Bruce Willis
Walter Bruce Willis (f. 19. mars 1955), best þekktur sem Bruce Willis, er bandarískur leikari og söngvari. Frami hans hófst seint á 9. áratugnum og varð hann þekktur helst fyrir hlutverk sitt sem John McClane í Die Hard-kvikmyndunum. Willis hefur unnið fjölda verðlauna á ferli sínum og hefur sýnt stuðning við bandaríska herinn.
Bruce Willis | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Walter Bruce Willis 19. mars 1955 |
Maki | Demi Moore (1987-2000) Emma Heming 2009- |
Börn | Rumer Willis (f. 1988) Scout LaRue Willis (f. 1991) Tallulah Belle Willis (f. 1994) Dóttir (f. 2012) Dóttir (f. 2014) |
Helstu hlutverk | |
David Addison í Moonlighting John McClane í Die Hard kvikmyndunum Butch Coolidge í Pulp Fiction James Cole í Twelve Monkeys Harry S. Stamper í Armageddon Dr. Malcolm Crowe í The Sixth Sense Jimmy 'The Tulip' Tudeski í The Whole Nine Yards og The Whole Ten Yards John Hartigan í Sin City | |
Emmy-verðlaun | |
Framúrskarandi leikari í aðalhlutverki (drama) 1987 Moonlighting Framúrskarandi gestaleikari í gamanþáttum 2000 Friends | |
Golden Globe-verðlaun | |
Besti leikari í tónlistar- eða gamanþáttum 1987 Moonlighting |
Ævi
breytaÁ sínum ungu árum
breytaWillis fæddist í Idar-Oberstein, Þýskalandi. Faðir hans, David Willis, var bandarískur hermaður við störf í herstöðinni í Idar-Oberstein. Móðir hans, Marlene, var þýsk og starfaði í banka.[1] Willis var elstur fjögurra barna Marlene og David Willis. Árið 1957 var föður hans sagt upp störfum hjá hernum og fjölskyldan flutti til Penns Grove í New Jersey.[2] Árið 1971 skildu foreldrar hans.[1] Á sínum yngri árum stamaði Willis mikið,[3] en hann átti auðvelt með að vera á sviði og náði þannig smám saman að sigrast á vandamálinu.[4]
Leiðin til frama
breytaEftir að Willis flutti til Kaliforníu tók hann áheyrnarprufu í nokkrum sjónvarpsþáttum.[1] Hann fékk hlutverk David Addison Jr. í sjónvarpsþáttunum Moonlighting (1985-1989).[5]
Die Hard kom út 1988 og sló óvænt í gegn. Willis lék hlutverk John McClane sem er aðalpersóna myndarinnar. Willis lék í öllum áhættuatriðum myndarinnar.[6] Tekjur myndarinnar námu $138,708,852[7] Vegna vinsælda hafa verið gefnar út 3 framhaldsmyndir: Die Hard 2, Die Hard with a Vengeance og Live Free or Die Hard.
Einkalíf
breytaWillis var giftur Demi Moore í 13 ár, því sambandi lauk árið 2000. Hann eignaðist með henni þrjár dætur. Með seinni eiginkonu sinni Emmu Heming eignaðist hann tvær dætur.
Árið 2022 greindist Willis með málstol. Í kjölfarið ákvað hann að hætta að leika. Árið eftir greindist hann með framheilabilun. [8]
Ferill
breytaSem leikari
breytaSem tónlistarmaður
breyta- The Return of Bruno, 1987, Razor & Tie.
- If It Don't Kill You, It Just Makes You Stronger, 1989, Motown / Pgd.
- Classic Bruce Willis: The Universal Masters Collection, 2001, Polygram Int'l.
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 Daily Mail. Die Another Day: Bruce Willis. Skoðað 9. júlí 2007.
- ↑ AskMen.com Geymt 26 febrúar 2008 í Wayback Machine. Bruce Willis. Skoðað 9. júlí 2007.
- ↑ Reader's Digest Geymt 25 mars 2009 í Wayback Machine. Bruce Willis: The Uncut Interview. Skoðað 9. júlí 2007.
- ↑ Digital Hit. Bruce Willis. Skoðað 9. júlí 2007.
- ↑ Yahoo! Movies Geymt 25 október 2009 í Wayback Machine. Bruce Willis Biography. Skoðað 9. júlí 2007.
- ↑ People.com Geymt 14 febrúar 2011 í Wayback Machine. Bruce Willis: Biography. Skoðað 9. júlí 2007.
- ↑ Box Office Mojo. Die Hard. Skoðað 9. júlí 2007.
- ↑ Bruce Willis hrakar, glímir við framheilabilun Geymt 17 febrúar 2023 í Wayback Machine Fréttablaðið, sótt 17/2 2023
- ↑ Entertainment Weekly Geymt 21 desember 2007 í Wayback Machine. Bruce Willis on "Die Hard". Skoðað 9. júlí 2007.
- ↑ 10,0 10,1 10,2 10,3 10,4 10,5 10,6 10,7 Internet Movie Database. Biography for Bruce Willis: Salary. Skoðað 9. júlí 2007.
- ↑ 11,0 11,1 ipaki Geymt 17 maí 2008 í Wayback Machine. Bruce Willis. Skoðað 9. júlí 2007.
- ↑ tiscali.film&tv Geymt 23 maí 2008 í Wayback Machine. BRUCE WILLIS BIOGRAPHY. Skoðað 9. júlí 2007.