Sósíalistaflokkur Íslands (21. öld)

Íslenskur stjórnmálaflokkur

Sósíalistaflokkur Íslands oftast kallaður Sósíalistaflokkurinn er íslenskur stjórnmálaflokkur sem stofnaður var 1. maí árið 2017. Stofnun flokksins var undirbúin af um 1250 stofnfélögum[1]. Samkvæmt Gunnari Smára Egilssyni, einum af talsmönnum flokksins, á flokkurinn á að vera; málsvari launafólks og allra þeirra sem búa við skort, ósýnileika og valdaleysi. Andstæðingar Sósíalistaflokks Íslands eru auðvaldið og þeir sem ganga erindi þess.[2]

Sósíalistaflokkur Íslands
Leiðtogi Sanna Magdalena Mörtudóttir
Stofnár 2017
Stofnandi Gunnar Smári Egilsson
Stjórnmálaleg
hugmyndafræði
sósíalismi
Einkennislitur rauður  
Listabókstafur J
Vefsíða sosialistaflokkurinn.is

Áherslumál

breyta

Aðaláherslumál flokksins eru mannsæmandi kjör (laun, atvinnuleysisbætur, lífeyrir, námslán o.fl.), aðgengi að öruggu og ódýru húsnæði, gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi, stytting vinnuvikunnar og enduruppbygging skattheimtunar (hærri álögur á auðmenn og lægri á verkafólk).

Saga og flokksskipulag

breyta

Samkvæmt Gunnari Smára höfðu 1400 manns skráð sig í flokkinn fyrir stofnfund hans. Bráðabirgðastjórn var kosin á stofnfundinum til að undirbúa sósíalistaþing haustið 2017[3]. Þinginu var frestað og fór fram 20. janúar 2018.[4]

Var þar meðal annars ákveðið að uppbygging flokksins yrði með þeim hætti að engin hefðbundin stjórn yrði, heldur væri honum stýrt af þremur stjórnum, framkvæmdarstjórn, málefnastjórn og félagastjórn sem kosnar voru á fundinum. Hver stjórn velur sér síðan formann úr sínum hópi. [5]

Framboð

breyta

Alþingiskosningar 2017

breyta

Flokkurinn ákvað að bjóða ekki fram fyrir Alþingiskosningar 2017 heldur einbeita sér að uppbyggingarstarfi og hafa áhrif með öðru móti.

Sveitarstjórnarkosningar 2018

breyta

Á flokksfundi 1. maí 2018 tilkynnti flokkurinn að hann myndi bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum 2018 í Reykjavík og Kópavogi.[6] Flokkurinn hlaut tæp 3,2% atkvæða í Kópavogi og engan mann, en 6,4% einn fulltrúa í Reykjavík, Sönnu Magdalenu Mörtudóttur.

Alþingiskosningar 2021

breyta

Sósíalistaflokkur Íslands, bauð fram í öllum kjördæmum landsins í alþingiskosningunum 2021. Flokkurinn byggir á flötu valdastigveldi, þar sem efstu frambjóðendur í hverju kjördæmi gegndu hlutverki helstu talsmanna.[7] Gunnar Smári Egilsson leiddi flokkinn í þeim kosningunum. Efstu frambjóðendur í kjördæmunum voru:

  • Reykjavík Norður (RN): Gunnar Smári Egilsson
  • Reykjavík Suður (RS): Katrín Baldursdóttir
  • Suðurkjördæmi (SV): María Pétursdóttir
  • Norðvesturkjördæmi (NV): Helga Thorberg
  • Norðausturkjördæmi (NA): Haraldur Ingi Haraldsson
  • Suðvesturkjördæmi (SJ): Guðmundur Auðunsson

Flokkurinn hlaut 8.181 atkvæði, sem jafngilti 4,1% af heildaratkvæðafjölda. Sósíalistaflokkurinn fékk engan fulltrúa kjörinn á Alþingi[8].

Sveitarstjórnarkosningar 2022

breyta

Þann 8. apríl 2022 var greint frá því að flokkurinn ætlaði að bjóða fram í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022. Sanna Magdalena Mörtudóttir var oddviti í Reykjavík í annað sinn og fékk flokkurinn 7,7% og bætti við sig um einn fulltrúa, Trausti Breiðafjörð Magnússon.

Alþingiskosningar 2024

breyta

Í október 2024 tilkynnti flokkurinn að þau hyggðust bjóða fram lista í öllum kjördæmum fyrir alþingiskosningarnar 2024. Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi var kjörin eiginlegur leiðtogi flokkinn í kosningunum, eftir að hún tilkynnti um landsframboð í september. Efstu frambjóðendur í kjördæmunum voru:

Flokkurinn hlaut 8.422 atkvæði, sem jafngilti 3,9% heildaratkvæða og því hlaut flokkurinn ekki fulltrúa á þinginu, þrátt fyrir gott gengi í könnunum fyrir kosningarnar.

Leiðtogar

breyta

Sósíalistaflokkur Íslands hefur ekki neinn eiginlegan formann, en þess í stað hefur flokkurinn hlutverk pólitísks leiðtoga.

Leiðtogar Kjörinn Hætti
  Gunnar Smári Egilsson 1. maí 2017 20. október 2024
  Sanna Magdalena Mörtudóttir 20. október 2024 Enn í embættti

Tilvísanir

breyta
  1. „Sósíalistaflokkurinn stofnaður 1. maí“. Sósíalistaflokkurinn. Sótt 8. febrúar 2024.
  2. Gunnar Smári stofnar Sósíalistaflokk Íslands Rúv. skoðað 1. maí, 2017.
  3. Sósíalistaflokkur Íslands stofnaður Rúv, skoðað 1. maí, 2017.
  4. Sósíalistaþing 2018; stefna, skipulag, stjórnir og næstu átök sosialistaflokkurinn.is, skoðað 1. maí, 2018.
  5. Nýkjörnar stjórnir; málefna- félaga- og framkvæmdastjórnir sosialistaflokkurinn.is, skoðað 1. maí, 2018.
  6. Sósíalistaflokkurinn birtir framboðslista fyrir Reykjavík og Kópavog , vísir skoðað 1. maí, 2018.
  7. „Lög“. Sósíalistaflokkurinn. Sótt 8. febrúar 2024.
  8. „Úrslit alþingiskosninga eftir kjördæmi 2021“. PxWeb. Sótt 8. febrúar 2024.[óvirkur tengill]

Tenglar

breyta