Guðmundar- og Geirfinnsmálið

Íslenskt sakamál og mannshvarf frá 1974

Guðmundar- og Geirfinnsmálið er viðamikið sakamál sem snýr að óútskýrðu hvarfi tveggja manna árið 1974, Guðmundi og Geirfinni. Sex manns fengu dóm vegna aðkomu sinnar að málinu, þau höfðu játað að hafa orðið mönnunum að bana eftir langar yfirheyrslur og vistun í einangrun, þrátt fyrir að engin sönnunargögn hefðu komið fram sem bendluðu þau við málið.

Guðmundar- og
Geirfinnssmálið
Mannshvarf og sakamál
Mannshvörf
Guðmundur Einarsson (f. 1955)
Horfinn 26. janúar 1974 (18 ára)
Geirfinnur Einarsson (f. 1942)
Horfinn 19. nóvember 1974 (32 ára)
Sakborningar

Sævar Ciesielski (f. 1955, d. 2011)
Kristján Viðar Júlíusson (f. 1955, d. 2021)
Tryggvi Rúnar Leifsson (f. 1951, d. 2009)
Guðjón Skarphéðinsson (f. 1943)
Albert Klahn Skaftason (f. 1955)
Erla Bolladóttir (f. 1955)

Málið var tekið upp að nýju árið 2018, 44 árum eftir hvörfin. Sýknaði hæstiréttur þá alla sakborninga, að undanskilinni Erlu.[1]

Lík Guðmundar og Geirfinns hafa aldrei fundist.

Mannshvörf

breyta

Guðmundur Einarsson

breyta

Guðmundur var 18 ára verkamaður sem hafði farið með félögum sínum á dansleik í Alþýðuhúsinu í Hafnarfirði laugardagskvöldið 26. janúar 1974. Hann varð viðskila við vini sína og sást síðast til hans ásamt öðrum manni á götu í Hafnarfirði þar sem þeir reyndu að húkka sér far. Talið var að hann væri með Kristjáni Viðari Júlíussyni, skólafélaga sínum. Ekki sást aftur til Guðmundar. Leitað var að honum í hrauninu í Hafnarfirði, en leitinni var hætt vegna mikis fannfergis.

Kenningar

breyta

Árið 2014 kom fram vitni sem að var kærasta Malaga-fangans svokallaða, Sigurðs Stefáns Almarssonar. Hún sagði að Sævar Ciesielski og Kristján Viðar Júlíusson gætu látið fólk hverfa og hélt hún að um var að ræða Guðmund. Einnig sagði vitnið að Sigurður Stefán hafi líklegast átt alla sök á hvarfi Guðmundar en að hann hafi aldrei viðurkennt ábyrgðina beint. Árið 2015 var upprunalega vitnið sem að sá Guðmund og Kristján á leið inn í bíl aftur yfirheyrt og sagði það að bíllinn keyrði á Guðmund þegar að hann sást síðast. Samferðakona vitnisins sagði hinsvegar frá því að Guðmundur hafi farið inn í bílinn. Við brottför úr bílnum sagði hún frá því að Guðmundur hafði verið í „slæmu ástandi“.[2] Vitnið sem að var kærasta Sigurðs Stefáns sagði að kvöldið 26. janúar var hann að skutla piltum heim til sín, og var hann farþegi í bílnum sem að keyrði á Guðmund. Einn piltanna var víst alveg kylliflatur í bílnum sem að var líklegast Guðmundur. Sigurður Stefán skutlaði kærustu hennar til síns heima og sagði að hann myndi síðan skutla piltinum heim, sem að líklegast var Guðmundur. Kærasta Sigurðs sagði að það væri eins og að pilturinn væri dottandi og að hann leit út eins og að hann vissi eins og að eitthvað slæmt myndi koma fyrir hann. Þann 27. janúar 1974 var bíll Sigurðar Stefáns geymdur í bílskúr hans við hús hans í Laugardalnum. Kærasta hans sagði að grænn segldúkur væri yfir bílnum. Henni var víst stranglega bannað að koma nálægt bílnum og í eitt sinn þegar að hún leit inn um bílskúrsgluggann var henni víst skammað. Bílinn var geymdur þarna í þrjá daga að hennar sögn og sagði hún að henni þætti líklegt að líki Guðmundar var komið fyrir í bílnum. Kærasta hans sagði að Sigurður Stefán hafi verið á nálum á þessum tíma og einangrað hana, og að hann hafi bannað henni að tala við nokkurn mann um umrætt kvöld, 26. janúar 1974. Sigurður Stefán á víst að hafa viðurkennt morðið á Guðmundi fyrir tveimur manneskjum, þeim Erlu Bolladóttur og Sigursteini Mássyni, að þeirra sögn.[3] Árið 1978 sagði Sigurður Stefán að lík bæði Guðmundar og Geirfinnar væri að finna í bakgarði á Grettisgötu og að Kristján Viðar hafi sagt honum það.[4] Árið 2016 voru Sigurður Stefán Almarsson og Þórður Jóhann Eyþórsson, sem að var tvöfalldur morðingji handteknir Guðmundarmálsins. Þeim var sleppt þar sem að ekki var hægt að sanna tengsl þeirra við málið.[5]

