Björn Bjarnason (f. 1944)

Íslenskur stjórnmálamaður

Björn Bjarnason (f. 14. nóvember 1944) lögfræðingur, er fyrrverandi menntamála- og dómsmálaráðherra og var þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík á árunum 1991-2009.

Björn Bjarnason (BBj)
Formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins
Í embætti
1991–1995
Formaður utanríkismálanefndar
Í embætti
1992–1995
Menntamálaráðherra
Í embætti
1995–2002
Dóms- og kirkjumálaráðherra
Í embætti
2003–2009
Alþingismaður
frá til  kjördæmi    þingflokkur
1991 2003  Reykjavíkurkjördæmi  Sjálfstæðisfl.
2003 2007  Reykjavíkurkjördæmi norður  Sjálfstæðisfl.
2007 2009  Reykjavíkurkjördæmi suður  Sjálfstæðisfl.
Persónulegar upplýsingar
Fæddur14. nóvember 1944 (1944-11-14) (79 ára)
Reykjavík
Vefsíðahttp://www.bjorn.is
Æviágrip á vef Alþingis

Ævi og störf

breyta

Björn fæddist í Reykjavík, foreldrar hans voru Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Sigríður Björnsdóttir. Björn á þrjár systur Guðrúnu, Valgerði og Önnu. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1964, lærði lögfræði við Háskóla Íslands og var formaður Stúdentaráðs 1967-1968. Sumarið 1970 missti hann foreldra sína og ungan systurson í eldsvoða í sumarbústað á Þingvöllum. Lagaprófi frá Háskóla Íslands lauk hann 1971.

Hann vann sem útgáfustjóri Almenna bókafélagsins 1971-1974, fréttastjóri á Vísi 1974, deildarstjóri í forsætisráðuneytinu 1974-1979, blaðamaður á Morgunblaðinu 1979-1984 og aðstoðarritstjóri 1985-1991. Hann hlaut 3. sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1991 og settist þá á þing. Hann varð menntamálaráðherra 1995 og gegndi þeirri stöðu til 2002, þegar hann tók að sér að verða forystumaður Sjálfstæðisflokksins í baráttunni fyrir borgarstjórnarkosningar 2002. Hann varð dómsmálaráðherra 2003, eftir að Davíð Oddsson myndaði í þriðja skipti ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks og gegndi embætti til ársins 2009 og lét þá af þingmennsku.

Björn hefur tekið mikinn þátt í umræðum um öryggis- og varnarmál á Íslandi og ætíð verið eindreginn stuðningsmaður vestræns varnarsamstarfs og varnarsamningsins við Bandaríkin. Í Kalda stríðinu deildi hann með erindrekum bandarískra yfirvalda upplýsingum sem hann hafði fengið sem blaðamaður um íslenska stjórnmálamenn, ekki síst vinstrisinnaða.[1] Hann var sumarið 2004 skipaður formaður Evrópunefndar forsætisráðherra, sem skilaði skýrslu í mars 2007. Hann er félagi í International Institute for Strategic Studies og hefur setið fundi Bilderberg-samtakanna. Greinasafnið Í hita kalda stríðsins kom út eftir hann árið 2001. Björn er kvæntur Rut Ingólfsdóttur fiðluleikara, og eiga þau tvö börn, Sigríði Sól og Bjarna Benedikt. Hann er tengdafaðir Heiðars Más Guðjónssonar.

Tenglar

breyta

Tilvísanir

breyta
  1. „Bjarnason, Björn Bjarnason“. Hringbraut - hringbraut.is.


Fyrirrennari:
Sólveig Pétursdóttir
Dóms- og kirkjumálaráðherra
(23. maí 20031. febrúar 2009)
Eftirmaður:
Ragna Árnadóttir
Fyrirrennari:
Ólafur G. Einarsson
Menntamálaráðherra
(23. apríl 19952. mars 2002)
Eftirmaður:
Tómas Ingi Olrich