Fimmta ráðuneyti Ólafs Thors
Fimmta ráðuneyti Ólafs Thors (stundum kallað Viðreisnarstjórnin) var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins sem sat við völd á Íslandi frá 1959 til 1971. Markmiðið með stjórnarmynduninni var að reisa við efnahag landsins. Nafngiftin kom til eftir að ríkisstjórnin gaf út ritið Viðreisn árið 1960.
Forsætisráðherrar Viðreisnarstjórnarinnar voru formenn Sjálfstæðisflokksins; Ólafur Thors til 1963, Bjarni Benediktsson til 1970 og Jóhann Hafstein til 1971. Utanríkisráðherrar Viðreisnarstjórnarinnar voru Guðmundur Í. Guðmundsson, varaformaður Alþýðuflokksins 1954-1965, til 1965 og Emil Jónsson formaður Alþýðuflokksins 1956-1968. Forsetar Sameinaðs Alþingis voru Friðjón Skarphéðinsson til 1963 og Birgir Finnsson, báðir þingmenn Alþýðuflokksins.
Frá 14. september 1961 til 1. janúar 1962, gengdi Bjarni störfum forsætisráðherra í veikindaorlofi Ólafs, Jóhann Hafstein leysti Bjarna af hólmi sem dóms- og kirkjumálaráðherra og heilbrigðis- og iðnaðarmálaráðherra. 10. júlí 1970 lést Bjarni Benediktsson í eldsvoða á Þingvöllum og tók Jóhann Hafstein við sem forsætisráðherra.
Ýmsir töluðu um nýja viðreisnarstjórn þegar Viðeyjarstjórnin var mynduð 1991 af Sjálfstæðisflokki og Alþýðuflokki.
Verk
breytaViðreisnarstjórnin markaði upphaf álvæðingar landsins með stofnun Íslenska álfélagsins, ÍSAL, 1966 í Straumsvík. Viðreisnarstjórnin vann að heimkomu handritanna. Ríkissjónvarpinu var komið á fót af Viðreisnarstjórninni. Viðreisnarstjórnin glímdi við afleiðingar Síldarhvarfsins. Ísland gerðist aðili að EFTA í tíð Viðreisnarstjórnarinnar. Viðreisnarstjórnin hélt þingmeirihluta sínum í tvennum þingkosningum, 1963 og 1967.
Ráðherrar Viðreisnarstjórnarinnar
breyta
Fyrirrennari: Emilía |
|
Eftirmaður: Vinstristjórn II |