Sigursteinn Másson sagði í hlaðvarpsþáttum frá 2023 um hvörf Guðmundar og Geirfinns að nokkuð augljóst væri hver örlög Guðmundar Einarssonar voru, og er það sama kenning sem að við kemur Sigurði Stefáni.[6]

Geirfinnur Einarsson

breyta

Nokkrum mánuðum síðar, þriðjudagskvöldið 19. nóvember 1974, hvarf annar maður, hinn 32 ára Geirfinnur Einarsson. Geirfinnur starfaði við byggingarvinnu og bjó í Keflavík. Hann var tveggja barna faðir. Guðmundur og Geirfinnur voru ekki skyldir, þrátt fyrir að hafa sama föðurnafn.

Hvarf Geirfinns þótti afar dularfullt. Kvöldið sem hann hvarf hringdi ókunnur maður í hann og mælti sér mót við hann í Hafnarbúðinni í Keflavík. Eftir lýsingum vitna á ókunna manninum var gerð leirstytta, sem í hálfkæringi var kölluð „Leirfinnur“.

Kenningar

breyta

Árið 2016 tilkynnti maður til lögreglu að hann hafði séð þrjá menn í jakkafötum fara um borð í bát í Keflavík daginn eftir hvarf Geirfinns. Hann sagði að einungis tveir þeirra komu til baka. Kærasta vitnsins sagði einnig að hún hefði fengið hótunarsímtal nokkrum dögum síðar.[7][8]

Árið 2016 sagði Ómar Ragnarsson í bók sinni Hyldýpi að árið 2002 hafði hann fengið upplýsingar um andlát Geirfinns og hvernig líki hans hafi verið komið fyrir, en að hann hefði ekki getað farið með málið til lögreglu vegna trúnaðar við heimildamenn sína. Hann sagðist ekki muna hvað hópurinn hét sem að sagði honum frá þessu, en árið 2014 kom einn þeirra til hans og gaf Ómari leyfi til þess að skrifa bók um málið. Árið 2016 þegar að bókin kom út fékk Ómar svo símtal frá leynilegum manni sem að var líklegasti sami maður og sagði honum upprunalegu upplýsingarnar og kom hann með nýjan vinkil á frásögnina.[9]

Í sjónvarpsþáttum Skandall um Guðmundar og Geirfinnsmálið sem að kom út á Sjónvarpi símans árið 2019 var komin upp kenning um aðkomu elskhuga eiginkonu Geirfinns á hvarfi hans og var hann jafnframt nafngreindur. Þar kom fram að hann hafi alltaf legið undir grun í málinu og að hann hafi flutt til útlanda þegar að málið var í hámæli. Í sjónvarpsþáttunum var reynt að hafa upp á honum og var farið til heim til hans í íbúð hans í Berlín, en þá hafði fyrrum elskhuginn flúið íbúðina í skyndi til þess að reyna að komast hjá því að tala við þáttagerðarfólkið. Gamall vinur elskuhugans sagði árið 2019 að hann hafi heyrt þann orðróm árum saman að hann hafi horfið.[10] Árið 2022 benti Erla Bolladóttir á að lögreglan rannsakaði aldrei mál elskhugans.[11] Í bókinni Leitin að Gerfinni frá 2024 kom fram að elskhugi eiginkonu Geirfinns hafi verið á heimili Geirfinns þegar að hann hvarf.[12]

Árið 2023 gaf Sigursteinn Másson út hlaðvarpsþætti um Guðmundar og Geirfinnsmálið þar sem að Sigursteinn taldi að sá tímapunktur myndi brátt nálgast þegar að það væri hægt að segja með fullu hvað gerðist við Geirfinn. Hann sagði einnig að hann hafi rætt við mann við gerð þáttanna, sem að allar líkur væru á að hann hafi átt ábyrgð á hvarfi Geirfinns, þó að Sigursteinn vildi ekki fullyrða það né gefa út frekar upplýsingar.[6]

