FLCL
FLCL eða Furi Kuri (フリクリ, stundum stafsett sem Fooly Cooly) er japönsk teiknimyndaþáttaröð (anime) og myndasaga (manga) sem er mjög óvenjuleg og frumleg að ýmsu leyti.
Titill á frummáli | フリクリ (Furi Kuri) |
---|---|
Enskur titill | (FLCL) |
Gerð | OVA |
Efnistök | Gaman, skóli, hasar |
Fjöldi þátta | 6 |
Útgáfuár | 2000 |
Lykilmenn | Kazuya Tsurumaki, leikstjóri Yoji Enokido, handritshöfundur |
Myndver | Gainax Production I.G. |
Sagan gengur mjög hratt fyrir sig og er ákaflega súrrealísk á köflum og jafnvel þeir sem eru vanir japönskum teiknimyndum og myndasögum verða fljótt ruglaðir í ríminu þar sem söguþráðurinn er mjög óljós þar sem útidúrar fá að njóta sín til jafns við hinn eiginlega söguþráð. Sagan er yfirfull af ádeilu á samfélagið, alþýðumenningu og aðrar japanskar teiknimyndir og þ.a.l. er mjög erfitt að ná að skilja megnið af efninu án þess að bæði lesa bækurnar og horfa á þættina. Undiralda þáttanna er upphaf unglingsáranna þó svo að kímin og brjálæðið eigi það til að skyggja á það.
Söguþráður
breytaÍ FLCL segir frá dreng sem heitir Naota og er 12 ára gamall. Hann er að byrja á gelgjuskeiðinu og á heima í bær sem heitir Mabase. Skrýtnir hlutir fara að gerast þegar snarbrjálaður kvenmaður utan úr geimnum sem heitir Haruko Haruhara ekur upp að honum á vespu og kýlir hann í höfuðið með gríðarlega breyttum Rickenbacker bassagítar fyrir örvhenta.
Naota
breytaNaota á heima hjá Kamon Nandaba, lostafullum föður sínum og eldgömlum afa sem þjálfar hafnaboltalið bæjarins, í bakaríi fjölskyldunnar. Naota leit mikið upp til Tasuku, eldri bróður síns sem flutti til Bandaríkjanna til að spila hafnabolta en hann er mjög sár yfir því að hann hafði farið en hann kemur aðeins fram í s.k. flashback-atriðum.
Eftir því sem líður á þættina kemur í ljós að Naota ólst upp án móðurímyndar. Auk þess er hann hundeltur af hinni bleikhærðu Haruko Haruhara sem notar nokkurs konar gátt í höfðinu á honum til að flytja stóra hluti yfir miklar vegalengdir. Einnig fylgist maður sem er kallaður Amarao foringi með honum en ásamt aðstoðarkonu sinni, Kitsurubami undirforingja flækist hann í málefni Haruko Haruhara og Medical Mechanica og reynir að bjarga Jörðinni með því að stöðva bæði Haruko Haruhara og Medical Mechanica.
Medical Mechanica og N.O.-krafturinn
breytaHaruko Haruhara er að berjast gegn Medical Mechanica (MM) en fyrirtækið rekur verksmiðjur um gervallan alheiminn, sem líta út eins og risavaxin gufustraujárn. Enginn veit með vissu hvað fyrirtækið framleiðir en einu sýnilegu inn og útgangarnir eru loftventlar sem senda frá sér mikið magn af gufu öðru hvoru og engir starfsmenn eru sýnilegir í kring um bygginguna fyrir utan öryggisverði. Þó er víst að Canti og flest illúðlegri vélmenni sem koma fram eru framleidd af fyrirtækinu.
