Evrópukeppnin í knattspyrnu 1968
Evrópukeppnin í knattspyrnu 1968, oft nefnd EM 1968, var í þriðja skipti sem Evrópukeppni karla í knattspyrnu hefur verið haldin. Lokamótið fór fram í Ítalíu dagana 5. til 10. júní 1968 á vegum Knattspyrnusambands Evrópu. Ítalía gerði markalaust jafntefli í undanúrslitum gegn Sovíetríkjunum eftir venjulegan leiktíma og framlengingu en komust í úrslit með uppkasti. Úrslitaleikurinn gegn Júgóslavíu fór einnig jafntefli, eitt mark gegn einu, en í stað uppkasts var leikurinn endurspilaður 10. júní. Ítalía vann seinni úrslitaleikinn með tveimur mörkum gegn engu og unnu þar með sinn fyrsta titil á mótinu.
Undankeppni
breytaFjögur lið komust í úrslitakeppnina. Sigurvegararnir í átta forriðlum léku sín á milli í umspili um sætin fjögur.
Spánverjar komust áfram úr fyrsta riðli á kostnað liðs Tékkóslóvakíu. Bronslið Portúgal frá HM 1966 mátti sætta sig við annað sætið á eftir Búlgörum. Sovétmenn áttu ekki í vandræðum með að vinna þriðja riðil.
Einna mesta dramatíkin varð í fjórða riðli þar sem Vestur-Þjóðverjar virtust með pálmann í höndunum fyrir lokaleikinn. Þjóðverjar og Júgóslavar höfðu unnið hvorir sinn innbyrðisleikinn en markatala vestur-þýska liðsins var betri svo þeim dugði sigur gegn þriðja liðinu í riðlinum, Albönum sem voru með markatöluna 0:12 eftir þrjá leiki. Lokatölur í Tírana urðu 0:0 og silfurliðið frá síðustu heimsmeistarakeppni var úr leik.
Boðið var upp á 42 mörk í leikjunum tólf í fimmta riðli þar sem Ungverjar fóru með sigur af hólmi. Ítalir og Frakkar unnu sína riðla stórvandræðalaust. Bresku löndin fjögur voru saman í áttunda riðli, en úrslit hans voru fengin með því að leggja saman úrslit knattspyrnukeppni Bretlands fyrir leiktíðirnar 1966-67 og 1967-68. Skotar og Englendingar mættust í lokaumferðinni á troðfullum Hampden Park þar sem Skotar þurftu sigur en gestirnir héngu á jafntefli og komust áfram.
Umspilsleikir
breytaÚrslit leikja
breytaUndanúrslit | Úrslit | |||||
5. júní | ||||||
Ítalía (e. hlutkesti) | 0 | |||||
8. júní og 10.júní | ||||||
Sovétríkin | 0 | |||||
Ítalía (Tvo úrslitaleiki þurfti) | 2 (1) | |||||
5. júní | ||||||
Júgóslavía | 0 (1) | |||||
Júgóslavía | 1 | |||||
England | 0 | |||||
Þriðja sæti | ||||||
8. júní | ||||||
England | 2 | |||||
Sovétríkin | 0 |
Undanúrslit
breyta5. júní 1968 | |||
Ítalía | 0-0 (e.framl.) | Sovétríkin | Stadio San Paolo, Napólí Áhorfendur: 68.582 Dómari: Kurt Tschenscher, Vestur-Þýskalandi |
- Ítalir unnu á hlutkesti
5. júní 1968 | |||
Júgóslavía | 1-0 | England | Stadio Comunale, Flórens Áhorfendur: 21.834 Dómari: José María Ortiz de Mendíbil, Spáni |
Džajić 86 |
Bronsleikur
breyta8. júní 1968 | |||
England | 2-0 | Sovétríkin | Ólympíuleikvangurinn, Róm Áhorfendur: 68.817 Dómari: István Zsolt, Ungverjalandi |
B. Charlton 39, Hurst 63 |
Úrslitaleikur
breyta8. júní 1968 | |||
Ítalía | 1-1 (e.framl.) | Júgóslavía | Ólympíuleikvangurinn, Róm Áhorfendur: 68.817 Dómari: Gottfried Dienst, Sviss |
Džajić 39 | Domenghini 80 | {{{mörk2}}} |
Seinni úrslitaleikur
breyta10. júní 1968 | |||
Ítalía | 2-0 | Júgóslavía | Ólympíuleikvangurinn, Róm Áhorfendur: 32.886 Dómari: José María Ortiz de Mendíbil, Spáni |
Riva 12, Anastasi 31 | {{{mörk2}}} |
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „UEFA Euro 1968“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt júlí 2012.