Snið:Forsíða/Efri
Grikkland hið forna vísar til hins grískumælandi heims í fornöld. Það er ekki eingöngu notað um það landsvæði sem Grikkland nær yfir í dag, heldur einnig lönd þar sem grískumælandi fólk bjó í fornöld: Kýpur og Eyjahafseyjar, Jóníu í Litlu Asíu, Sikiley og Suður-Ítalíu og ýmsar grískar nýlendur, til dæmis í Kolkis, Illyríu, í Þrakíu, Egyptalandi, Kýrenæku, suðurhluta Gallíu, á austan- og norðaustanverðum Íberíuskaga, í Íberíu og Táris.
Tímaskeið Grikklands hins forna nær frá því að grískumælandi menn settust fyrst að í Grikklandi á 2. árþúsundi f.Kr. til loka fornaldar og upphafs kristni (kristni varð til áður en fornöld lauk, en kristin menning er venjulega ekki talin til klassískrar fornaldarmenningar Grikklands). Flestir sagnfræðingar telja að í Grikklandi hinu forna liggi rætur vestrænnar menningar. Grísk menning hafði mikil áhrif á Rómaveldi, sem miðlaði menningunni áfram til margra landa Evrópu. Aukinheldur hafði enduruppgötvun Vestur-Evrópubúa á forngrískri menningu á 14. – 17. öld afgerandi áhrif á evrópska menningu. Hún hefur haft gríðarlega mikil áhrif á tungumál, stjórnmál, menntun, heimspeki, vísindi og listir Vesturlanda. Hún var megininnblástur endurreisnarinnar í Vestur-Evrópu og hafði aftur mikil áhrif á ýmsum nýklassískum skeiðum á 18. og 19. öld í Evrópu og Norður-Ameríku.
- 2001 - Bandaríska orkufyrirtækið Enron óskaði eftir gjaldþrotaskiptum.
- 2001 - Kreppan mikla í Argentínu: Ríkisstjórn Argentínu frysti allar innistæður í 12 mánuði sem leiddi til uppþota.
- 2007 - Íbúar Venesúela höfnuðu stjórnarskrárbreytingum sem hefðu gefið forseta meiri völd.
- 2013 - Til skotbardaga kom á milli manns nokkurs og lögreglu í Árbæjarhverfi. Maðurinn varð fyrir skoti frá lögreglu og lést af völdum þess.
- 2019 - Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna 2019 hófst í Madríd á Spáni þar sem forseti Chile hafði hafnað því að halda ráðstefnuna vegna mótmælanna í landinu.
- 2020 - Breska lyfjaeftirlitið samþykkti BNT162b2-bóluefnið frá Pfizer-BioNTech.
- 2020 - Fíkniefnanefnd Sameinuðu þjóðanna tók kannabis út af lista yfir hættuleg eiturlyf, vegna notagildis þess í læknisfræðilegum tilgangi.