N.O-krafturinn leysist úr læðingi vegna samvinnu heilahvelanna og andlegs álags og lætur ýmis fyrirbrigði koma út úr enni nokkurra persónanna, væntanlega fyrir tilstilli Medical Mechanica og gerir Naota t.d. kleift að sameinast vélmenninu Canti. Þegar það er virkt geta hlutir alls staðar að út heiminum birst í enni viðkomandi og aðeins örfáir þeirra sem búa yfir honum geta stjórnað honum. Vélmennið Canti, bassagítar Naota, Gibson-gítar Atomsks, Atomsk sjálfur og ýmislegt annað í þáttunum verða til vegna N.O-kraftsins.
Þegar líður á kemur í ljós að tilgangur verksmiðjanna sé m.a. sá að fletja út þær plánetur sem þær eru á á meðan geimræninginn Atomsk rænir þeim.
Þáttur ýmissa persóna
breytaSöguþráðurinn tengist stelpu sem heitir Mamimi en hún var kærasta Tasuku, bróður Naota áður en hann flutti til Bandaríkjanna. Hún er andlega vanheill brennuvargur en hún kveikti t.d. í gamla grunnskóla bæjarins. Ein og vinalaus fer hún að halla sér að öðru eins og kettinum sínum sem hún kallar Ta-kun og Naota sjálfum.
Eri Ninamori er bekkjarsystir Naota og dóttir borgarstjórans en hún spilar stórt hlutverk þar sem hún er eina manneskjan sem getur stjórnað N.O.-kraftinum en einhvers konar lífrænt vélmenni sprettur upp úr hausnum á henni. Það er vel hægt að leiða að því líkur að hún sé skotin í honum þar sem hún fær að gista heima hjá honum til að fela sig fyrir fjölmiðlum og hliðrar til atkvæðum í bekkjarkosningu svo þau tvö geti leikið á móti hvoru öðru í skólaleikriti.
Persónur
breytaAðalpersónur
breytaNaota Nandaba
breytaAðalpersóna þáttanna. Hann er 12 ára gamall, á mörkum gelgjuskeiðsins og vélmenni spretta upp úr enninu á honum.
- Raddir: Jun Mizuki (Japanska), Barbara Goodson (Enska)
Mamimi Samejima
breytaHún er 17 ára og frv. kærasta Tasuku en þar sem hann er ekki til staðar er hún farin að hanga utan í Naota. Hún stundar skóla illa, reykir, er brennuvargur og eyðir miklum tíma undir brú. Það er líklegt að foreldrar hennar séu hafi skilið.
- Raddir: Izumi Kasagi (Japanska), Jennifer Sekiguchi (Enska)
Haruko Haruhara
breytaHún heldur því fram að hún sé 19 ára og er bleikhærður geimbrjálæðingur. Rétt nafn hennar er Raharu Haruha. Hún ekur um á gulri vespu og notar Rickenbacker bassagítar fyrir örvhenta sem vopn. Hún er þerna á heimili Naota-fjölskyldunnar og vinnur sér inn aukapening með því að spila hafnabolta. Hún hefur áður haft kynni við Amarao undirforingja.
- Raddir: Mayumi Shintani (Japanska), Kari Wahlgren (Enska)
Kamon Nandaba
breytaFaðir Naota og fyrrverandi blaðamaður en er lausráðinn rithöfundur þegar þættirnir eiga sér stað.
- Raddir: Suzuki Matsuo (Japanska)
Eri Ninamori
breytaHún er tólf ára bekkjarfélagi Naota og bekkjarformaður. Hún virðist skotin í honum og er dóttir borgarstjórans í Mabase, úthverfinu sem þættirnir greast í.
- Raddir: Mika Itou (Japanska), Heather Lee Joelson (Enska)
Kanchi (eða Canti)
breytaVélmenni sem er með sjónvarpstæki í staðin fyrir höfuð og var framleitt af Medical Mechanica.
