Oregon
Oregon er fylki á vesturströnd Bandaríkjanna. Fylkið liggur að Washington í norðri, Idaho í austri, Nevada og Kaliforníu í suðri og Kyrrahafinu í vestri. Það er 9. stærsta fylki Bandaríkjanna eða 248.849 km2.
Oregon | |
---|---|
Viðurnefni: The Beaver State | |
Kjörorð: | |
Land | Bandaríkin |
Varð opinbert fylki | 14. febrúar 1859 | (33. fylkið)
Höfuðborg | Salem |
Stærsta borg | Portland |
Stærsta sýsla | Multnomah |
Stjórnarfar | |
• Fylkisstjóri | Tina Kotek (D) |
• Varafylkisstjóri | LaVonne Griffin-Valade (D) |
Þingmenn öldungadeildar |
|
Þingmenn fulltrúadeildar |
|
Flatarmál | |
• Samtals | 254.806 km2 |
• Land | 248.849 km2 |
• Vatn | 6.177 km2 (2,4%) |
• Sæti | 9. sæti |
Stærð | |
• Lengd | 580 km |
• Breidd | 640 km |
Hæð yfir sjávarmáli | 1.000 m |
Hæsti punktur | 3.428,8 m |
Lægsti punktur (Kyrrahaf) | 0 m |
Mannfjöldi (2023)[1] | |
• Samtals | 4.233.358 |
• Sæti | 27. sæti |
• Þéttleiki | 15/km2 |
• Sæti | 39. sæti |
Heiti íbúa | Oregonian |
Tungumál | |
• Opinbert tungumál | Ekkert |
Tímabelti | |
Mest af fylkinu | UTC−08:00 (PST) |
• Sumartími | UTC−07:00 (PDT) |
Meirihluti Malheur-sýslu | UTC−07:00 (MST) |
• Sumartími | UTC−06:00 (MDT) |
Póstnúmer | OR |
ISO 3166 kóði | US-OR |
Stytting | Ore. |
Breiddargráða | 42°N til 46°18'N |
Lengdargráða | 116°28'V til 124°38'V |
Vefsíða | oregon |
Salem er höfuðborg Oregon, en stærsta borg fylkisins er Portland. Eugene er þriðja stærsta borgin. Borgir þessar eru í Willamette-dal þar sem 70% íbúa fylkisins búa. Um 4,2 milljón manns býr í Oregon (2020).
Söguágrip
breytaSvæðið sem nú er Oregon er talið hafa verið byggt mönnum í um 15.000 ár líkt hellaristur úr Fort Rock hellinum hafa sýnt. Síðar könnuðu Evrópumenn svæðið og voru Spánverjar fyrstir á 16 öld. Bretinn James Cook kannaði Kyrrahafsströndina árið 1778. Árið 1859 varð Oregon fylki í Bandaríkjunum.
Náttúrufar
breytaFossafjöll liggja í gegnum fylkið og hefur að geyma eldkeilur. Mount Hood er hæsta fjallið eða 3425 metrar að hæð. Columbia-fljót myndar hluta nyrðri landamæri fylkisins. Um 48 % fylkisins er skógi vaxið. Áberandi trjátegundir eru degli, ponderosafura og risalífviður, marþöll og fjallaþöll.
Mörg villt spendýr lifa í Oregon. Meðal annars birnir, elgir, úlfar, fjallaljón, rauðrefir, íkornar, bjórar og þvottabirnir. Crater Lake National Park er eini þjóðgarðurinn.
Samfélag
breytaPólitík
breytaVesturhluti Oregon er í meira mæli frjálslyndur og vinstrisinnaður á meðan íbíar vestan Fossafjalla eru hægrisinnaðir. Marijúana er löglegt og neysluskammtar fyrir harðari efni ekki refsiverðir. Beint líknardráp var lögleitt árið 1994 í ríkinu (Death with Dignity Act). Dauðarefsing hefur ekki verið notuð þar síðan 1997.
Íbúar
breyta70% íbúa býr í Willamette-dalnum. Timburiðnaður og laxveiði eru mikilvægar atvinnugreinar. Um 78% íbúa eru hvítir, 12% mið- og suður- amerískir, 2% svartir, 4% asískir og 1% frumbyggjar.
Íþróttir
breytaPortland Trail Blazers er körfuboltalið í NBA-deildinni og Portland Timbers knattspyrnulið í MLS-deildinni.
Myndir
breyta-
Svæðisskipting Oregon
-
Kort
-
Skógur í Oregon
-
Mount Hood, hæsta fjall Oregon
-
Mount Jefferson í Oregon
Tilvísanir
breyta- ↑ „Annual Estimates of the Resident Population for the United States“. census.gov. 12. desember 2023. Sótt 21. febrúar 2024.