Í nóvember 2024, þegar að nákvæmlega fimmtíu ár voru liðin frá hvarfi Geirfinns gáfu Sig­urður Björg­vin Sig­urðsson og Jón Ármann Steinsson út bókina Leitin að Gerfinni. Í bókinni sögðu höfundar að þeir vissu hver myrti Geirfinn og hvar hann lét lífið. Þeir sögðu að þeir vissu ekki hvar líki hans var komið fyrir og að morðingji Geirfinns væri enn á lífi, en ekki var hann nafngreindur. Í bókinni kom nýtt vitni fram, tíu ára drengur sem að á að hafa séð Geirfinn vera myrtann í gegnum glugga. Þar kom fram að nágrannar Geirfinns sáu þetta gerast og tilkynntu Lögreglunni þetta, en að lögreglan sýndu vísbendingunni engann áhuga. Í kjölfar útgáfu bókarinnar þá afhentu höfundar bókarinnar heimildargögn og vísbendingar til yfirvalda.[13]

Rannsókn

breyta

Sævar Ciesielski var 19 ára góðkunningi lögreglunnar. Rúmu ári eftir hvarf Geirfinns, í desember 1975, var hann var handtekinn ásamt kærustu sinni Erlu Bolladóttur vegna óskylds máls, fölsunar á póstávísunum. En lögregla hafði einnig heyrt orðrómu um aðild hans að hvarfi Geirfinns. Parið átti saman kornunga dóttur. Við yfirheyrslu náði lögregla fram játningu frá Erlu á ávísnafalsinu. Eftir játninguna reyndi lögregla svo að bendla Erlu við hvarf Guðmundar, þar sem þau höfðu verið skólafélagar. Þeim var haldið áfram í gæsluvarðhaldi þar til að játning fékkst með látlausum yfirheyrslum sem stóðu yfir dögum saman, daga og nætur, þar sem sakborningum var ekki leyft að leita sér lögfræðiaðstoðar. Sævar játaði að hann og nokkrir félagar hans hefðu komið að glæpnum. Flestir í vinahópnum tengdust skemmtistaðnum Klúbbnum og voru flestir á sakaskrá fyrir ýmsa smáglæpi.

Sexmenningunum var haldið í gæsluvarðhaldi og einangrun svo mánuðum skipti í Síðumúlafangelsinu, bæði vegna hvarfa þeirra Guðmundar og Geirfinns en líka vegna ótengds fjársvika- og póstsvikamáls sem lögregla hafði til rannsóknar. Þeim var hótað áframhaldandi einangrun væru þau ekki samvinnufús. Sumum þeirra var haldið í gæsluvarðhaldi í meira en 4 ár.

Sakborningarnir Kristján Viðar og Tryggvi Rúnar játuðu að lokum að hafa orðið Guðmundi að bana. Morðið átti að hafa átt sér stað eftir að slagsmál brutust út milli þeirra. Eftir áframhaldandi einangrun játaði Albert Klahn að hafa aðstoðað félaga sína við að flytja lík Guðmundar og falið það í sprungu í Hafnarfjarðarhrauni.

Lögregla hafði nú náð að knýja fram fjölmargar játningar og taldi að hér væri um að ræða alvarlega klíku morðingja, með Sævar sem forsprakka gengisins.

Upphafi rannsóknarinnar stýrði Valtýr Sigurðsson, fulltrúi bæjarfógetans í Keflavík. Valtýr gegndi síðar stöðu forstjóra Fangelsismálastofnunar 2004 til 2008 og stöðu ríkissaksóknara frá 2008 til 2011.

Saksóknari í málinu var Þórður Björnsson, ríkissaksóknari.

Aðkoma þýska rannsóknarforingjans

breyta

Í ágúst 1976 var þýskur rannsóknarforingi á eftirlaunum, Karl Schütz, fenginn til að stýra rannsókn málsins sem þá var í miklum hnút. Karl var þekktur fyrir að hafa brotið á bak Rauðu herdeildina, þýskum kommúnískum skæruliðasamtökum. Í seinni tíð hafa margir sett spurningamerki við hvers vegna óupplýst mannshvörf hér á landi gætu talist verðugt verkefni fyrir þýskan lögreglumann á eftirlaunum sem einkum hafði sérhæft sig í málum er varða öryggi ríkisins.

Karl kom á fót starfshóp rannsóknarlögreglumanna. Í starfshópnum störfuðu tíu manns, sem var þá þriðjungur af öllum rannsóknarlögreglum landsins.

