Ungversk matarmenning
Ungversk matargerð er með djúpar rætur í Ungversku þjóðinni og aðal þjóðarbrot hennar, Magyars . Hefðbundnir ungverskir réttir eru aðarlega bygðir á kjötu, árstimabundnu grænmeti, ávöxtum, brauði, mjólkurafurðum og ostum.
Almennt um ungverska matargerð
breytaUngversk matargerð á rætur sínar að rekja úr Mið-Evrópu og örlítið frá Austur-Evrópu, til dæmis notkunin á valmú, kefírs og kvarka. Paprika er mjög algeng í Ungverski matargerð. Í damigerðum ungverskum mat er mikið af mjólkurafurðum, osti og kjöti, líkt og í nágrannalöndum Tékklandi, Póllandi og Slóvakíu. Kjúklingur, svínakjöt og nautakjöt eru mikið notað í Ungverskri matargerð. Hinsvegar er kalkúnn, önd, lambakjöt, fiskur og villibráð aðallega borðað við sérstök tækifæri. Ungverjaland er þekkt fyrir tiltölulega ódýr salamí og pylsur aðalega úr svínakjöti, en einnig alifuglum og nautakjöti.
Brauð er líklega mikilvægasti þáttur í mataræði Ungverja. Brauð er borðað í allar máltíðir með aðalréttum. Einnig má nefna að fyrir fall kommúnisma árið 1990 var hvítt brauð grunnfæða þjóðarinnar.
Aðalréttir eru ýmist kjötmeti eða grænmetis, það er ekki algengt að hafa bæði. Oftast eru kartöflur sem meðlæti í ýmsum stílum, hrísgrjón eða gufusoðið grænmeti eru einnig vinsæl. Sumir réttir eru einnig með brauð og áleggi sem meðlæti sem talið aðalatriði með réttinum, til dæmis sýrða rjómann og brauðið með töltött káposzta ('fyllt hvítkál').
Gúlas er oft talinn vera hinn aðal ungverski réttur, en hann er hinsvegar ekki borðaður mjög oft í Ungverjalandi. ] Aðrir frægir ungverskir kjöt réttir eru paprikás, það er þykkari kjöt kássa í þykkri rjómalagðri papriku sósu með lauki og sætu papríku kryddi. paprikás er yfirleitt borðið fram með galuska. Í sumum hefðbundnum réttum eru ávextir eins og plómur og apríkósur láttnar malla með kjöti. Ýmsar tegundir af núðlum, dumplings, kartöflum og hrísgrjónum eru oft bornar fram sem meðlæti. Ungverksar pylsur (kolbász) [1] og vetrar salamí eru einnig mjög algengar í Ungverjalandi.
Annað sem einkenni ungverskrar matargerðar eru súpur, pottréttir og eftirréttir.
Tveir ungverkir réttir sem eiga til að heilla ferðamenn eru ýmsir grænmetisréttir sem kallast főzelék [1] svo eru kaldar ávaxtar súpur, eins og köld súrkirsuberjasúpa.
Í Ungverskri matargerð er notað við mikið úrval af ostum, algengat er túró (kvarki) og rjómaostar. Algengustu ungversku ostar eru Karaván, Pálpusztai, Emmentaler, Edam og Trappista .
Það er mikið um reykt svínakjör í Ungverski matargerð. Margir réttir fá sitt bragð frá reyktum innihaldsefnum. einnig er ekki óalgengt að borða reyktar pylsur, reykt hangikjöt og reyktur svínakjöt. Með þessu fylgir yfirleitt brauð og ferskt grænmeti. Reykt kjöt er kallað „kaldur réttur“ og aðallega borðaðir í morgunmat eða kvöldmat, en einnig eru þeir stundum í boði sem forréttur á veitingastöðum.
Súrsað grænmeti er algengt í Ungverskri matargerð. Til dæmis er hitað súrkáli, sýrðar paprikur og súrar gúrkur mjög algengar á matsmálum. Súrsað grænmeti er vanalega neytt um vetur og áður fyrr var það nauðsynleg uppspreta af C-vítamíni sem var nauðsynlegt yfir vetrarmánuðina.
Ungversk matargerð hefur haft mikil áhrif á sögu Ungverjalands og öfugt. Hægt er að sjá mikilvægi búfjárs og flökkustíll ungverja, kemur fram í áberandi mikilvægis kjöti í ungverskum mat og í hefðbundnum kjötréttum sem eldaðir eru yfir eldinum eins og gúlas „gulyás“, [2] pörkölt plokkfiskur og kryddaða sjómannasúpan sem kallast halászlé eru öll jafnan elduð yfir opnum eldi í potti (eða katli). Á 15. öld kynntu Matthias Corvinus [3] konungur og Beatrice kona hans frá Napólí, undir áhrifum frá menningu endurreisnartímabilsins, ný hráaefni eins og sætan kastaníu og krydd eins og hvítlauk, engifer, saffran og múskat, [4] laukur og notkun ávaxta í fyllingum eða eldað með kjöti. [5] Sum af þessum kryddum eins og til dæmis engifer og saffran eru hinsvegar ekki notuð í ungverskri matargerð í dag. [6] Á þeim tíma settust að Saxar (þýskur þjóðflokkur), Armenar, Ítalir, Gyðingar, Pólverjar, Tékkar og Slóvakar að í Ungveralandi og settu sinn blæ á ungverskri matargerð. Ungversk matargerð varð undir áhrifum frá austurrískri matargerð undir austurríska-ungverska heimsveldinu; og má segja að aðferðir við matargerð hafa oft verið fengnar að láni frá austurrískri matargerð og öfugt. Sumar kökur í Ungverjalandi sýna mjög sterk þýsk-austurrísk áhrif. Það er hægt að segja að nútíma ungversk matargerð er nýmyndun fornra úralískra íhluta í bland við vest vestur svalísk, Balkanskaga, austurríska og þýskalands .