Amarao foringi
breytaVinnur fyrir leynilega deild í útlendingaeftirlitinu sem veit að geimverur eru til og reynir að halda því leyndu fyrir almenningi. Haruko Haruhara er stórt vandamál fyrir hann. Hann er með gerviaugabrúnir sem hann heldur að geri hann fullorðinslegri og verndi hann fyrir þeim öflum sem eru í gangi. Í fortíðinni átti hann í svipuðu sambandi við Haruko Haruhara og Naota á við að glíma þegar sagan gerist.
- Raddir: Kouji Ohkura (Japanska), Dave Mallow (Enska)
Atomsk
breytaVoldugasti geimræningi í Vetrarbrautinni. Kraftar hans eru nógu miklir til að ræna heilum plánetum og hann er í fuglslíki, líkt og Fönix. Amarao heldur því fram að Atomsk sé mannlegur því hann heldur því einnig fram að þau Haruko Haruhara séu elskhugar.
Aukapersónur
breytaTasuku Nandaba
breytaStóri bróðir Naota sem flutti til Bandaríkjanna til að spila hafnarbolta. Mamimi heldur því fram að hann beri ást til hennar þar sem hann bjargaði henni þegar kviknaði í gamla grunnskólanum. Auðsjáanlegt er að svo er ekki þar sem hann á aðra kærustu í Bandaríkjunum.
- Raddir: Joe Martin (Enska)
Shigekuni Nandaba
breytaAfi Naota. Hann á bakarí og þjálfar hafnaboltaliðið Mabase Martians. Hann fyrirlítur Mamimi út af áhuga hennar á Tasuku.
Junko Miyaji
breytaSérvitur kennari Naota. Nemendur hennar hafa gefið henni gælunafnið "Miya-Jun".
- Raddir: Yukari Fukui (Japanska)
Kitsurubami undirforingi
breytaBarmmikil aðstoðarkona Amarao.
Þættir
breytaÞættirnir eru 6 talsins og samanlagður sýningartími þeirra eru 2 klukkustundir og 30 mínútur en hver þáttur er 25 mínútna langur.
- Furi Kuri (フリクリ)
- Fai Suta (ファイスタ)
- Maru Raba (マルラバ)
- Furi Kiri (フリキリ)
- Bura Bure (ブラブレ)
- Furi Kura (フリクラ)
Áhugaverðar staðreyndir
breyta- Fyrirtækið sem Haruko Haruhara berst gegn heitir Medical Mechanica. Það var rangt stafsett í einu atriðinu í 2. þætti.
- Flest farartæki og bílar í þáttunum er evrópskir. Dæmi um það eru Vespan hennar Haruko Haruhara, VW bjallan hennar Miya-Jun og VW Golfinn hans Amarao.
- Margar aðalpersónanna eru örvhentar. Það er vegna þess að leikstjórinn og framleiðendur halda því fram að örvhent fólk hafi mun opnari persónuleika en þeir sem eru rétthentir. Sömu sögu er að segja um fólk sem er hrifið af sterkt krydduðum mat eða súrum gosdrykkjum.
- Það gengu sögur um það lengi að þættirnir væru einfaldlega tilraun Gainax til að prófa nýja tækni. Þeir notuðu 26 þátta ráðstöfunarfé til að búa til þáttaröðina sem telur aðeins 6 þætti.
Útgefið efni
breytaÍ Japan
breytaBækur
breyta- Furi Kuri / FLCL 01. — ISBN 3-551-75951-0
- Furi Kuri / FLCL 02 — ISBN 3-551-75952-9
Utan Japan
breytaDVD
breyta- FLCL (Fooly Cooly) - Vol. 1
- FLCL (Fooly Cooly) - Vol. 2
- FLCL (Fooly Cooly) - Vol. 3
Bækur
breyta- FLCL, Vol. 1 — ISBN 1-59182-396-X
- FLCL, Vol. 2 — ISBN 1-59182-397-8
Hljómdiskar
breyta- Fooly Cooly OST 1: Addict
- Fooly Cooly OST 2: King of Pirates