Lilja Alfreðsdóttir

Mennta- og menningarmálaráðherra 2017-

Lilja Dögg Alfreðsdóttir (f. 4. október 1973) er íslensk stjórnmálakona sem að hefur verið varaformaður Framsóknarflokksins frá 2016.[1] Hún var þingmaður frá 2016 til 2024. Hún er núverandi menningar- og viðskiptaráðherra frá 2021. Áður var hún utanríkisráðherra frá 2016 til 2017 og menntamálaráðherra frá 2017 til 2021.

Lilja Alfreðsdóttir (LA)
Menningar- og viðskiptaráðherra Íslands
Núverandi
Tók við embætti
28. nóvember 2021
ForsætisráðherraKatrín Jakobsdóttir
Bjarni Benediktsson
Forverinýtt ráðuneyti
Mennta- og menningarmálaráðherra Íslands
Í embætti
30. nóvember 2017 – 28. nóvember 2021
ForsætisráðherraKatrín Jakobsdóttir
ForveriKristján Þór Júlíusson
EftirmaðurÁsmundur Einar Daðason (mennta- og barnamálaráðherra)
Utanríkisráðherra Íslands
Í embætti
8. apríl 2016 – 11. janúar 2017
ForsætisráðherraSigurður Ingi Jóhannsson
ForveriGunnar Bragi Sveinsson
EftirmaðurGuðlaugur Þór Þórðarson
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
2016 2024  Reykjavík s.  Framsóknarfl.
Persónulegar upplýsingar
Fædd4. október 1973 (1973-10-04) (51 árs)
Reykjavík
StjórnmálaflokkurFramsóknarflokkurinn
Æviágrip á vef Alþingis

Lilja lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1973, BA í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1998 og lauk síðar MA-gráðu í alþjóðahagfræði frá Columbia háskóla í Bandaríkjunum og hefur starfað hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, Seðlabanka Íslands og var efnahagslegur ráðgjafi Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra.

Lilja var utanríkisráðherra í ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks 2016-2017 og hefur verið varaformaður Framsóknarflokksins síðan í október 2016, var mennta- og menningarmálaráðherra frá 2017-2021 og er menningar- og ferðamálaráðherra frá 2021.

Lilja er dóttir Alfreðs Þorsteinssonar fyrrum borgarfulltrúa Framsóknarflokksins og Guðnýjar Kristjánsdóttur prentsmiðs. Lilja er gift Magnúsi Óskari Hafsteinssyni, hagfræðingi í fjármálaráðuneytinu og eiga þau tvö börn.

Í könnun sem gerð var á ánægju kjósenda með ráðherra í ráðuneyti Katrínar Jakobsdóttur í apríl 2019 mældist Lilja vinsælasti ráðherra ríkisstjórnarinnar.[2]

Í alþingiskosningunum 2024 datt hún út af þingi.

Heimildir

breyta
  1. Sex karlar og fimm konur“, RÚV, 30. nóvember 2017.
  2. „Þrjár konur vinsælustu ráðherrarnir á Íslandi“. Kjarninn. 27. apríl 2019. Sótt 28. apríl 2019.


Fyrirrennari:
Gunnar Bragi Sveinsson
Utanríkisráðherra Íslands
(7. apríl 2016 – 11. janúar 2017)
Eftirmaður:
Guðlaugur Þór Þórðarson
Fyrirrennari:
Kristján Þór Júlíusson
Mennta- og menningarmálaráðherra Íslands
(30. nóvember 2017 –)
Eftirmaður:
Enn í embætti


   Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum og Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.