Víðir Reynisson
Guðmundur Víðir Reynisson (f. 22. apríl 1967) er íslenskur þingmaður fyrir Samfylkinguna.
Víðir Reynisson | |
---|---|
Fæddur | 22. apríl 1967 |
Þjóðerni | Íslenskur |
Störf | Lögreglumaður |
Maki | Sigrún María Kristjánsdóttir |
Börn | 2 |
hann starfaði áður sem lögreglumaður og yfirlögregluþjónn almannavarnarsviðs hjá ríkislögreglustjóra.
Víðir er fæddur í Vestmannaeyjum og ólst þar upp til ellefu ára aldurs. Hann var ungur meðlimur í Hjálparsveit skáta og nam trésmíði áður en hann varð lögreglumaður.
Lögregluferill
breytaÁ ferli sínum í lögreglunni hefur Víðir meðal annars unnið sem deildarstjóri almannavarnardeildar ríkislögreglustjóra, sem lögreglufulltrúi á Suðurlandi og öryggisfulltrúi Knattspyrnusambands Íslands. Hann hefur jafnframt tekið þátt í samræmdum aðgerðum gegn ýmsum náttúruhamförum á Íslandi, þar á meðal snjóflóðum á Vestfjörðum 1995, jarðskjálftum á Suðurlandi árin 2000 og 2008, eldgosinu í Eyjafjallajökli árið 2010 og í Grímsvötnum 2011.[1]
Kórónuveirufaraldur
breytaVíðir varð landsþekktur á Íslandi í kórónaveirufaraldrinum árið 2020. Vegna yfirvegaðrar framkomu sinnar á daglegum upplýsingafundum um veiruna vann hann sér inn almennar vinsældir meðal Íslendinga og frasinn „Ég hlýði Víði“ náði talsverðri útbreiðslu til þess að hvetja til fylgni við samkomubannið sem sett var til að hefta útbreiðslu veirunnar.[2] Víðir hlaut þó gagnrýni fyrir mikinn gestagang á heimili sínu í nóvember 2020 þegar fólk var hvatt að einangra sig. Hann og kona hans smituðust eftir þónokkrar heimsóknir á stuttum tíma.[3]
Þau Víðir, Alma Möller og Þórólfur Guðnason hlutu viðurnefnið „þríeykið“ í fjölmiðlaumfjöllun á tíma faraldursins.[4]
Víðir var sæmdur riddarakrossi Hinnar íslensku fálkaorðu fyrir störf í þágu heilbrigðismála þann 17. júní 2020.[5]
Víðir sótti einn um endurráðningu í embætti yfirlögregluþjóns almannavarnarsviðs í lok september 2020.[6]
Þingferill
breytaVíðir leiddi lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi í Alþingiskosningunum 2024.[7] Hann var kjörinn á þing.
Tilvísanir
breyta- ↑ Einar Þór Sigurðsson (15. mars 2020). „Nærmynd af Víði Reynissyni: „Ég hef ráðlagt honum að passa upp á svefninn"“. Fréttablaðið. Sótt 8. apríl 2020.
- ↑ „„Ég hlýði Víði"“. mbl.is. 27. mars 2020. Sótt 8. apríl 2020.
- ↑ Segir Víði hafa farið að eigin tilmælum Rúv, sótt 11. nóvember, 2024
- ↑ Andri Yrkill Valsson (14. apríl 2020). „Þríeykið fastur liður á óvissutímum - en ekki í dag“. RÚV. Sótt 19. október 2024.
- ↑ Bjarni Pétur Jónsson (17. júní 2020). „Þríeykið fékk fálkaorðuna“. RÚV. Sótt 17. júní 2020.
- ↑ Vésteinn Örn Pétursson (29. september 2020). „Aðeins Víðir sótti um stöðu Víðis“. Vísir. Sótt 29. september 2020.
- ↑ Arnardóttir, Lovísa (24. október 2024). „Víðir leiðir í Suðurkjördæmi: „Þjóðin þarf festu í landstjórnina núna" - Vísir“. visir.is. Sótt 25. október 2024.