Rannsóknin miðaði mikið að því að finna mann sem Sævar og Kristján höfðu minnst á í yfirheyrslum og vísað til sem „útlendingslega mannsins“. Taldi lögregla að hér hlyti að vera rætt um Guðjón Skarphéðinsson, sem hafði óneitanlega útlendingslegt yfirbragð yfir sér. Guðjón hafði áður verið bendlaður við fyrri eiturlyfjasmygl Sævars. Þrátt fyrir að Guðjón virtist allur af vilja gerður að aðstoða við rannsóknina glímdi hann við minnisglöp og gat ómögulega lýst förum sínum á fyrri árum.

Rannsóknarforinginn Karl beitti sakborningana miklum þrýstingi að veita skriflega játningu á meintum glæp sínum. Sakborningarnir voru teknir út í Hafnarfjarðarhraun þar sem meiningin var að þau gætu bent á líkin. Síðasta játningin í málinu fékkst 8. desember 1976 frá Guðjóni og höfðu þá allir sakborningar veitt skriflega játningu á þætti sínum í morðunum á bæði Guðmundi og Geirfinni.

Sönnunargögn fundust engin og sakborningar glímdu allir við þokukennt minni eftir langt gæsluvarðhald.

Í janúar 1977 lauk svo rannsókn Karl Schütz eftir sviðsetningu atburða við Dráttarbrautina í Keflavík en þar töldu rannsóknarlögreglumenn að Geirfinni hefði verið ráðinn bani. Þrátt fyrir umfangsmikla leit fannst ekki lík Geirfinns.

Dómur

breyta

Fyrsti dómur féll í héraðsdómi Reykjavíkur í desember 1977. Ungmennin voru fundin sek og dæmd til fangelsisvistar, þar af fékk Sævar þyngsta dóminn og var dæmdur í ævilangt fangelsi.

Í dómi Geymt 27 febrúar 2017 í Wayback Machine Hæstaréttar árið 1980 var sekt ungmennana staðfest. Fangelsisdómur var mildaður hjá flestum, og var Sævar þá dæmdur í 17 ára fangelsi.

Geirfinnsmálið hefur verið í umræðu í þjóðfélaginu í a.m.k. tvo áratugi en algjör skortur var á sönnunargögnum fyrir utan játningar sakborninga, sem þau hafa öll dregið til baka og hefur umræðan síðustu ár snúist um rannsóknaraðferðir lögreglu og meint harðræði við rannsókn málsins.

Endurupptaka Geirfinnsmálsins

breyta

Einn sakborninga, Sævar Ciesielski, reyndi að fá málið tekið upp að nýju árið 1996, en án árangurs. Í umræðu um réttarfarsdómstól á Alþingi hinn 6. október 1998 kom Davíð Oddsson mörgum á óvart er hann hvatti til endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálsins.

Guðmundar- og Geirfinnsmálið var tekið upp á ný af hæstarétti Íslands árið 2018. Þann 27. september sama ár voru allir hinir dómteknu í málinu sýknaðir.[14] Daginn eftir bað Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, fyrrverandi sakborningana afsökunar fyrir hönd ríkisstjórnarinnar.[15]

Geirfinnsmálið hefur verið gagnrýnt fyrir að draga fram falskar minningar(en) hjá sakborningunum, bæði með harkalegum yfirheyrsluaðferðum og með að dregið sakborninga á staði og látið þá leika glæpi sína eftir. Helsti gagnrýnandi þess hefur verið Gísli H. Guðjónsson réttarsálfræðingur.

Sakborningar

breyta

Sævar Marinó Ciesielski (f. 1955, d. 2011)

breyta

Sævari var haldið í gæsluvarðhaldi í samanlagt 1.533 daga. Hann fékk þyngsta dóminn af öllum sakborningum. Héraðsdómur dæmdi hann í ævilangt fangelsi, en hæstiréttur mildaði hann niður í 17 ára fangelsisvist. Sævar var laus úr fangelsi eftir 9 ár.

Einangrunarvistin hafði langvarandi skaðlegar afleiðingar á Sævar.[16]

Sævar lést af slysförum árið 2011. Faðir Sævars var veðurfræðingur frá Kraká, Póllandi.

Kristján Viðar Júlíusson (f. 1955, d. 2021)

breyta

Kristján hafði áður lent í kasti við lögin vegna eiturlyfja og innbrota.

Kristjáni var haldið í gæsluvarðhaldi í 1.522 daga. Hæstiréttur dæmdi hann í 16 ára fangelsi.

Tryggvi Rúnar Leifsson (f. 1951, d. 2009)

breyta

Tryggva var haldið í gæsluvarðhaldi í 1.535 daga. Hann var dæmdur í 13 ára fangelsi.

