Viktoría Bretadrottning
Viktoría Bretadrottning (Alexandra Viktoría) (24. maí 1819 – 22. janúar 1901) var drottning Bretlands (sameinaðs konungdæmis Englands, Skotlands og Írlands) frá 20. júní 1837 og keisaradrottning Indlands frá 1. janúar 1877. Hún ríkti í yfir sextíu ár, lengur en nokkur annar breskur þjóðhöfðingi þar til Elísabet 2. tók fram úr henni árið 2015, og er sá tími í sögu Bretlands kenndur við hana og kallaður Viktoríutímabilið. Á þessu tímabili var Bretland áhrifamikið nýlenduveldi á blómaskeiði Iðnbyltingarinnar sem olli gríðarlegum félagslegum, tæknilegum og hagfræðilegum breytingum í Bretlandi.[1] Viktoría var síðasti þjóðhöfðingi Bretlands af Hannover-ættinni, þar sem sonur hennar, Játvarður VII, taldist vera af ætt eiginmanns hennar, Alberts prins, Saxe-Coburg-Gotha-ættinni.
| ||||
Viktoría
| ||||
Ríkisár | 20. júní 1837 – 22. janúar 1901 | |||
Skírnarnafn | Alexandrina Victoria | |||
Fædd | 24. maí 1819 | |||
Kensington-höll, London, Englandi | ||||
Dáin | 22. janúar 1901 (81 árs) | |||
Osborn-húsi, Wighteyju | ||||
Gröf | Frogmore-grafhýsið, Windsor | |||
Undirskrift | ||||
Konungsfjölskyldan | ||||
Faðir | Játvarður prins, hertogi af Kent og Strathearn | |||
Móðir | Viktoría prinsessa af Saxe-Coburg-Saalfeld | |||
Eiginmaður | Albert prins af Saxe-Coburg og Gotha | |||
Börn | Prinsar og prinsessur
|
Börn
breyta- Victoria Adelaide Mary Louise, hin konunglega prinsessa (1840 – 1901)
- Albert Edward (1841 – 1910)
- Alice Maud Mary prinsessa (1843 – 1878)
- Alfred Ernest Albert prins, seinna hertoginn af Saxe-Coburg og Gotha (1844 – 1900)
- Helena Augusta Victoria prinsessa (1846 – 1923)
- Louise Caroline Alberta, seinna hertogaynjan af Argyll (1848 – 1939)
- Arthur William Patrick Albert prins, seinna hertoginn af Connaught og Strathearn (1850 – 1942)
- Leopold George Duncan Albert prins, seinna hertoginn af Albany (1853 – 1884)
- Beatrice Mary Victoria Feodore prinsessa (1857 – 1944)
Tilvísanir
breyta
Fyrirrennari: Vilhjálmur IV |
|
Eftirmaður: Játvarður VII | |||
Fyrirrennari: Bahadur Sjah II (síðasti Mógúlkeisarinn) |
|
Eftirmaður: Játvarður VII |