Forsetakjör á Íslandi 2012
Forsetakjör á Íslandi 2012 fór fram laugardaginn 30. júní 2012.[1] Ólafur Ragnar Grímsson, sitjandi forseti, sigraði með með 52,78% fylgi.[2] Hann er fyrsti forseti Íslands sem hefur setið lengur en fjögur kjörtímabil. Þetta var fyrsta forsetakjörið eftir bankahrunið á Íslandi haustið 2008. Í forsetakjörinu 2008 var Ólafur sjálfkjörinn í embættið þar sem enginn annar bauð sig fram.
Aldrei höfðu fleiri forsetaframbjóðendur boðið sig fram. Í forsetakjörinu 1980 og 1996 buðu fjórir sig fram en nú buðu fram sex einstaklingar, þrír karlmenn og þrjár konur: Andrea Jóhanna Ólafsdóttir, Ari Trausti Guðmundsson, Hannes Bjarnason, Herdís Þorgeirsdóttir, Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir.
Frambjóðendur
breytaÓlafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti Íslands, tilkynnti um framboð sitt 4. mars 2012.[3] Samkvæmt könnun sem hópurinn „Betri valkost á Bessastaði“ lét gera í mars vildu nærri tveir af hverjum þremur fá nýjan forseta.[4] Herdís Þorgeirsdóttir, doktor í lögfræði, lýsti yfir framboði 2. apríl 2012.[5] Hannes Bjarnason lýsti einnig yfir framboði þann 29. mars 2012.[6] Eftir að hafa tekið sér umhugsunarfrest lýsti fjölmiðlakonan Þóra Arnórsdóttir því yfir að hún hygðist bjóða sig fram.[7][8] Ari Trausti Guðmundsson lýsti yfir framboði í apríl.[9] Andrea Jóhanna Ólafsdóttir tilkynnti um forsetaframboð sitt þann 1. maí, á degi verkalýðsins.
Ólafur Ragnar Grímsson
breytaDV fjallaði um hlut Ólafs Ragnars Grímsonar í „útrásinni“ íslensku, svokölluðu, í aðdraganda hrunsins.[10] Ólafur mætti í útvarpsviðtal í Sprengisandi á Bylgjunni 14. maí þar sem hann gagnrýndi fréttaflutning DV, fréttaflutning Svavars Halldórssonar, eiginmanns Þóru, um forsetakosningarnar og nefndi væntanlegar breytingar á kvótakerfinu sem gott dæmi um málefni sem vísa ætti í þjóðaratkvæðagreiðslu.[11] Strax eftir viðtalið opnaði Ólafur kosningamiðstöð sína á Laugavegi og þangað komu blaðamenn DV. Blaðamenn DV vildu skýringar á ásökunum sem Ólafur hafði sett fram, úr urðu nokkrar deilur.[12]
Þóra Arnórsdóttir
breytaÍ umræðu í fjölmiðlum í aðdraganda kosninganna var nokkuð fjallað um þá staðreynd að Þóra Arnórsdóttir hefði átt von á barni rétt fyrir kosningar eða 8. maí.[13]
Mögulegir frambjóðendur
breytaÁstþór Magnússon tilkynnti framboð sitt í þriðja sinn[14] en 1. júní var það dæmt ógilt að mati innanríkisráðuneytisins.[15] Elín Hirst, fjölmiðlakona, íhugaði framboð en staðfesti síðar að hún hygðist ekki bjóða sig fram.[16] Stefán Jón Hafstein ýjaði að framboði.[17] Salvör Nordal forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands, sagðist vera að íhuga framboð mjög alvarlega.[18] Kristín Ingólfsdóttir rektor Háskóla Íslands íhugaði einnig framboð en gaf út yfirlýsingu um að hún færi ekki fram.[19] S. Valentínus Vagnsson, maður sem sprengdi sprengju við Stjórnarráð Íslands í janúar 2012 í mótmælaskyni, sagði í blaðaviðtali að hann hygðist tilkynna um framboð sitt.[20] Jón Lárusson lögreglumaður lýsti yfir því yfir í janúar að hann ætlaði að bjóða sig fram [21] en tilkynnti 15. maí að hann drægi framboð sitt til baka þar sem hann náði ekki að safna þeim undirskriftum sem til þarf.[22]
Skoðanakannanir
breytaNafn | 11.-12. apríl[23] | 26. apríl[24] | 14.-20. júní[25] | 28. júní[26] |
---|---|---|---|---|
Andrea Jóhanna Ólafsdóttir | - | - | 1,6% | 2,5% |
Ari Trausti Guðmundsson | - | 11,5% | 10,5% | 9,3% |
Ástþór Magnússon | 1,5% | 0,8% | - | - |