Guðjón Skarphéðinsson (f. 1943)

breyta

Guðjóni var haldið í gæsluvarðhaldi í 1.202 daga. Hann var dæmdur í 10 ára fangelsi en var laus eftir 4 ár. Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands, veitti Guðjóni uppreist æru árið 1995 (þ.e. að hann fékk á ný öll sín réttindi sem borgari). Eftir lausn sína úr fangelsi gerðist Guðjón prestur og starfaði sem sóknarprestur í Staðastað.

Albert Klahn Skaftason (f. 1955)

breyta

Einu afskipti lögreglu af Alberti höfðu verið vegna vörslu kannabis.

Alberti var haldið í gæsluvarðhaldi í 118 daga. Hann var dæmdur í 1 árs fangelsi.

Erla Bolladóttir (f. 1955)

breyta

Erlu var haldið í gæsluvarðhaldi í 239 daga. Hún var dæmd í 3 ára fangelsi í hæstarétti.

Tengt efni

breyta

Tenglar

breyta
  • „Hótanir og ónæði leiddu til handtöku fjörmenninganna“; grein í Dagblaðinu 1976
  • „Játar að hafa skotið Geirfinn Einarsson“; grein í Þjóðviljanum 1976
  • „Rannsókn Geirfinnsmálsins misheppnuð frá upphafi“; 1. grein í Mánudagsblaðinu 1976
  • „Ef þú kjaftar frá mínu svindli, skal ég segja frá þínu“; 2. grein í Mánudagsblaðinu 1976
  • „Tíminn vill handtöku Hauks Guðmundssonar“; 3. grein í Mánudagsblaðinu 1976
  • „Mál 214: Vefur um Geirfinnsmálið“. Sótt 1. mars 2006.
  • Eftirmáli við endurupptökubeiðni Sævars Ciesielskis Geymt 5 mars 2016 í Wayback Machine

Erlendir tenglar

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. „Dómur Hæstaréttar, mál númer 521/2017“. www.haestirettur.is.
  2. „Guðmundur and Geirfinnur case“, Wikipedia (enska), 9. nóvember 2024, sótt 20. nóvember 2024
  3. „Konan í bílnum stígur fram - Það sem hefur aldrei komið fram um hvarf Guðmundar – Dó hann í bílskúrnum?“. DV. 28. september 2018. Sótt 20. nóvember 2024.
  4. „Var farþegi í bíl sem ekið var á Guðmund“. www.mbl.is. Sótt 20. nóvember 2024.
  5. „Konan í bílnum stígur fram - Það sem hefur aldrei komið fram um hvarf Guðmundar – Dó hann í bílskúrnum?“. DV. 28. september 2018. Sótt 20. nóvember 2024.
  6. 6,0 6,1 Sæberg, Árni (10. febrúar 2023). „Nálgist að geta sagt með vissu hvað varð um Geirfinn - Vísir“. visir.is. Sótt 20. nóvember 2024.
  7. „Voru morðingjar Geirfinns með hann í Vestmannaeyjum? Dularfullir menn í jakkafötum - Rænulítill maður sagði „mundu eftir mér". DV. 25. janúar 2020. Sótt 20. nóvember 2024.
  8. „Guðmundur and Geirfinnur case“, Wikipedia (enska), 9. nóvember 2024, sótt 20. nóvember 2024
  9. Hólmkelsdóttir, Hulda (8. september 2016). „Ómar gleymdi að spyrja meintan banamann Geirfinns hvað hann hét - Vísir“. visir.is. Sótt 20. nóvember 2024.
  10. „Nýtt í Geirfinnsmálinu – Gamall vinur elskhugans tjáir sig – „Hann var í einhverjum vandræðum með þessa konu". DV. 2. maí 2019. Sótt 20. nóvember 2024.
  11. „Ástmaðurinn var ekki rannsakaður og flúði land“. Samstöðin. Sótt 20. nóvember 2024.
  12. „Ný bók um hvarf Geirfinns kemur út í dag – Sagður hafa verið myrtur við heimili sitt“. DV. 19. nóvember 2024. Sótt 20. nóvember 2024.
  13. Þorláksson, Tómas Arnar (19. nóvember 2024). „Segist vita hver vó Geirfinn - Vísir“. visir.is. Sótt 20. nóvember 2024.
  14. Sunna Kristín Hilmarsdóttir (27. september 2018). „Allir sýknaðir í Guðmundar- og Geirfinnsmálunum“. Vísir.is. Sótt 27. september 2018.
  15. „Katrín biður fyrrverandi sakborninga afsökunar“. mbl.is. 28. september 2018. Sótt 30. september 2018.
  16. „„Ég vaknaði kannski upp með andfælum og öskrum" - Vísir“. visir.is.