Friðrik Sophusson
Friðrik Sophusson (fæddur 18. október 1943 í Reykjavík) er íslenskur lögfræðingur, og núverandi stjórnarformaður Íslandsbanka.[1] Friðrik var áður varaformaður Sjálfstæðisflokksins 1981 til 1988 og frá 1991 til 1999, fjármálaráðherra frá 1991 til 1998 og forstjóri Landsvirkjunar frá 1998 til 2010. [2]
Nám og störf
breytaFriðrik lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1963 og lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1972. Hann var framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Íslands á árunum 1972 til 1978 og framkvæmdastjóri Hraðfrystihúss Hnífsdals í sumarafleysingum frá 1978 allt til ársins 1986. Hann gegndi embætti iðnaðarráðherra 8. júlí 1987 - 28. sept. sama ár og embætti fjármálaráðherra 30. apríl 1991 - 16. apríl 1998. Frá árinu 1998 hefur hann verið forstjóri Landsvirkjunar.
Á sínum yngri árum var Friðrik formaður Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta. Á stjórnmálaferli sínum sat hann í ýmsum nefndum og ráðum, m.a. miðstjórn Sjálfstæðisflokksins, útvarps- og rannsóknaráði, kjaradeilunefnd og stjórnarnefnd Ríkisspítalanna. Hann bauð sig fram til formanns sjálfstæðisflokksins gegn Þorsteini Pálssyni 1982. Friðrik og Guðmundur Gunnarsson faðir Bjarkar Guðmundsdóttur eru systkinabörn.
Eitt og annað
breyta- Jóakim Pálsson útgerðarmaður í Hnífsdal var um tíma tengdafaðir Friðriks. Hann sagði í blaðaviðtali árið 1981, þegar hann var spurður hvort tengdasonur sinn hefði ekki smitað hann af stjórnmála- og félagsmálaáhuga. Svarið var: „Hann Friðrik. Hann veit aldrei neitt, þegar ég tala við hann. Hann veit aldrei neitt fyrr en hann kemur á fundi og þetta máttu skrifa“. [3]
Tilvísanir
breytaTenglar
breyta- Friðrik Sophusson; grein í DV 1987
- Björn Valur: Þjóðin þarf ekki Friðrik Sophusson
- Karlinn á kassanum; grein í Frjálsri verslun 1998
Fyrirrennari: Ellert B. Schram |
|
Eftirmaður: Jón Magnússon | |||
Fyrirrennari: Ólafur Ragnar Grímsson |
|
Eftirmaður: Geir H. Haarde | |||
Fyrirrennari: Gunnar Thoroddsen |
|
Eftirmaður: Davíð Oddsson | |||
Fyrirrennari: Davíð Oddsson |
|
Eftirmaður: Geir H. Haarde |