
Númer | 1 | |
Yngriflokkaferill | ||
KS | ||
Meistaraflokksferill1 | ||
Ár | Lið | Leikir (mörk) |
2001–2004 | Þór/KA/KS | 40 (0) |
2005–2016 | Stjarnan | 161 (1) |
2011 | Jitex BK | 7 (0) |
2016– | Valur | 123 (0) |
2023 | UMFG (lán) | 2 (0) |
Landsliðsferill | ||
2002–2003 2002–2004 2005–2023 |
Ísland U-17 Ísland U-19 Ísland |
29 (0) 5 (0) 42 (0) |
1 Leikir með meistaraflokkum og mörk |
Sandra spilaði í efstu deild 2001-2023. Þann 16. júní 2017 sló hún leikjamet Sigurlínar Jónsdóttur, fyrrum leikmanns KR og ÍA og varð þar með leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar í knattspyrnu kvenna.[1]
Sandra lagði hanskana á hilluna árið 2023 en snéri aftur í Val í ágúst sama ár.[2]
Viðurkenningar
breyta- Knattspyrnumaður ársins á Siglufirði 2001.
- Íþróttamaður ársins 2002 á Siglufirði.
- Besti leikmaður Stjörnunnar 2008.
- Íslandsmeistari í knattspyrnu 2011, 2013, 2014 og 2019.
- Bikarmeistari í knattspyrnu 2012, 2013 og 2014.
- Leikjahæsti leikmaður í sögu efstu deildar.
Heimildir
breytaYtri tenglar
breyta- „KSÍ - EM stelpurnar - Sandra Sigurðardóttir“. Sótt 16. ágúst 2009.
Þetta æviágrip sem tengist knattspyrnu er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.