Borgarstjórn Reykjavíkur

(Endurbeint frá Bæjarstjórn Reykjavíkur)

Borgarstjórn Reykjavíkur er lýðræðislegur vettvangur kjörinna fulltrúa íbúa Reykjavíkurborgar. Borgarstjórn ber ábyrgð því að framfylgja þeim málefnum sem ríkið hefur falið sveitarstjórnum.

Borgarstjórn Reykjavíkur fundar í Ráðhúsi Reykjavíkur.

Borgarstjórn skipar borgarstjóra og skipar í nefndir á sínum vegum sem sjá um daglegan rekstur borgarinnar. Fulltrúar í borgarstjórn kallast borgarfulltrúar og eru 23 talsins. Kosið er til borgarstjórnar í almennum kosningum á fjögurra ára fresti, þannig ekki er hægt að kjósa aftur áður en kjörtímabil er liðið líkt og með Alþingi. Reglulegir fundir borgarstjórnar fara fram á fyrsta og þriðja þriðjudegi hvers mánaðar.[1]

Völd borgarstjórnar

breyta

Samkvæmt 8. grein sveitarstjórnarlaga fer borgarstjórn með stjórn Reykjavíkurborgar samkvæmt ákvæðum þeirra og annarra laga. Stjórnin hefur ákvörðunarvald um nýtingu tekjustofna borgarinnar og sér um framkvæmd þeirra verkefna sem sveitarfélagið annast. Höfuðmaður borgarstjórnar og framkvæmdastjóri Reykjavíkurborgar er borgarstjóri sem skipaður er af stjórninni.[2]

Núverandi

breyta

Ellefu framboðslistar voru í kjöri í borgarstjórnarkosningum 14. maí 2022. Þeir voru: B-listi Framsóknarflokks, C-listi Viðreisnar, D-listi Sjálfstæðisflokks, E-listi Reykjavík - besta borgin, F-listi Flokks fólksins, J-listi Sósíalistaflokks Íslands, M-listi Miðflokksins, P-listi Pírata, S-listi Samfylkingarinnar, V-listi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs og Y-listi Ábyrgrar framtíðar.

Sjálfstæðisflokkur hlaut 6 borgarfulltrúa, Samfylking 5, Framsóknarflokkur 4, Píratar 3, Sósíalistaflokkur Íslands 2, Viðreisn 1, Flokkur fólksins 1 og Vinstrihreyfingin grænt framboð 1. Næsti maður inn væri fimmti fulltrúi Framsóknarflokks á kostnað Sósíalistaflokkur Íslands, en munaði 319 atkvæðum þar á. Vantaði Miðflokknum 843 atkvæði til að ná manni inn[3]. Önnur framboð fengu innan við 1% atkvæða. Fyrsti fundur nýrrar borgarstórnar var haldinn 7. júní 2022.

Þann 6. júní 2022 var kynntur nýr meirihluti Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar sem samtals hlutu 13 borgarfulltrúa. Samfylking, Píratar og Viðreisn, leyfar af gamla meirihlutanum, höfðu myndað með sér bandalag um að ganga saman til meirihlutaviðræðna en Samfylking, Framsókn og Píratar hefðu getað myndað 12 fulltrúa meirihluta. Vinstri græn höfðu gefið út að þau myndu ekki ganga í samstarf með gamla meirihlutanum.[4] Í nýjum meirihlutasáttmála var meðal annars lögð áhersla á húsnæðisátak í Úlfarsárdal, á Kjalarnesi, á Hlíðarenda, í Gufunesi og á Ártúnshöfða, viðhaldsátak í leik- grunn- og frístundahúsnæði, að hefða gerð umhverfismats vegna Sundabrautar, að stofna framkvæmdarnefnd um þjóðarhöll, að hækka frístundastyrk, endurvekja næturstrætó og framkvæmdir við Hlemmtorg[5].

