Cristian Mungiu
rúmenskur kvikmyndagerðarmaður
Cristian Mungiu (f. 27. apríl 1968) er rúmenskur kvikmyndagerðarmaður. Hann hlaut Gullpálmann á Kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2007 fyrir kvikmyndina Fjórir mánuðir, 3 vikur og 2 dagar, sem hann skrifaði og leikstýrði. Hann hefur einnig hlotið verðlaun fyrir besta handritið og bestu leikstjórn á sömu hátíð fyrir myndirnar Handan hæðanna (2012) og Útskrift (2016).
Cristian Mungiu | |
---|---|
Fæddur | 27. apríl 1968 |
Skóli | Universitatea „Alexandru Ioan Cuza” din Iași |
Störf |
|
Ár virkur | 1998–í dag |
Börn | 2 |
Ættingjar | Alina Mungiu-Pippidi (systir) |
Verðlaun | Gullpálminn 2007: Fjórir mánuðir, 3 vikur og 2 dagar |
Kvikmyndaskrá
breytaÁr | Upprunalegur titill | Íslenskur titill | Athugasemdir |
---|---|---|---|
2000 | Corul pompierilor | ||
Nicio întâmplare | |||
Zapping | |||
2002 | Occident | Fyrsta mynd | |
2005 | Lost and Found (hluti Turkey Girl) | Meðleikstjóri | |
2007 | 4 luni, 3 săptămâni și 2 zile | Fjórir mánuðir, 3 vikur og 2 dagar | Hlaut Gullpálmann á Kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2007 |
2009 | Amintiri din epoca de aur | Meðleikstjóri | |
2012 | După dealuri | Handan hæðanna | Besta handritið á Kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2012 |
2016 | Bacalaureat | Útskrift | Besti leikstjóri á Kvikmyndahátíðinni í Cannes árið 2016 |
2022 | R.M.N. |