1665
ár
(Endurbeint frá MDCLXV)
Ár |
Áratugir |
Aldir |
Árið 1665 (MDCLXV í rómverskum tölum) var 65. ár 17. aldar sem hófst á fimmtudegi samkvæmt gregoríska tímatalinu en sunnudegi samkvæmt júlíska tímatalinu sem er tíu dögum á eftir.
Atburðir
breyta- 5. janúar - Vísindatímaritið Journal des sçavans hóf göngu sína í Frakklandi.
- 4. mars - Annað stríð Englands og Hollands hófst.
- 12. apríl - Fyrsta skráða dauðsfallið vegna Plágunnar miklu í London.
- 22. maí - Tómas Nikulásson, fógeti á Bessastöðum fórst undan Melum í Melasveit og með honum sex menn.
- 12. júní - Englendingar skipuðu bæjarstjórn í New York.
- 5. október - Háskólinn í Kiel var stofnaður.
- 29. október - Portúgalir sigruðu Kongóveldið í orrustunni við Mbwila og drápu konunginn Anton 1. af Kongó.
- 17. september - Karl 2. varð konungur Spánar fjögurra ára gamall.
- 7. nóvember - Tímaritið London Gazette hóf göngu sína.
- 14. nóvember - Konungslögin um Einveldið í Danmörku undirrituð af Friðriki 3..
Ódagsettir atburðir
breyta- Sjö bjarndýr gengu á land í Trékyllisvík.
- Snorra-Edda kom í fyrsta sinn út á prenti, í útgáfu Peders Resens í Kaupmannahöfn.
- Bólusótt geisaði í Evrópu.
- Leikritið Ástarlæknirinn (L'Amour médecin) eftir Moliére var frumsýnt.
- Robert Hooke uppgötvaði frumur í trjáberki.
Fædd
breyta- 6. febrúar - Anna Bretadrottning (d. 1714).
- 12. febrúar - Rudolf Jakob Camerarius, þýskur grasafræðingur (d. 1721).
Ódagsett
breyta- Jón Árnason biskup í Skálholti (d. 1743).
Dáin
breyta- 2. janúar - Pierre de Fermat, franskur stærðfræðingur (f. 1601).
- 10. mars - Árni Oddsson lögmaður (f. 1592)
- 23. maí - Tómas Nikulásson fógeti á Bessastöðum drukknaði ásamt sjö öðrum þegar skúta hans fórst á Faxaflóa.
- 25. ágúst - Torfi Erlendsson, sýslumaður í Gullbringusýslu (f. 1598).
- 17. september - Filippus 4. Spánarkonungur (f. 1605).
- 19. nóvember - Nicolas Poussin, franskur listmálari (f. 1594)