Flokkur Listi Atkvæði % Fulltrúar
Sjálfstæðisflokkurinn D 14.686 24,5 6
Samfylkingin S 12.164 20,29 5
Framsóknarflokkurinn B 11.227 18,73 4
Píratar P 6.970 11,63 3
Sósíalistaflokkur Íslands J 4.618 7,7 2
Viðreisn C 3.111 5,19 1
Flokkur fólksins F 2.701 4,51 1
Vinstrihreyfingin - grænt framboð V 2.396 4 1
Miðflokkurinn M 1.467 2,45 0
Aðrir framboðslistar 609 1,01 0


Nr. Kjörnir borgarfulltrúar Flokkur Atkv.
1 Hildur Björnsdóttir D 14.686
2 Dagur B. Eggertsson S 12.164
3 Einar Þorsteinsson B 11.227
4 Ragnhildur Alda M. Vilhjálmsdóttir D 7.343
5 Dóra Björt Guðjónsdóttir P 6.970
6 Heiða Björg Hilmisdóttir S 6.082
7 Árelía Eydís Guðmundsdóttir B 5.614
8 Kjartan Magnússon D 4.895
9 Sanna Magdalena Mörtudóttir J 4.618
10 Skúli Þór Helgason S 4.055
11 Magnea Gná Jóhannsdóttir B 4.055
12 Marta Guðjónsdóttir D 3.672
13 Alexandra Briem P 3.485
14 Þórdís Lóa Þórhallsdóttir C 3.111
15 Sabine Leskopf S 3.041
16 Björn Gíslason D 2.937
17 Aðalsteinn Haukur Sverrisson B 2.807
18 Kolbrún Baldursdóttir F 2.701
19 Friðjón R. Friðjónsson D 2.448
20 Hjálmar Sveinsson S 2.433
21 Líf Magneudóttir V 2.396
22 Magnús Davíð Norðdahl P 2.323
23 Trausti Breiðfjörð Magnússon J 2.309

Fyrrverandi meirihlutar

breyta

Á árunum 1930-2018 voru borgarfulltrúar 15 og því þurfti 8 eða fleiri til að mynda meirihluta:

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15
1930-1934   Sjálfstæðis­flokkurinn

Meirihluti

Alþýðu­flokkurinn   Framsóknar­flokkurinn
1934-1938 Kommúnistaflokkurinn   Framsóknar­flokkurinn
1938-1942   Sjálfstæðis­flokkurinn

Meirihluti

Alþýðu­flokkurinn og Kommúnistaflokkurinn
1942-1946   Sjálfstæðis­flokkurinn

Meirihluti

Alþýðu­flokkurinn Sósíalistaflokkurinn
1946-1950 Alþýðu­flokkurinn   Framsóknar­flokkurinn
1950-1954 Alþýðu­flokkurinn   Framsóknar­flokkurinn
1954-1958 Sósíalistaflokkurinn   Framsóknar­flokkurinn Þjóðvarnarflokkurinn
1958-1962   Sjálfstæðis­flokkurinn

Meirihluti

Alþýðu­flokkurinn
1962-1966   Sjálfstæðis­flokkurinn

Meirihluti

Alþýðu­flokkurinn Alþýðu­bandalagið   Framsóknar­flokkurinn
1966-1970   Sjálfstæðis­flokkurinn

Meirihluti

Alþýðu­flokkurinn
1970-1974 Alþýðu­flokkurinn Alþýðu­bandalagið   Framsóknar­flokkurinn
1974-1978   Sjálfstæðis­flokkurinn

Meirihluti

Alþýðu­flokkurinn Alþýðu­bandalagið   Framsóknar­flokkurinn
1978-1982   Sjálfstæðis­flokkurinn Alþýðu­flokkurinn

Meirihluti

Alþýðu­bandalagið

Meirihluti

  Framsóknar­flokkurinn

Meirihluti

1986-1990   Sjálfstæðis­flokkurinn

Meirihluti

Alþýðu­bandalagið Alþýðu­flokkurinn   Framsóknar­flokkurinn Kvennalistinn
1990-1994   Sjálfstæðis­flokkurinn

