Alþingiskosningar 1844
Alþingiskosningar 1844 voru fyrstu alþingiskosningar á Íslandi eða m.ö.o. Alþingi var endurreist sem ráðgjafarþing með Tilskipun um stiptun sjerlegrar ráðgefandi samkomu fyrir Ísland, er á að nefnast Alþingi.
Kosningabærir voru aðeins hinir efnameiri. Eða eins og segir í tilkynningunni um kosningarétt sem gefin var út árinu á undan:
- Réttindi til hluttöku í kosningu alþingismanna bera einungis haldendum, er annaðhvort eiga jörð, að minnsta kosti 10 hundraða dýrleika, ellegar múr- eða timburhús í Reykjavík eður einhverju öðru landsins verslunarplássi, sem með löglegri virðingu í minnsta lagi hefur verið metið til 1000 ríkisbankadala andvirðis. Ellegar og svo þeim, er opinberu eður beneficeruðu gózi halda jörð með lífsfestu. Í minnsta lagi af 20 hundraða dýrleika. -- Þó er tilskilið, að kjósendur hafi óflekkað mannorð, hafi náð 25 ára aldri og að sá fullkomni myndugleiki, sem honum eftir hans aldri ber, ekki af neinni annari orsök sje skertur.
Niðurstöður
breytaÁ þinginu 1845 tóku sæti sjö konungskjörnir þingmenn og tuttugu kjördæmakjörnir. Bjarni Thorsteinsson var forseti Alþingis.
Konungskjörnir þingmenn
breyta- Bjarni Thorsteinsson
- Björn Blöndal
- Halldór Jónsson
- Helgi Thordersen
- Páll Melsteð
- Þórður Jónasson
- Þórður Sveinbjörnsson
Kjördæmakjörnir þingmenn
breyta- Jón Johnsen (Árnessýsla)
- Eyjólfur Einarsson (Barðastrandarsýsla)
- Hannes Stephensen (Borgarfjarðarsýsla)
- Þorvaldur Sívertsen (Dalasýsla)
- Stefán Jónsson (Eyjafjarðarsýsla)
- Jón Guðmundsson (Gullbringu- og Kjósarsýsla)
- Þorgrímur Tómasson (Gullbringu- og Kjósarsýsla)
- Magnús R. Ólsen (Húnavatnssýsla)
- Jón Sigurðsson (Ísafjarðarsýsla)
- Helgi Helgason (Mýrasýsla)
- Þorsteinn Gunnarsson (Norður-Múlasýsla)
- Jakob Pétursson (Norður-Þingeyjarsýsla)
- Skúli Thorarensen (Rangárvallasýsla)
- Árni Helgason (Reykjavík)
- Jón Guðmundsson (Skaftafellssýsla)
- Jón Samsonarson (Skagafjarðarsýsla)
- Kristján Magnusen (Snæfellsnessýsla)
- Ásgeir Einarsson (Strandasýsla)
- Sveinn Sveinsson (Suður-Múlasýsla)
- Þorsteinn Pálsson (Suður-Þingeyjarsýsla)
Tenglar
breyta
Fyrir: ' |
Alþingiskosningar | Eftir: Alþingiskosningar 1852 |
Þessi Íslandsgrein sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.