Fyrsta ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur
Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur tók við völdum þann 30. nóvember 2017. Hún samanstendur af Sjálfstæðisflokknum, Vinstrihreyfingunni - grænu framboði og Framsóknarflokknum. Í ríkisstjórninni eru 11 ráðherrar sem skiptast þannig að Sjálfstæðisflokkurinn hefur fimm ráðherra, Vinstrihreyfingin - grænt framboð þrjá og Framsóknarflokkurinn þrjá. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa meirihluta á Alþingi með 33 þingmenn. Í upphafi kjörtímabilsins höfðu flokkarnir 35 þingmenn, en síðan þá hafa tveir þingmenn sagt sig úr þingflokki Vinstri-Grænna: Andrés Ingi Jónsson haustið 2019[1] og Rósa Björk Brynjólfsdóttir haustið 2020[2]. Rósa Björk gekk til liðs við þingflokk Samfylkingarinnar í desember 2020 og Andrés Ingi gekk til liðs við þingflokk Pírata í febrúar 2021.[3]
Einn utanþingsráðherra, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, situr í umhverfis- og auðlindaráðuneytinu fyrir Vinstrihreyfinguna - grænt framboð.
Breytingar urðu í ráðuneytinu 14. mars 2019 eftir að Sigríður Á. Andersen sagði af sér embætti dómsmálaráðherra eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu hafði dæmt íslenska ríkið brotlegt í skipun dómara í Landsrétti, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir tók þá við embættinu tímabundið[4] en þann 6. september sama ár var Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir skipuð í embætti dómsmálaráðherra, næstyngst allra ráðherra í sögu Íslands.[5]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Andrés segir sig úr þingflokki VG“. www.mbl.is. Sótt 1. desember 2020.
- ↑ „Rósa Björk kveður Vinstri-græna“. www.mbl.is. Sótt 1. desember 2020.
- ↑ Ruv.is, „Rósa Björk verður þingmaður Samfylkingarinnar“ (skoðað 10. janúar 2021)
- ↑ „Mannréttindadómstóll Evrópu dæmir íslenska ríkið brotlegt í Landsréttarmálinu“. Stundin. Sótt 18. mars 2019.
- ↑ „Áslaug næstyngsti ráðherra sögunnar“. Rúv. Sótt 5. september 2019.
- ↑ Forsetaæurskurður um skiptingu starfa ráðherra
- ↑ Forsetaæurskurður um skiptingu starfa ráðherra með breytingum
- ↑ Áslaug Arna verður dómsmálaráðherra