Meirihluti

Alþýðu­bandalagið Alþýðu­flokkurinn
1994-1998   Sjálfstæðis­flokkurinn   Reykjavíkurlistinn

Meirihluti

1998-2002
2002-2006   Sjálfstæðis­flokkurinn Frjálslyndi flokkurinn
2006-2010   Sjálfstæðis­flokkurinn

Meirihluti 11. júní 2006 - 16. október 2007
Meirihluti 24. janúar 2008 - 21. ágúst 2008
Meirihluti 21. ágúst 2008 - 29. maí 2010

Frjálslyndi flokkurinn

Meirihluti 16. október 2007 - 24. janúar 2008
Meirihluti 24. janúar 2008 - 21. ágúst 2008

  Samfylkingin

Meirihluti 16. október 2007 - 24. janúar 2008

  Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Meirihluti 16. október 2007- 24. janúar 2008

  Framsóknar­flokkurinn

Meirihluti 11. júní 2006 - 16. október 2007
Meirihluti 16. október 2007 - 24. janúar 2008
Meirihluti 21. ágúst 2008 - 29. maí 2010

2010-2014   Sjálfstæðis­flokkurinn   Samfylkingin

Meirihluti

Besti flokkurinn

Meirihluti

  Vinstrihreyfingin – grænt framboð
2014-2018   Sjálfstæðis­flokkurinn
  Samfylkingin

Meirihluti

  Björt framtíð

Meirihluti

  Píratar

Meirihluti

  Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Meirihluti

  Framsóknar­flokkurinn


Frá árinu 2018 hafa borgarfulltrúar verið 23 talsins og því þarf 12 eða fleiri til að mynda meirihluta:

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
2018-2022   Sjálfstæðis­flokkurinn
  Samfylkingin

Meirihluti

Viðreisn

Meirihluti

  Píratar

Meirihluti

  Sósíalistaflokkur Íslands
Miðflokkurinn
  Vinstrihreyfingin – grænt framboð

Meirihluti

  Flokkur fólksins

Sviptingar í borgarstjórn á kjörtímabilinu 2006 - 2010

breyta

Frá 11. júní 2006 til 16. október 2007 mynduðu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn meirihluta og Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson var borgarstjóri. Upp úr því samstarfi slitnaði haustið 2007 vegna deilna um sameiningu Reykjavík Energy Invest og Geysis Green Energy. Frá 16. október 2007 til 24. janúar 2008 mynduðu allir flokkar nema Sjálfstæðisflokkur meirihluta með Dag B. Eggertsson sem borgarstjóra. Upp úr því samstarfi slitnaði hinn 24. janúar 2008 þegar Ólafur F. Magnússon myndaði meirihluta með sjálfstæðismönnum og settist sjálfur í stól borgarstjóra, en honum hafði fundist hlutur sinn í fyrra samstarfi heldur rýr. Ýmsir örðugleikar gerðu þó einnig vart við sig í því samstarfi og skoðanakannanir gáfu til kynna að nýi meirihlutinn missti sífellt fylgi. Síðsumars slitu sjálfstæðismenn svo samstarfinu og mynduðu nýjan meirihluta með framsóknarmanninum Óskari Bergssyni hinn 21. ágúst 2008, en þá varð Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, sá fjórði á kjörtímabilinu.

Tilvísanir

breyta
  1. Fundir borgarstjórnar
  2. Völd borgarstjórnar
  3. „Reykjavík 2022“. kosningasaga. 24. janúar 2022. Sótt 20. september 2022.
  4. „VG ætlar ekki í samstarf með fráfarandi meirihluta í borginni“. DV. 15. maí 2022. Sótt 20. september 2022.
  5. Meirihluti Rvk (2022). „Meirihlutasáttmáli Reykjavík 2022“ (PDF). Sótt 09 2022.