Svartmálmur
Svartmálmur eða blakkmetal (enska: black metal), er ein af undirtegundum þungamálmsins og á sér upphaf í Skandinavíu og Bretlandi á níunda áratug 20. aldar. Á níunda áratugnum mynduðu nokkrar þrassshljómsveitir frumgerð svartþungarokksins. Svartmálmur var í raun mótað af tveimur kynslóðum tónlistarmanna sem höfðu hvað mestu áhrif á stefnuna og er talað um fyrri kynslóðina og seinni kynslóðina.
svartmálmur/blakkmetal | |
---|---|
Uppruni | Upphaf níunda áratugarins: Bretland Noregur Svíþjóð |
Hljóðfæri | Gítar, bassi og trommur |
Afleiddar stefnur | Víkingaþungarokk |
Afbrigði | |
Sinfónískur svartmálmur Melódískur svartmálmur | |
Tengdar stefnur | |
Dauðarokk Þrass | |
Annað | |
? |
Hljómsveitir sem tilheyrðu fyrri kynslóð svartmálms voru meðal annars Venom, Hellhammer og Bathory. En þessar hljómsveitir gáfu stefnunni nafn sitt og yfirbragð. Seinni kynslóðin átti sér upptök í Noregi á tíunda áratugnum þar sem hljómsveitir á borð við Mayhem, Darkthrone, Burzum, Immortal, Dimmu Borgir og Emperor voru vinsælastar meðal vaxandi hóps svartmálms hlustenda.[1]. Seinni kynslóðin steig út úr leikrænni sviðsetningu fyrri kynslóðarinnar og tók ofbeldisfullt skref inn í raunveruleikann. Norska svartþungarokkið varð nokkurs konar listræn málpípa fyrir hóp ungra manna sem gerðu ofbeldisfulla uppreisn gegn samfélaginu, aðhylltust tilvistarlega heimspeki, róttækt form af norrænni trú og réðust gegn abrahamískum trúarbrögðum á norðurlöndum. Hljómsveitin Mayhem ásamt hljómsveitinni Burzum og fleiri hljómsveitum áttu þátt í því að skapa hið alræmda orðspor sem fer af tónlistarstefnunni í dag, tónlistarstefnu sem almenningur tengir oftast við „djöfladýrkun”, kirkjubrennur og morð.[2][3]
Saga
breytaÞegar átt er við fyrri kynslóð svartmálms er oftast átt við þær hljómsveitir sem, á 8. áratugnum, höfðu mestu mótunaráhrif á þá stefnu sem í seinni tíð varð að hinum eiginlega svartmálmi. Þessar hljómsveitir komu að mestu frá þrassi.
Hugtakið "black metal", var skapað af ensku hljómsveitinni Venom í kjölfar útgáfu seinni hljómplötu þeirra sem bar sama nafn, "Black Metal" árið 1982. Þrátt fyrir að vera álitin meira í líkindum við þrass en svartmálm samkvæmt viðmiðum samtímans, þá einkenndust textar og myndmál plötunar meira af hugmyndum um "djöfladýrkun", ásamt fjandsamlegum viðhorfum í garð kristnidómsins, heldur en nokkur þungarokksplata hafði gert áður. Tónlist þeirra var hröð og hrá í vinnslu og einkenndist af skerandi og rámum röddum. Meðlimir Venom tóku sér einnig upp gælunöfn, það sem átti seinna eftir að verða nokkurskonar einkenni svartmálmssveita.
Einkenni
breytaSvartmálmshljómsveitir voru sumar á móti því sem taldist vera gæðaupptökur og vildu láta tónlistina hljóma hráa og ódýra. Þær eyddu sem minnstum tíma í að stilla hljóðfærin og mjög litlum pening í tæki eins og magnara og upptökutæki. Þetta hugarfar var sérstaklega vinsælt hjá seinni kynslóðinni. Líkt og pönk eru svartþungarokkstónlistarmenn og hlustendur einnig á móti frægð og vinsældum.[4]
Hljóðfæri og söngur
breytaÍ svartmálmshljómsveitum er aðallega notast við rafmagnsgítar, bassa, hljómborð og trommur.
Gítarleikarar notast oft við svokallað tremolo picking til að gefa lögunum hræðilega og drungalega tilfinningu.[5] Trommarar nota mjög mikið af tvöföldum bassatrommum og blast beat.
Bassar spila lítið hlutverk í svartmálmi og er ekki óalgengt að bassinn spili sömu nótur og gítarinn eða að hljóðið frá gítarnum yfirgnæfi bassann þannig að það heyrist alls ekkert í honum.
Söngurinn einkennist af hátónuðum söng þar sem notast er við svokallað growl.
Textar og þemu
breytaÍ svartmálmi er mikil áhersla á myrkt og kalt þema og er það það sem textinn gengur oft út á. Svartmálmur hefur oft verið tengdur við „djöfladýrkun“ vegna skírskotana í slíkar athafnir í textum. Frægir svartmálmstónlistarmenn hafa þó fullyrt að þessir textar voru einungis notaðir til ögrunar. Þeir hafa þó oft sett sig upp á móti kristni, sérstaklega í Noregi og hvernig hún hafði traðkað á norrænnum trúarhefðum Noregs.[6]
Svartmálmur á Íslandi
breytaÍ kjölfar vinsælda seinni kynslóðar Svartmálms, þá dreifðist stefnan um Norðurlöndin, þar á meðal til Íslands.