Gullpálminn
aðalverðlaun Kvikmyndahátíðarinnar í Cannes
Gullpálminn (franska: Palme d'Or) eru aðalverðlaun Kvikmyndahátíðarinnar í Cannes. Verðlaunin voru fyrst veitt árið 1955 en frá 1939 til 1954 kölluðust aðalverðlaun hátíðarinnar Grand Prix du Festival International du Film. Árið 1964 var Palme d'Or skipt út fyrir Grand Prix, en var svo tekið aftur upp árið 1975.
Gullpálminn | |
---|---|
Palme d'Or | |
Veitt fyrir | Framúrskarandi árangur í kvikmyndagerð |
Staðsetning | Cannes |
Land | Frakkland |
Kynnir | Kvikmyndahátíðin í Cannes |
Fyrst veitt | 1955 |
Vefsíða | www |
Sigurvegari | Anora (2024) |
Gullpálminn er oft talinn vera virtustu verðlaun kvikmyndaiðnaðarins.