Ungverskar máltíðir
breytaMorgunmatur
breytaÍ Ungverjalandi er algengt að fólk borði stóran morgunmat. Ungverskur morgunverður er yfirleitt samloka með smjöri, osti eða mismunandi rjómaostum, túró osti eða körözött, áleggi líkt og skinku, lifrarpaté, beikon, salamí, pylsur eins og kabanos, bjórpylsa eða mismunandi ungverskar pylsur eða kolbász . [7] Það er mikil hefði fyrir ferskurm tómötum og græni papríku, yfir vetrarmánuðina er einnig algengt að hafa lauk, radísur og agúrkur með morgunmatnum. Egg, steikt, spænt eða soðið geta einnig verið hluti af morgunmatnum.
Sumir réttir sem voru algengir áður fyrr, til dæmis nautatunga, sviðarsultua og blóðmör eru nú aðeins tengt við sveitina.
Ungverjar nú til dags borða ekki endilega hin týpíska ungverska morgunmat. Margir velja sér frekar bolla af te eða kaffi og sætabrauð með sultu eða hunangi. Einnig er algengt að fá sér morgunkorn eða hrísgraut með kakódufti, syrki eða áxavaxtar sýrópi
Hádegismatur
breytaHádegisverður er aðalmáltíð fyrir ungverja, hann getur jafnan verið nokkrir réttir, en nú til dags er hádegisverður yfirleitt bara einn réttur. Hádegisverður getur verið borinn farm með bæði heitum eða köldum forréttum til dæmis fisk, egg eða lifur, síðan er yfirleitt súpa. Eftir súpunni fylgir aðalrétturinn. Aðalrétturinn er með kjöti, meðlæti og salati eða súrsuðu grænmeti. Í Ungverjalandi er algengt að bera fram pönnukökur sem aðalrétt eða sem eftirrétt. Yfirleitt fylgir salat með kjötréttum. Einfalt þunnt skorið agúrku- eða tómatsalat í víngrjóti er dæmigert. Salöt eins og Salade Olivier eða kartöflusalat er úr soðnum kartöflum, [1] grænmeti, harðsoðnum eggjum, sveppum, steiktu eða soðnu kjöti eða fiski, í víngerði, aspic eða majónesi . Þessi salat er borðað sem forréttur eða jafnvel sem aðalréttur.
Kvöldmatur
breytaVenjulega er kvöldverður ekki eins mikilvægur og hádegismatur og það er í raun enginn dæmigerður ungverskur kvöldverður. Kvöldmatur getur bæði verið hádegis máltíðin með mörgum réttum, eða það gæti verið það sama og hátt ungverskur morgunverður, brauði með áleggi, ostum, tómötum og papriku. Þegar kvöldmaturinn er mikilvægt tilefni líkis hann fremur hádegismáltíðinni.
Vín
breytaUngverskt vín er talið vera frá rómverskum tíma og sú saga endurspeglar stöðu landsins milli Vestur-Slava og germönsku þjóðanna. Vinsælustu vínin kallast hvíta eftirréttarvínið sem heitir Tokaji Aszú og rauðvínin frá Villány það er í suðurhluta Ungverjalands. Bull's Blood ( Egri Bikavér ) er einning mjög frækt vín. Það er dökkt, þurrt rauðvín. Ungversk ávaxtavín eru einnig mjög algeng til dæmis rauðberjarvín sem eru mild á bragðið.
Unicum er mjög frægt í ungverjalandi, það er oft drukkið eftir matinn og er talið bæði hjált með þykknuy og meltingu. Pálinka, er einnig mjög frægt, það er búið til úr ýmsum ávöxtum til dæmis plómum og perum. [8]
Ytri tenglar
breyta- Ungversk matarmenning á Open Directory Project
- In Search of Lard Time á spoonwiz.com
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 1,2 June Meyers Authentic Hungarian Heirloom Recipes Cookbook
- ↑ Gundel's Hungarian Cookbook, Karoly Gundel.
- ↑ http://magicafe.hu/news.php?nid=667.
{{cite web}}
:|title=
vantar (hjálp) - ↑ http://www.gourmandnet.hu/konyha/site.php?tpl=theme&id=71.
{{cite web}}
:|title=
vantar (hjálp) - ↑ http://hungaria.org/hal/culinaria/index.php?halid=2.
{{cite web}}
:|title=
vantar (hjálp) - ↑ http://www.mon.hu/engine.aspx/page/article-detail/cn/boon-news-ed07-20051022-021107/dc/im:all:health-family.
{{cite web}}
:|title=
vantar (hjálp) - ↑ Gundel's Hungarian Cookbook, Karoly Gundel, page34
- ↑ „Mineral Waters of the World“. Pmgeiser.ch. Afrit af upprunalegu geymt þann 26. febrúar 2009. Sótt 12. mars 2014.