Evrópukeppnin í knattspyrnu 1992
Evrópukeppnin í knattspyrnu 1992, oftast nefnd EM 1992, var í níunda skiptið sem Evrópukeppni karla í knattspyrnu hefur verið haldin. Lokamótið var haldið í Svíþjóð á dögunum 10. til 26. júní 1992. Mótið er haldið fjórða hvert ár á vegum Knattspyrnusambands Evrópu. Þetta var síðasta mótið þar sem aðeins átta lið taka þátt í lokamótinu. Júgóslavía komst áfram í lokakeppnina en var síðar meinuð þátttaka vegna stríða í landinu. Í stað þeirra spilaði landslið Danmerkur sem svo unnu mótið í úrlitaleik gegn Þýsklandi. Þetta var fyrsti titill Danmerkur í keppninni.
Aðdragandi og skipulag
breytaSvíar og Spánverjar föluðust eftir að halda keppnina. Framkvæmdastjórn UEFA valdi Svíþjóð og var það talið mæla gegn spænska framboðinu að Sumarólympíuleikarnir 1992 og heimssýningin í Sevilla fóru fram sama ár.
Þetta var síðasta úrslitakeppnin með aðeins átta þátttökuliðum og jafnframt síðasta keppnin þar sem tvö stig voru gefin fyrir sigur í stað þriggja. Einnig var þetta síðasta stórmótið í knattspyrnu þar sem markverðir máttu handleika knöttinn eftir sendingu frá samherja.
Úrslit
breytaÁtta lið kepptu í úrslitakeppninni. Þeim var skipt upp í tvo fjögurra liða riðla. Efstu tvö lið hvors um sig komust í undanúrslit.
Riðill 1
breytaHeimamenn Svíar fóru sannfærandi upp úr riðlinum með tveimur sigrum og jafntefli. Danir virtust vonlitlir fyrir lokaumferðina með aðeins eitt stig en unnu óvæntan sigur á Frökkum og tryggðu sér hitt sætið í undanúrslitum. Frammistaða Englendinga olli vonbrigðum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Svíþjóð | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 2 | +2 | 5 | |
2 | Danmörk | 3 | 1 | 1 | 1 | 2 | 2 | 0 | 3 | |
3 | Frakkland | 3 | 0 | 2 | 2 | 3 | 2 | -1 | 2 | |
4 | England | 3 | 0 | 2 | 1 | 1 | 2 | -1 | 2 |
10. júní 1992 | |||
Svíþjóð | 1:1 | Frakkland | Råsunda Stadium, Solna Áhorfendur: 29.860 Dómari: Alexey Spirin, Samveldi sjálfstæðra ríkja |
J. Eriksson 24 | Papin 58 |
11. júní 1992 | |||
Danmörk | 0:0 | England | Malmö leikvangurinn, Malmö Áhorfendur: 26.385 Dómari: Tullio Lanese, Ítalíu |
14. júní 1992 | |||
Frakkland | 0:0 | England | Malmö leikvangurinn, Malmö Áhorfendur: 26.535 Dómari: Sándor Puhl, Ungverjalandi |
14. júní 1992 | |||
Svíþjóð | 1:0 | Danmörk | Råsunda Stadium, Solna Áhorfendur: 29.902 Dómari: Aron Schmidhuber, Þýskalandi |
Brolin 58 |
17. júní 1992 | |||
Svíþjóð | 2:1 | England | Råsunda Stadium, Solna Áhorfendur: 30.126 Dómari: José Rosa dos Santos, Portúgal |
J. Eriksson 51, Brolin 82 | Platt 4 |
17. júní 1992 | |||
Frakkland | 1:2 | Danmörk | Malmö leikvangurinn, Malmö Áhorfendur: 25.763 Dómari: Hubert Forstinger, Austurríki |
Papin 60 | Larsen 8, Elstrup 78 |
Riðill 2
breytaThomas Häßler bjargaði Þjóðverjum fyrir horn með því að jafna á lokamínútunni gegn liði Samveldisins, sem gerði einnig jafntelf jafntefli við Hollendinga í næsta leik. Skotar komu á óvart og skelltu Samveldinu 3:0 í lokaleiknum með þeim afleiðingum að Holland og Þýskaland hirtu tvö efstu sætin í riðlinum.
Sæti | Lið | L | U | J | T | Sk | Fe | M.munur | Stig | |
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
1 | Holland | 3 | 2 | 1 | 0 | 4 | 1 | +3 | 5 | |
2 | Þýskaland | 3 | 1 | 1 | 1 | 4 | 4 | 0 | 3 | |
3 | Skotland | 3 | 1 | 0 | 2 | 3 | 3 | 0 | 2 | |
4 | Samveldi sjálfstæðra ríkja | 3 | 0 | 2 | 1 | 1 | 4 | -3 | 2 |
12. júní 1992 | |||
Holland | 1:0 | Skotland | Ullevi leikvangurinn, Gautaborg Áhorfendur: 35.720 Dómari: Bo Karlsson, Svíþjóð |
Bergkamp 75 |
12. júní 1992 | |||
Samveldi sjálfstæðra ríkja | 1:1 | Þýskaland | Idrottsparken, Norrköping Áhorfendur: 17.410 Dómari: Gérard Biguet, Frakklandi |
Dobrovolski 64 (vítasp.) | Häßler 90 |
15. júní 1992 | |||
Skotland | 0:2 | Þýskaland | Idrottsparken, Norrköping Áhorfendur: 17.638 Dómari: Guy Goethals, Belgíu |
Riedle 29, Effenberg 47 |
15. júní 1992 | |||
Holland | 0:0 | Samveldi sjálfstæðra ríkja | Ullevi leikvangurinn, Gautaborg Áhorfendur: 34.440 Dómari: Peter Mikkelsen, Danmörku |
18. júní 1992 | |||
Holland | 3:1 | Þýskaland | Ullevi leikvangurinn, Gautaborg Áhorfendur: 37.725 Dómari: Pierluigi Pairetto, Ítalíu |
Rijkaard 4, Witschge 15, Bergkamp 72 | Klinsmann 53 |
18. júní 1992 | |||
Skotland | 3:0 | Samveldi sjálfstæðra ríkja | Idrottsparken, Norrköping Áhorfendur: 14.660 Dómari: Kurt Röthlisberger, Svissi |
McStay 7, McClair 16, McAllister 84 (vítasp.) |
Úrslitakeppnin
breytaUndanúrslit
breyta21. júní 1992 | |||
Svíþjóð | 3:2 | Þýskaland | Råsunda Stadium, Solna Áhorfendur: 28.827 Dómari: Tullio Lanese, Ítalíu |
Brolin 64 (vítasp.), K. Andersson 89 | Häßler 11, Riedle 59, 88 |
22. júní 1992 | |||
Holland | 2:2 (6:7 e.vítake.) | Danmörk | Ullevi, Gautaborg Áhorfendur: 37.450 Dómari: Emilio Soriano Aladrén, Spáni |
Bergkamp 23, Rijkaard 86 | Larsen 5, 33 |
Úrslitaleikur
breyta26. júní 1992 | |||
Danmörk | 2:0 | Þýskaland | Ullevi, Gautaborg Áhorfendur: 37.800 Dómari: Bruno Galler, Sviss |
Jensen 18, Vilfort 78 |
Heimildir
breyta- Fyrirmynd greinarinnar var „UEFA Euro 1992“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt júlí 2012.