83. Óskarsverðlaunin
83. Óskarsverðlaunin áttu sér stað sunnudaginn 27. febrúar 2011 af Bandarísku kvikmyndaakademíunni. Athöfnin mun vera útvörpuð í Bandaríkjunum af sjónvarpsstöðinni ABC og hún mun fara fram í Kodak leikhúsinu. Kynnir kvöldsins munu vera leikararnir James Franco og Anne Hathaway.
Tilnefningarnar voru gerðar opinberar þann 25. janúar 2011. Flestar tilnefningar fengu kvikmyndirnar The King's Speech með tólf og Coen myndin True Grit með tíu. Teiknimyndin Leikfangasaga 3 var tilnefnd bæði sem besta teiknimynd og besta kvikmynd og er það þriðja teiknimyndin til þess að fá tilnefningu í þeim flokki en hinar eru Disney-myndirnar Fríða og dýrið og Upp.
Kynnar
breytaÍ nóvember 2010 tilkynnti Bandaríska kvikmyndaakademían að James Franco og Anne Hathaway yrðu kynnarnir.[1] Ákvörðunin var tekin áður en að Franco var tilnefndur sem besti leikari í aðalhlutverki fyrir leik sinn í myndinni 127 Hours og er það í fyrsta skipti síðan árið 1973 sem að kynnir hátíðarinnar hefur verið tilnefndur til verðlauna, en áður hafði það verið leikarinn Michael Caine sem að var tilnefndur fyrir myndina Sleuth. Anne Hathaway hafði einnig verið tilnefnd til Golden Globe verðlauna fyrir leik sinn í myndinni Love and Other Drugs en hún hlaut ekki tilnefningu til Óskarsins. Hathaway, sem að er 28 ára, verður sú yngsta til þess að starfa sem kynnir á verðlaunaathöfninni frá upphafi. [2]
Tilnefningar
breytaTilnefningarnar fyrir 83. Óskarsverðlaunin voru tilkynntar þann 25. janúar 2011 í Samuel Goldwyn leikhúsinu í Beverly Hills, Kaliforníu-fylki, Bandaríkjunum. Tom Sherak, forseti Bandarísku kvikmyndaakademíunnar og leikkonan Mo'Nique tilkynntu tilnefningarnar.
Flokkur | Sigurvegari | |
---|---|---|
Besta Kvikmynd |
|
The King's Speech - Iain Canning, Emile Sherman, og Gareth Unwin. |
Besti Leikstjóri | Tom Hooper - The King's Speech | |
Besti Leikari | Colin Firth - The King's Speech | |
Besta Leikkona | Natalie Portman - Black Swan | |
Besti Leikari í Aukahlutverki | Christian Bale - The Fighter | |
Besta Leikkona í Aukahlutverki | Melissa Leo - The Fighter | |
Besta Frumsamda Handrit |
|
Óákveðið |
Besta Handrit byggt á áður útgefnu efni |
|
Óákveðið |
Besta Teiknimynd | Leikfangasaga 3 - Lee Unkrich | |
Besta Erlenda Kvikmynd | In A Better World (Danmörk) - Susanne Bier | |
Besta Heimildarmynd | Óákveðið | |
Besta Stutta Heimildarmynd |
|
Óákveðið |
Besta Kvikmyndatónlist | Óákveðið | |
Besta Frumsamda Lag |
|
Óákveðið |
Besta Hljóð |
|
Óákveðið |
Besta Hljóðblöndun |
|
Óákveðið |
Besta Myndlistarstjórn |
|
Óákveðið |
Besta Kvikmyndagerð | Óákveðið | |
Besti Farði |
|
Óákveðið |
Besta Búningahönnun |
|
Óákveðið |
Besta Klipping | Óákveðið | |
Bestu Tæknibrellur |
|
Óákveðið |
Myndir með Flestar Tilnefningar
breyta- Tólf: The King's Speech
- Tíu: True Grit
- Átta: Inception og The Social Network
- Sjó: The Fighter
- Sex: 127 Hours
- Fimm: Black Swan og Leikfangasaga 3
- Fjórar: The Kids Are All Right og Winter's Bone
- Þrjár: Alice in Wonderland
- Tvær: Biutiful, Harry Potter og Dauðadjásnin: Fyrsti hluti og Að temja drekann sinn
Heimildir
breyta- ↑ Dave Karger (29. nóvember), http://insidemovies.ew.com/2010/11/29/james-franco-and-anne-hathaway-to-host-oscars/ Geymt 30 janúar 2011 í Wayback Machine, Entertainment Weekly
- ↑ Andrea Reiher (27. janúar 2011), http://blog.zap2it.com/pop2it/2011/01/james-franco-prepares-for-anne-hathaway-wardrobe-malfuction-in-new-oscar-promo.html, Zap2It