1569
ár
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1569 (MDLXIX í rómverskum tölum)
Á Íslandi
breyta- Hansakaupmenn setja upp búðir á Skutulsfjarðareyri (Ísafjarðarbæ).
- Guðbrandur Þorláksson varð skólameistari á Hólum eftir að Marteinn, danskur skólameistari þar, sagði starfinu lausu vegna óánægju með launakjör og fór til Danmerkur.
- Páll Vigfússon lögmaður dæmdur úr embætti fyrir að hafa liðkað fyrir verslun Englendinga við Íslendinga.
- Christoffer Valkendorf skipaður höfuðsmaður á Íslandi.
- Ormur Sturluson lögmaður kom aftur til Íslands frá Kaupmannahöfn og hafði fengið uppreisn æru hjá konungi.
Fædd
- Arnfríður Benediktsdóttir, húsfreyja á Skarði á Skarðsströnd (d. 1647).
Dáin
- 9. janúar - Ólafur Hjaltason Hólabiskup.
Erlendis
breyta- 26. janúar - Eiríkur 14. Svíakonungur formlega settur af og Jóhann 3. útnefndur konungur Svíþjóðar.
- 1. júlí - Pólland og Litháen sameinuðust og mynduðu Pólsk-litháíska samveldið.
- 10. júlí - Jóhann 3. og Katrín Jagellonika krýnd konungur og drottning Svíþjóðar í Uppsaladómkirkju.
Fædd
Dáin
- 13. mars - Louis 1. Bourbon, prins af Condé, hershöfðingi franskra húgenotta (f. 1530).
- 9. september - Pieter Brueghel eldri, flæmskur listmálari (f. um 1525).