Hannes Bjarnason | 0,4% | 0,3% | 0,8% | 0,5% |
Herdís Þorgeirsdóttir | 2,9% | 3% | 5,3% | 3,4% |
Jón Lárusson | 1,2% | 0,6% | - | - |
Ólafur Ragnar Grímsson | 46% | 34,8% | 44,8% | 50,8% |
Þóra Arnórsdóttir | 46,5% | 49% | 37,0% | 33,6% |
Fyrstu skoðanakannanirnar sem framkvæmdar voru um fylgi forsetaframbjóðendanna gáfu til kynna að Þóra Arnórsdóttir og Ólafur Ragnar Grímsson fengju mest fylgi. Ari Trausti Guðmundsson fékk einnig nokkuð fylgi.[24]
Úrslit
breytaFrambjóðandi | Atkvæði | % |
---|---|---|
Ólafur Ragnar Grímsson | 84.036 | 52,78 |
Þóra Arnórsdóttir | 52.795 | 33,16 |
Ari Trausti Guðmundsson | 13.764 | 8,65 |
Herdís Þorgeirsdóttir | 4.189 | 2,63 |
Andrea Jóhanna Ólafsdóttir | 2.867 | 1,80 |
Hannes Bjarnason | 1.556 | 0,98 |
Samtals | 159.207 | 100,00 |
Gild atkvæði | 159.207 | 97,52 |
Ógild atkvæði | 530 | 0,32 |
Auð atkvæði | 3.514 | 2,15 |
Heildarfjöldi atkvæða | 163.251 | 100,00 |
Kjósendur á kjörskrá | 235.743 | 69,25 |
Heimild: Hagstofa Íslands |
Fyrir: 2008 |
Forsetakjör á Íslandi | Eftir: 2016 |
Tilvitnanir
breyta- ↑ Auglýsing um framboð og kjör forseta Íslands, Forsætisráðuneytið 20. mars 2012
- ↑ Lokatölur yfir landið: Ólafur 52,78%, Visir.is. Skoðað 2. júlí 2012
- ↑ Ólafur Ragnar vill vera forseti áfram Geymt 6 mars 2012 í Wayback Machine, 4. mars 2012
- ↑ Tveir af hverjum þremur vilja nýjan forseta, Vísir.is 24. mars 2012
- ↑ „Herdís Þorgeirsdóttir er skapstór baráttukona“. Afrit af upprunalegu geymt þann 3. apríl 2012. Sótt 2. apríl 2012.
- ↑ „Hannes vill verða forseti: Vill skapa betra samfélag“. Afrit af upprunalegu geymt þann 31. mars 2012. Sótt 2. apríl 2012.
- ↑ Þóra Arnórs íhugar forsetaframboð
- ↑ Yfirlýsing frá Þóru Arnórsdóttur um framboð til forseta Íslands
- ↑ Ari Trausti íhugar forsetaframboð; Ari Trausti ætlar í framboð
- ↑ „„Var embætti forseta Íslands misnotað í þágu útrásarinnar?"“. Afrit af upprunalegu geymt þann 17. apríl 2012. Sótt 16. apríl 2012.
- ↑ Viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson á Sprengisandi[óvirkur tengill]
- ↑ Ólafur Ragnar í ham: „Ertu komin til að koma í deilur?“ Geymt 16 júní 2012 í Wayback Machine; Ólafur tekur blaðamann DV á beinið – „Ef þú sérð það ekki sjálf þá get ég ekki læknað þig“ Geymt 24 júní 2016 í Wayback Machine
- ↑ Ekkert óeðlilegt að fæða barn í kosningabaráttu Geymt 7 apríl 2012 í Wayback Machine; Forsetaframboð. Börn. Ólétt.
- ↑ Framboð til forseta í þriðja sinn
- ↑ Forsetaframboð Ástþórs ógilt, mbl.is 1. júní 2012
- ↑ Elín Hirst horfir til Bessastaða; Elín Hirst gefur ekki kost á sér
- ↑ Stefán Jón: Auðvitað vil ég gera gagn
- ↑ Salvör íhugar forsetaframboð
- ↑ Kristín íhugar framboð; Kristín ekki í forsetaframboð
- ↑ „Sprengjumaður vill verða forseti“. Afrit af upprunalegu geymt þann 28. apríl 2012. Sótt 27. apríl 2012.
- ↑ Jón Lárusson í forsetaframboð, 9. janúar 2012
- ↑ Jón dregur framboðið til baka
- ↑ 22 prósent óákveðin – Þóra og Ólafur jöfn
- ↑ 24,0 24,1 Þóra mælist með mest fylgi; Könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands 26. apríl 2012
- ↑ Þjóðarpúlsinn. Forsetaframboð. Sótt 27. júní 2012
- ↑ „Ólafur Ragnar með 50,8%“. Afrit af upprunalegu geymt þann 30. júní 2012. Sótt 30. júní 2012.
Tenglar
breyta- Andrea Ólafs Geymt 29 maí 2012 í Wayback Machine
- Ari Trausti Guðmundsson
- Herdís Þorgeirsdóttir
- jaforseti.is | Hannes Bjarnason í framboð til forseta! Geymt 1 apríl 2012 í Wayback Machine
- Jón Lárusson Geymt 2 júlí 2012 í Wayback Machine
- Þóra Arnórs Geymt 12 júlí 2012 í Wayback Machine