Forsetakjör á Íslandi 1996
Forsetakjör á Íslandi 1996 fór fram þann 29. júní[1] árið 1996. Fimm frambjóðendur gáfu kost á sér þau Ástþór Magnússon stofnandi Friðar 2000, Guðrún Agnarsdóttir læknir og fyrrverandi þingkona Kvennalistans, Guðrún Pétursdóttir lífeðlisfræðingur, Ólafur Ragnar Grímsson þingmaður Alþýðubandalagsins og fyrrverandi fjármálaráðherra og Pétur Kr. Hafstein hæstaréttardómari. Guðrún Pétursdóttir var fyrst frambjóðendanna til að tilkynna framboð í febrúar 1996 en dró framboð sitt síðan til baka þann 19. júní eða tíu dögum fyrir kosningar. Var nafn hennar því ekki á kjörseðlum en umdeilt var hvort sú ákvörðun kjörstjórnar ætti sér stoð í lögum. Niðurstaða forsetakjörsins varð sú að Ólafur Ragnar Grímsson var kjörinn forseti.
Úrslit
breytaFrambjóðandi | Atkvæði | % |
---|---|---|
Ólafur Ragnar Grímsson | 68.370 | 41,38 |
Pétur Kr. Hafstein | 48.863 | 29,57 |
Guðrún Agnarsdóttir | 43.578 | 26,37 |
Ástþór Magnússon Wium | 4.422 | 2,68 |
Samtals | 165.233 | 100,00 |
Gild atkvæði | 165.233 | 98,74 |
Ógild atkvæði | 632 | 0,38 |
Auð atkvæði | 1.469 | 0,88 |
Heildarfjöldi atkvæða | 167.334 | 100,00 |
Kjósendur á kjörskrá | 194.705 | 85,94 |
Heimild: Hagstofa Íslands |
Heimild
breyta
Fyrir: 1988 |
Forsetakjör | Eftir: 2004 |