Lester B. Pearson
Lester Bowles „Mike“ Pearson (23. apríl 1897 – 27. desember 1972) var kanadískur fræðimaður, stjórnmálamaður og ríkiserindreki sem vann friðarverðlaun Nóbels árið 1957 fyrir að skipuleggja inngrip Sameinuðu þjóðanna í Súesdeiluna. Hann var forsætisráðherra Kanada frá árinu 1963 til 1968 fyrir tvær minnihlutastjórnir Frjálslynda flokksins í röð.
Lester B. Pearson | |
---|---|
Forsætisráðherra Kanada | |
Í embætti 22. apríl 1963 – 20. apríl 1968 | |
Þjóðhöfðingi | Elísabet 2. |
Landstjóri | Georges Vanier Roland Michener |
Forveri | John Diefenbaker |
Eftirmaður | Pierre Trudeau |
Persónulegar upplýsingar | |
Fæddur | 23. apríl 1897 Newtonbrook, Toronto, Kanada |
Látinn | 27. desember 1972 (75 ára) Ottawa, Kanada |
Stjórnmálaflokkur | Frjálslyndi flokkurinn |
Maki | Maryon Moody (g. 1925) |
Börn | 2 |
Háskóli | Viktoríuháskóli í Toronto St John's-háskóli, Oxford |
Starf | Stjórnmálamaður, ríkiserindreki, sagnfræðingur, hermaður |
Verðlaun | Friðarverðlaun Nóbels (1957) |
Undirskrift |
Á meðan Pearson var forsætisráðherra innleiddu ríkisstjórnir hans víðtækari heilbrigðisþjónustu, námslán, eftirlaun og tóku upp kanadíska fánann og kanadísku ríkisorðuna. Ríkisstjórnir hans sameinuðu einnig herafla Kanada.[1] Pearson hélt Kanada utan við Víetnamstríðið og setti á fót nefnd um fjöltyngi og fjölmenningu. Árið 1967 afnam ríkisstjórn hans í reynd dauðarefsingu með því að einskorða hana við fáeina glæpi sem voru síðan lagðir niður árið 1976. Vegna þessara afreka og verka sinna með Sameinuðu þjóðunum og alþjóðastjórnmálum er Pearson gjarnan talinn einn áhrifamesti Kanadamaður 20. aldarinnar[2] og einn besti forsætisráðherra Kanada.[3]
Tilvísanir
breyta- ↑ Bothwell, Robert. „Lester B. Pearson“. The Canadian Encyclopedia. Sótt 20. febrúar 2016.
- ↑ MacDonald, L. Ian. "The Best Prime Minister of the Last 50 Years — Pearson, by a landslide", Policy Options, júní–júlí 2003. Skoðað 3. apríl 2014.
- ↑ S. Azzi, N. Hillmer. "Ranking Canada's best and worst prime ministers",Maclean's, október 2016. Skoðað 27. maí 2017
Fyrirrennari: John Diefenbaker |
|
Eftirmaður: Pierre Trudeau |