Mosfellsbær
Mosfellsbær (einnig kallaður Mosó í talmáli) er sveitarfélag sem liggur norðaustan við Reykjavík. Mosfellsbær varð til 9. ágúst 1987 þegar Mosfellshreppur varð að bæjarfélagi. Íbúar eru um 13.519 í apríl 2023.
Mosfellsbær | |
---|---|
Hnit: 64°10′N 21°43′V / 64.17°N 21.72°V | |
Land | Ísland |
Kjördæmi | Suðvesturkjördæmi |
Þéttbýliskjarnar | Mosfellsbær |
Stjórnarfar | |
• Bæjarstjóri | Regína Ásvaldsdóttir |
Flatarmál | |
• Samtals | 186 km2 |
• Sæti | 46. sæti |
Mannfjöldi (2024) | |
• Samtals | 13.403 |
• Sæti | 7. sæti |
• Þéttleiki | 72,06/km2 |
Póstnúmer | 270, 271 |
Sveitarfélagsnúmer | 1604 |
Vefsíða | mos |
Síðan 1933 hefur heitt vatn verið leitt úr Mosfellsbæ og til Reykjavíkur. Ullarvinnsla var mikilvæg grein í bænum og var þar framleiðsla við Álafoss frá 1919 til 1955. Nú er þar meðal annars aðsetur listamanna.
Íþróttir og afþreying
breytaÍ Mosfellsbæ er íþróttafélagið Afturelding. Tvær sundlaugar eru í Mosfellsbæ: Varmárlaug og Lágafellslaug. Göngustígar eru við Álafosskvos og við Reykjalund. Skógrækt og gönguleiðir eru við Úlfarsfell.
Bæjarstjórn
breytaÍ bæjarstjórn Mosfellsbæjar sitja 11 fulltrúar sem kjörnir eru í hlutfallskosningu á fjögurra ára fresti. Síðast var kosið til bæjarstjórnar í sveitarstjórnarkosningunum 14. maí 2022.
Vinabæir
breytaHeiðursborgarar
breytaFjórir einstaklingar eru heiðursborgarar Mosfellsbæjar:[1]
- 1972 – Halldór Laxness (1902-1998)[2][3]
- 2000 – Jón M. Guðmundsson[4] (1920-2009)[5]
- 2007 – Salome Þorkelsdóttir[6] (*1927)[7]
- 2024 - Birgir D. Sveinsson (1939)[8]
Mosfellingur ársins
breytaBæjarblaðið Mosfellingur hefur staðið fyrir vali á Mosfellingi ársins síðan 2005. Blaðið kynnir Mosfelling ársins í fyrsta tölublaði hvers árs. Sautján einstaklingar hafa hlotið nafnbótina Mosfellingur ársins:[9]
Ár | Nafn | |
---|---|---|
2023 | Halldór Laxness Halldórsson | Skemmtikraftur og höfundur, betur þekktur sem Dóri DNA |
2022 | Halla Karen Kristjánsdóttir | Íþróttafræðingur og formaður bæjarráðs Mosfellsbæjar |
2021 | Elva Björg Pálsdóttir | Forstöðumaður félagsstarfs eldri borgara |
2020 | Sigmar Vilhjálmsson | Sjónvarps-, fjölmiðla- og athafnamaður |
2019 | Hilmar Elísson | Bjargaði manni frá drukknun |
2018 | Óskar Vídalín | Stofnandi Minningarsjóðs Einars Darra |
2017 | Jón Kalman Stefánsson | Rithöfundur |
2016 | Guðni Valur Guðnason | Kringluskastari og Ólympíufari |
2015 | Sigrún Þuríður Geirsdóttir | Fyrsta íslenska konan til að synda Ermarsundið |
2014 | Jóhanna Elísa Engilhartsdóttir | Fyrsti sigurvegari í Biggest Loser á Íslandi |
2013 | Hljómsveitin Kaleo | |
2012 | Gréta Salóme | Söngkona og fiðluleikari |
2011 | Hanna Símonardóttir | Athafnakona |
2010 | Steindi Jr. | Skemmtikraftur og sjónvarpsmaður |
2009 | Embla Ágústsdóttir | Heimsmethafi í flugsundi |
2008 | Albert Rútsson | Athafnamaður og hóteleigandi |
2007 | Jóhann Ingi Guðbergsson | Bjargaði tveggja ára barni í Lágafellslaug |
2006 | Hjalti Úrsus Árnason | Afreksmaður í kraftlyftingum |
2005 | Sigsteinn Pálsson | Fyrrverandi bóndi á Blikastöðum |
Myndir
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Heiðursborgari Mosfellsbæjar, vefsíða Mosfellsbæjar, sótt 5. júní 2017
- ↑ Halldór Laxness heiðursborgari Mosfellshrepps, Morgunblaðið, 22. apríl 1972, bls. 2
- ↑ Kraftaskáld vorra tíma, Morgunblaðið, 3. maí 1972, bls. 11
- ↑ Jón M. Guðmundsson (minningargrein), Morgunblaðið, 7. maí 2009, bls. 29
- ↑ Heiðursborgari í Mosfellsbæ, Morgunblaðið, 31. október 2000, bls. 10
- ↑ Salome Þorkelsdóttir, vefsíða Alþingis, sótt 5. júní 2017
- ↑ Salóme gerð að heiðursborgara í Mosfellsbæ, Morgunblaðið, 10. ágúst 2007, bls. 2
- ↑ „Birgir D. Sveinsson heiðursborgari Mosfellsbæjar“. Mosfellsbær. 19. júní 2024. Sótt 29. júlí 2024.
- ↑ Mosfellingur ársins[óvirkur tengill], vefsíða Mosfellsbæjar, sótt 16. febrúar 2022